Fara í efni

Tunguárvirkjun í Þistilfirði, deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi

Fréttir

Sveitarstjórn Langanesbyggðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi fyrir Tunguárvirkjun skv. 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt breytingu á Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027 skv. 1. mgr. 36. gr. sömu laga. Sveitarstjórn hafði áður samþykkt að auglýsa skipulagstillögu um stærri virkjunaráform en framkvæmdaaðilinn ákvað að minnka virkjunina og lónið til að lágmarka áhrif hennar á umhverfið. Tunguárvirkjun ehf. hefur áform um að reisa vatnsaflsvirkjun í Tunguá í Þistilsfirði með áætlað uppsett afl 0,99 MW og árlega orkuframleiðslu upp á 8,5 GWh. Virkjunin verður tengd við dreifikerfi RARIK.

Tillögurnar eru auglýstar frá 16. nóvember til og með 29. desember 2026. Skipulagsgögnin eru aðgengileg á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar undir málsnúmerum 130/2025 fyrir deiliskipulagstillöguna og 129/2025 fyrir aðalskipulagsbreytinguna. Skipulagsgögnin eru einnig aðgengileg á skrifstofu sveitarfélagsins og hér á heimasíðunni.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillögurnar á skipulagsgatt.is undir fyrrnefndum málsnúmerum. Einnig er hægt að senda athugasemdir á skrifstofu sveitarfélagsins, Langanesveg 2, 680 Þórshöfn eða á netfangið langanesbyggd@langanesbyggd.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og merktar sendanda. Þær skulu berast í síðasta lagi 29. desember 2026.

Tenglar á skipulagsgögnin eru hér fyrir neðan:

17128-001-askbr-tunguarvirkjun-grg-og-uppdr-id-479150-.pdf
17128-001-dsk-tunguarvirkjun-grg-id-491835-.pdf
17128-001-dsk-tunguarvirkjun-uppdr-id-479855-1-.pdf

Sveitarstjóri Langanesbyggðar