Staðarárvirkjun, deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi
Sveitarstjórn Langanesbyggðar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi fyrir Staðarárvirkjun skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt breytingu á Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027 skv. 1. mgr. 36. gr. sömu laga.
Arctic Hydro hefur áform um að reisa vatnsaflsvirkjun í Staðará í Bakkafirði. Áætlað uppsett afl virkjunarinnar er 0,99 MW og árleg orkuframleiðsla 6,1 GWh. Virkjunin verður tengd við dreifikerfi RARIK.
Tillögurnar eru auglýstar frá 16. nóvember til og með 29. desember 2026. Skipulagsgögnin eru aðgengileg á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar undir málsnúmerum 737/2025 fyrir deiliskipulagstillöguna og 736/2025 fyrir aðalskipulagsbreytinguna. Skipulagsgögnin eru einnig aðgengileg á skrifstofu sveitarfélagsins og hér á heimasíðunni.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillögurnar á skipulagsgatt.is undir fyrrnefndum málsnúmerum. Einnig er hægt að senda athugasemdir á skrifstofu sveitarfélagsins, Langanesveg 2, 680 Þórshöfn eða á netfangið langanesbyggd@langanesbyggd.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og merktar sendanda. Þær skulu berast í síðasta lagi 19. desember 2026.
Tenglar á skipulagsgögnin eru hér fyrir neðan:
25025-001-askbr-stadararvirkjun-grg-og-uppdr-id-479020-2-.pdf
25025-001-dsk-stadararvirkjun-grg-id-512694-2-1-.pdf
25025-001-dsk-stadararvirkjun-uppdr-id-479881-2-.pdf
Sveitarstjóri Langanesbyggðar