Fara í efni

Samúðarkveðja frá Langanesbyggð

Fréttir
Mynd: David Tomaseti (unsplash)
Mynd: David Tomaseti (unsplash)

Langanesbyggð sendir fjölskyldum og ástvinum þeirra sjómanna sem fórust þegar Jökull ÞH 299 sökk innilegar samúðarkveðjur. Hugur okkar allra er hjá ykkur. 

Einnig sendum við þeim sem lifðu slysið af og fjölskyldum þeirra okkar bestu kveðjur. Um leið og við syrgjum þá sem létust af heilum hug gleðjumst við yfir því að 14 manns úr áhöfninni hafi komist lífs af.

Við erum þeim viðbragðsaðilum sem komu að björguninni og hættu eigin lífi í þágu annarra óendanlega þakklát fyrir að vera til taks þegar á reynir, fyrir þrautseigju þeirra og ósérhlífni. Það er okkur ómetanlegt að eiga slíkar hetjur að.