Næsti fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar
25.11.2026
Fréttir
Í samþykkt um stjórn og fundarsköp Langanesbyggðar er mælt fyrir um að sveitarstjórn skuli funda á fjögurra vikna fresti. Samkvæmt því skal næsti reglubundni fundur sveitarstjórnar haldinn 11. desember nk. Í fundadagatali Langanesbyggðar fyrir árið 2026 var gert ráð fyrir að sveitarstjórn kæmi saman til aukafundar föstudaginn 27. nóvember nk., en í ljósi þess að engin brýn mál bíða afgreiðslu hefur verið ákveðið að af honum verði ekki. Næsti fundur sveitarstjórnar verður því 11. desember kl. 10:00.