Fara í efni

Yfirlit frétta

27.11.2026

Kveikt á jólatré á Þórshöfn á sunnudaginn

Á sunnudaginn klukkan 17.00 verður kveikt að jólatrénu í lystigarðinum.
27.11.2026

Samúðarkveðja frá Langanesbyggð

Langanesbyggð sendir fjölskyldum og ástvinum þeirra sjómanna sem fórust þegar Jökull ÞH 299 sökk innilegar samúðarkveðjur. Hugur okkar allra er hjá ykkur. 
25.11.2026

Næsti fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar

Í samþykkt um stjórn og fundarsköp Langanesbyggðar er mælt fyrir um að sveitarstjórn skuli funda á fjögurra vikna fresti. Samkvæmt því skal næsti reglubundni fundur sveitarstjórnar haldinn 11. desember nk. Í fundadagatali Langanesbyggðar fyrir árið 2026 var gert ráð fyrir að sveitarstjórn kæmi saman til aukafundar föstudaginn 27. nóvember nk., en í ljósi þess að engin brýn mál bíða afgreiðslu hefur verið ákveðið að af honum verði ekki. Næsti fundur sveitarstjórnar verður því 11. desember kl. 10:00.
17.11.2026

Nýjar síður um þróunarverkefni í Langanesbyggð

Langanesbyggð hefur birt nýjar síður með ítarlegum upplýsingum um Finnafjarðarverkefnið og um hugmyndir um vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi og stöðu þeirra. Hlekkur á síðurnar er hægra megin við merkið í valmyndinni efst á síðunni. Síðar munu birtast upplýsingar um önnur verkefni sem eru í undirbúningi í sveitarfélaginu.