Íbúakönnun í Langanesbyggð
Íbúar í Langanesbyggð sem eru með skráð símanúmer ættu að hafa fengið senda könnun í sms frá RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri. Könnun þessi er unnin af RHA fyrir sveitarfélagið Langanesbyggð og er ætlað að kanna viðhorf íbúa til samfélagsmála, þjónustu og mögulegrar uppbyggingar vindorku í sveitarfélaginu.
Til þess að opna könnunina þarf að ýta á hlekkinn og stimpla inn eigið símanúmer (password). Könnunin er á íslensku, ensku og pólsku og verður ekki hægt að rekja svör til einstakra þátttakenda.
Þeir íbúar sem ekki hafa fengið könnunina eða hafa lent í einhverjum vandræðum með að opna hana geta haft samband við RHA í gegnum netfangið rha@unak.is. Við hvetjum þá íbúa sem ekki eru með skráð númer og hafa því ekki fengið sms um að hafa samband svo allir fullorðnir íbúar sveitarfélagsins fái að segja sína skoðun.