Fara í efni

Náms- og starfsráðgjafi í Kistunni 30. nóvember

Fréttir

Mánudaginn 30. nóvember mun Þorbjörg Arna, náms- og starfsráðgjafi hjá Þekkingarnetinu verða við störf í Kistunni. Þar mun hún bjóða upp á gjaldfrjáls einstaklingsviðtöl fyrir fullorðna.

Náms- og starfsráðgjöf getur nýst öllum þeim sem vilja efla færni sína, skoða ný námstækifæri, huga að starfsþróun eða fá stuðning við að taka næstu skref í námi og starfi.

Meðal þess sem náms- og starfsráðgjöf Þekkingarnetsins býður upp á er:

  • Upplýsingar um nám og störf.
  • Áhugasviðsgreining og aðstoð við náms- og starfsval.
  • Aðstoð við að greina eigin styrkleika, færni og möguleika.
  • Stuðningur við markmiðasetningu og starfsþróun.
  • Leiðsögn um árangursrík vinnubrögð í námi.
  • Aðstoð við að takast á við hindranir í námi, svo sem prófkvíða eða lesblindu.
  • Ráðgjöf við gerð ferilskrár og atvinnuumsókna.
  • Hvatning og stuðningur til símenntunar.

„Náms- og starfsráðgjöf snýst ekki bara um að finna næstu skref, heldur líka að sjá hvert er hægt að fara,“ segir Þorbjörg Arna.

Íbúar eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að fá faglega ráðgjöf í heimabyggð, hvort sem þeir hafa hug á að hefja nám, breyta um starfsvettvang eða einfaldlega kanna þá möguleika sem þeim standa til boða.

Hægt er að bóka viðtal hér eða með því að senda tölvupóst á thorbjorg@hac.is.

Nánari upplýsingar um náms- og starfsráðgjöf má finna á vef Þekkingarnets Þingeyinga."

Hlökkum til að sjá ykkur.