Fara í efni

Höfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði

Staðsetning

Finnafjörður er staðsettur austan Langaness og vestan Bakkafjarðar. Í Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027, sem tók gildi árið 2013, gert ráð fyrir höfn fyrir stór skip í Finnafirði ásamt athafna- og iðnaðarsvæðum í landi Saurbæjar 1, 2 og 3, Hellulands, Hóla og Gunnólfsvíkur, samtals um 1.200 ha að stærð. Stærsti hluti svæðisins er við suðurströnd fjarðarins.

Smellið á myndina til hægri til að sjá staðsetninguna í kortasjá Náttúrufræðistofnunar.

Heimildir:

Verkefnislýsing

Finnafjarðarverkefnið snýr að þróun hafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði. Fjörðurinn er talinn heppilegt hafnarstæði vegna aðdýpis og góðs skjóls fyrir veðrum og vindum. Mikið flatlendi að sjó skapar möguleika á löngum viðleguköntum og jarðfræði við fjörðinn þykir hagstæð.

Fyrstu hugmyndir um höfn í Finnafirði komu fram á fyrsta áratug aldarinnar. Þá var horft til fjarðarins sem heppilegrar staðsetningar fyrir þjónustumiðstöð við olíurannsóknir og vinnslu á Drekasvæðinu. Verkefnið hefur þróast með tímanum og tekið umtalsverðum breytingum, m.a. vegna þess að fallið hefur verið frá hugmyndum um olíuvinnslu. 

Frá árinu 2013 til 2019 beindust sjónir að athugun á hagkvæmni alþjóðlegrar stórskipahafnar í tengslum við opnun siglingarleiða á norðurslóðum. Árið 2016 undirrituðu íslensk stjórnvöld, Langanesbyggð, Vopnafjarðarhreppur, EFLA og bremenports viljayfirlýsingu um frekari þróun stórskipahafnar í Finnafirði. Frá árinu 2019 hefur verkefnið miðast við uppbyggingu útflutningshafnar og aðliggjandi iðnaðar- og þjónustusvæðis fyrir hafnsækna iðnaðarstarfsemi. Það ár voru undirritaðir samstarfssamningar á milli Langanesbyggðar, Vopnafjarðar, EFLU og bremenports og þróunarfélag Finnafjarðarhafnar ehf.  (Finnafjörður Port Development) stofnað. Félagið vinnur m.a. að því að finna aðila til að standa að rekstri og framleiðslu á iðnaðarsvæðinu til að skapa höfninni rekstrargrundvöll. Meðal annars hefur verið horft til þess að framleiða rafeldsneyti (e-fuel) til útflutnings og nýta glatvarma frá framleiðslunni í fiskeldi á landi.

Í stefnu sveitarstjórnar frá árinu 2024 er verkefninu lýst sem uppbyggingu hafnar og iðnaðar- og þjónustusvæðis. Þar kemur einnig fram jákvæð afstaða til hugmynda um framleiðslu rafeldsneytis (e-fuels) og landeldis í Finnafirði.

Heimildir:

 

Staða verkefnisins

Finnafjarðarverkefnið er enn á þróunarstigi. Gert er ráð fyrir höfninni og aðliggjandi iðnaðar- og þjónustusvæði í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins og þann 20. júní 2024 samþykkti sveitarstjórn Langanesbyggðar stefnu um verkefnið, þar sem sett er fram framtíðarsýn og aðgerðaáætlun til ársins 2028. Í stefnunni er lögð áhersla á áframhaldandi þróun hafnarinnar og iðnaðar- og þjónustusvæðisins. Tekið skal fram að núverandi sveitarstjórn hefur ekki tekið opinbera afstöðu ti verkefnisins.

Þróunaraðilar telja að raforkuframleiðsla með vindorkuverum í nágrenni Finnafjarðar sé forsenda þess að áform um hafnaruppbyggingu nái fram að ganga. Í stefnu sveitarstjórnar kemur sömuleiðis fram að orkuöflun og tengingar við dreifikerfi raforku séu lykilforsendur fyrir iðnaðarstarfsemi í Finnafirði. Hugmyndir um uppbyggingu vindorkuvers á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi eru því nátengdar hugmyndum um uppbyggingu iðnaðar- og þjónustusvæðis í Finnafirði. Þar til niðurstaða liggur fyrir varðandi stöðu vindorkuversins í rammaáætlun stjórnvalda vinna þróunaraðilar Finnafjarðarverkefnisins að frekari þróun þess, samningum við landeigendur, viðræðum við mögulega fjárfesta í iðnaði á hafnarsvæðinu, upplýsingagjöf til almennings og fleiru.

Heimildir:

Aðilar að verkefninu

Að baki þróunarverkefninu standa bremenport, Verkfræðistofan Efla, Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur.

Þróunarfélag Finnafjarðarhafnar (FFPD)
bremenports, verkfræðistofan EFLA, Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur standa sameigilega að baki Þróunarfélagi Finnafjarðarhafnar ehf. (e. Finnafjörður Port Development, skammstafað FFPD). Hlutverk FFPD er að leiða þróun verkefnisins og afla samstarfsaðila eða rekstraraðila fyrir starfsemi innan verkefnasvæðisins. FFPD hefur einkarétt á markaðssetningu verkefnisins á alþjóðavettvangi til ársins 2060. Starfsemi félagsins er fjármögnuð af eigendum þess.

bremenports GmbH & Co. KG
bremenports GmbH & Co. KG er fyrirtæki í eigu sambandsfylkinu Bremen í Þýskalandi og ber ábyrgð á þróun, viðhaldi og rekstri hafnanna í Bremen og Bremerhaven. Félagið er leiðandi aðili í verkefninu og stærsti eigandi FFPD með 66% eignarhlut. Fyrirtækið býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á rekstri og þróun hafna og er lykilaðili í Finnafjarðarverkefninu.

EFLA hf.
EFLA hf. er íslensk verkfræðistofa með alþjóðleg umsvif sem hefur tekið þátt í verkefninu og leitt þróun þess frá upphafi. Fyrirtækið býr yfir mikilli þekkingu á mannvirkjahönnun og skipulagi verkefna af þessu tagi. EFLA á 26% í FFPD.

Langanesbyggð
Langanesbyggð er einn eigenda FFPD með 4% eignarhlut og annar eigenda fjögurra félaga sem stofnuð hafa verið til að halda utan um rekstur hafnarinnar í Finnafirði á móti Vopnafjarðarhreppi. Langanesbyggð fer einnig með skipulagsvald á svæðinu og sér um útgáfu framkvæmdaleyfa.

Vopnafjarðarhreppur
Vopnafjarðarhreppur er einn eigenda FFPD með 4% eignarhlut og annar eigenda fjögurra félaga sem stofnuð hafa verið til að halda utan um rekstur hafnarinnar í Finnafirði á móti Langanesbyggð.

Félög í eigu Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps
Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur eru meðal þróunaraðila verkefnisins og hafa í sameiningu stofnað nokkur félög um aðkomu sína að því. Samkvæmt ársreikningi Langanesbyggðar fyrir árið 2025 eru félögin þessi:

  • Finnafjörður slhf.
  • Finnafjarðarhöfn slhf.
  • Finnafjörður ehf.
  • Finnafjarðarhöfn ehf.

Eignarhlutur sveitarfélaganna er jafn í öllum félögunum. Hlutverk þeirra er m.a. að annast uppbyggingu og rekstur hafnarmannvirkja, samninga um afnot og samskipti við landeigendur.

Aðkoma Langanesbyggðar

Aðkoma Langanesbyggðar að verkefninu hefur verið með ýmsum hætti og nær meðal annars til aðalskipulags, samstarfssamninga, eignarhalds í félögum, stefnumörkunar sveitarstjórnar og upplýsingagjafar til íbúa.

Hluthafi í félögum
Langanesbyggð er hluthafi í Þróunarfélagi Finnafjarðar (4%) ásamt bremenport (66%), Eflu (26%) og Vopnafjarðarhreppi (4%). Langanesbyggð á auk þess 50% í fjórum félögum sem stofnuð hafa verið til að sjá um uppbyggingu og rekstur hafnarmannvirkja í Finnafirði á móti Vopnafjarðarhreppi. Í ársreikningi Langanesbyggðar fyrir árið 2025 kemur fram það mat stjórnenda að stofnun rekstrarfélaganna og þátttaka sveitarfélagsins í þeim hafi ekki skapað fjárhagslegar skuldbindingar umfram það hlutafé sem þegar hafði verið lagt fram.

Aðalskipulag
Í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins 2007-2027 er gert ráð fyrir hafnar-, iðnaðar- og athafnasvæðum í Finnafirði. Endurskoðuð tillaga að aðalskipulagi var auglýst árið 2012. Vinna við nýtt aðalskipulag er hafin en gera má ráð fyrir að vinnan taki 12 mánuði að lágmarki.

Viljayfirlýsing 2016
Árið 2016 samþykkti sveitarstjórn viljayfirlýsingu um Finnafjarðarverkefnið og heimilaði undirritun hennar fyrir hönd sveitarfélagsins.

Árið 2019 gerðust Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur aðilar að verkefninu ásamt bremenports og EFLU og árið 2023 samþykkti sveitarstjórn að framlengja rétt FFPD til markaðssetningar verkefnisins á alþjóðavettvangi til ársins 2060. Samkvæmt fundargerð sveitarstjórnar skal FFPA, félag í fullri eigu sveitarfélaganna, þó áfram hafa heimild til að samþykkja þau verkefni sem ráðist verður í á svæðinu.

Stefna Langanesbyggðar
Í júní 2024 samþykkti þáverandi sveitarstjórn stefnu um áframhaldandi þróun Finnafjarðarverkefnisins. Í henni lýsti sveitarstjórn yfir eindregnum vilja til að vinna áfram að framgangi Finnafjarðarverkefnisins og jákvæðni gagnvart hugmyndum um uppbyggingu rafeldsneytisiðnaðar og landeldis í Finnafirði.

Næstu skref

Gert er ráð fyrir Finnafjarðarhöfn í gildandi aðalskipulagi Langanesbyggðar, en ekki hefur verið gert deiliskipulag fyrir svæðið. Vinna er hafin við nýtt aðalskipulag sem gert er ráð fyrir að taki gildi í lok árs 2027. Viðræður standa yfir við landeigendur og við fjárfesta um stofnun landeignarfélags sem myndi leigja land undir starfsemina á svæðinu.

Fyrir liggur að meta þarf umhverfisáhrif framkvæmda áður en hægt verður að gefa út framkvæmdaleyfi.

Í stefnu sveitarstjórnar frá 2024 er að finna aðgerðaáætlun til ársins 2028. Fyrir árið 2026 er meðal annars gert ráð fyrir:

  • Kynningu verkefnisins.
  • Vinnu við samninga um afnot lands fyrir höfn og tengda starfsemi.
  • Upphafi vinnu við endurskoðun aðalskipulags.
  • Greiningu á innviðum og þörf fyrir endurbætur.
  • Mati á raforkuþörf vegna mögulegrar framleiðslu rafeldsneytis.

Íbúafundurinn sem haldinn var í mars 2026 var einn af þeim upplýsingaviðburðum sem kveðið var á um í þessari áætlun.

Aðstandendur verkefnisins hafa gefið til kynna að aðgengi að raforku sé ein af forsendum verkefnisins. Framhald þess veltur því  á því að reist verði vindorkuver á svæðinu eða aðgengi að raforku tryggt með öðrum hætti.

Heimildir:

Upplýsingaefni frá þróunaraðila

Tímalína

Dagsetning

Stutt samantekt

Skjal / tengill

Nóvember 2026

Þróunarfélag Finnafjarðarhafnar (FFPD) gefur út upplýsingaefni um Finnafjarðarverkefnið.

Ávarp forstjóra bremenports

Hafnarþróunarverkefnið á Finnafirði (PDF)

27.04.2026

Stjórnarmenn FFPD birta opið bréf í kjölfar íbúafundarins 31. mars 2026.

Opið bréf fulltrúa í stjórn FFPD, 2026

31.03.2026

Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur halda íbúafund um Finnafjörð. Fulltrúar bremenports og EFLU kynntu stöðu verkefnisins og áætlanir tengdar FFPD.

Íbúafundur 2026
Upptaka af fundi 2026

3.10.2024

Byggðarráð samþykkir að leggja Drekasvæðið ehf. niður þar sem fyrirtækið þjónar ekki lengur tilgangi.

Fundargerð 31. fundar byggðarráðs

20.06.2024

Sveitarstjórn samþykkir stefnu um uppbyggingu í Finnafirði. Í henni lýsir sveitarstjórn vilja til að vinna áfram að verkefninu og bendir á að tryggja þurfi aðgengi að raforku á svæðinu. Jafnframt lýsir sveitarstjórn jákvæðri afstöðu til rafeldsneytisframleiðslu og landeldis í Finnafirði.

Sveitarstjórnarfundur nr. 32
Frétt um stefnu á vef Langanesbyggðar
Stefna sveitarfélagsins 2024

Febrúar 2023

Sveitarstjórn samþykkir viðauka við samning bremenports GmbH, Vopnafjarðarhrepps og Langanesbyggðar sem framlengir einkarétt tengdan kynningu/markaðssetningu á möguleikum á uppbyggingu hafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði til ársins 2060.

Fundargerð 12. fundar sveitarstjórnar

1.12.2022

Sveitarstjórn fer yfir drög að viðauka við samninginn við bremenports frá 2019 og óskar eftir frekari upplýsingum um þýðingu viðaukans og skuldbindingar sveitarfélagsins. Samningurinn frá 2019, íslensk þýðing, lögfræðiálit, svör við spurningum og fundargerð stjórnar FFPD eru tilgreind sem fylgigögn.

Fundargerð 8. fundar sveitarstjórnar

19.05.2022

Sveitarstjórn samþykkir nýja viljayfirlýsingu (Memorandum og understanding) um uppbyggingu í Finnafirði. Að viljayfirlýsingunni stóðu auk Langanesbyggðar Vopnafjarðarhreppur, Bremenports og EFLA.

Fundargerð 143. fundar sveitarstjórnar

27.01.2022

Sveitarstjórn samþykkir aukningu hlutafjár í Þróunarfélagi Finnafjarðarhafnar ehf. (FFPD). Í skýrslu sveitarstjóra á sveitarstjórnarfundi kemur fram að viðræðum við landeigendur um mögulega leigu lands eða hluta jarða vegna hafnar og atvinnuuppbyggingar miði áfram.

Fundargerð 137. fundar sveitarstjórnar

18.03.2021

Minnisblað lögmanns um stöðu mála, „Stöðuskoðun vegna Finnafjarðarverkefnisins“, dagsett 16. mars 2021, lagt fyrir sveitarstjórn.

Fundargerð 123. fundar sveitarstjórnar

02.10.2020

Sameiginlegur fundur sveitarstjórna Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps um Finnafjörð.

Fundargerð 117. fundar sveitarstjórnar

01.10.2020

 

Minnisblað lögmanns dagsett 29. september 2020 um mögulega aðkomu ríkisins að verkefninu er lagt fyrir byggðarráð.

Fundargerð 28. fundar sveitarstjórnar

20.05.2020

Sveitarstjórn fjallar um drög að bréfi frá FFPA og FFPD til landeigenda varðandi fyrirhugaðar viðræður um nýtingu lands til atvinnustarfsemi á svæðinu. Á dagskrá sveitarstjórnarfundar er einnig bréf frá landeigendum þar sem lýst er vantrausti á Langanesbyggð í verkefninu.

Fundargerð 115. fundar sveitarstjórnar

27.06.2019

 

Sveitarstjórn samþykkir hluthafafyrirkomulag vegna Finnafjarðarhafnar slhf. og Finnafjarðar slhf.

Fundargerð 102. fundar sveitarstjórnar

11.04.2019

Langanesbyggð, Vopnafjarðarhreppur, bremenports og EFLA undirrita samstarfssamninga og stofna Þóunarfélag Finnafjarðarhafnar ehf. (FFPD)  til að vinna að þróun verkefnisins.

Samstarfssamningar vegna Finnafjarðar undirritaðir (frétt á vef Lnb)

10.04.2019

Sveitarstjórn veitir sveitarstjóra heimild til undirritunar stjórnunarsamnings, samrekstrarsamnings og annarra skjala sem þarf til að stofna þau félög sem sveitarfélagið mun eiga hlut í í tengslum við verkefnið.

Fundargerð 98. fundar sveitarstjórnar

07.01.2019

Sameiginlegur vinnufundur sveitarstjórna Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps haldinn á Bakkafirði þar sem farið var yfir stöðu verkefnisins og samninga varðandi það.

Fundargerð 94. fundar sveitarstjórnar

15.02.2018

Sveitarstjórn ræðir Finnafjarðarverkefnið á sveitarstjórnarfundi. Í fundargerðinni er fjallað um opinbera umræðu um mögulegar ábyrgðir gagnvart fjárfestum og greint frá undirbúningi funda bremenports með ráðuneytum, sveitarfélögum og landeigendum.

Fundargerð 77. fundar sveitarstjórnar

2017

Gögn sveitarfélagsins sýna áframhaldandi vinnu við skipulag verkefnisins. Í fundargerðum kemur m.a. fram að starfandi var samráðsnefnd Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps, að sveitarstjórar sveitarfélaganna hafi farið til Þýskalands í tengslum við verkefnið og að viðræður hafi átt sér stað við skipafélag um að nýta höfnina.

Vefsvæði langanesbyggðar

 

10.01.2017

Bremenport fær heimild ríkisþings Bremen (Senat Bremen) til þátttöku í þróunarfélagi um hafnarverkefnið í Finnafirði.

 

Frétt á vef bremenports (vefsafn)

13.09.2016

Fulltrúar bremenports heimsækja Langanesbyggð og funda með heimafólki um stöðu Finnafjarðarverkefnisins.

Fundargerð 51. fundar sveitarstjórnar

21.05.2016

Íslensk stjórnvöld, Langanesbyggð, Vopnafjarðarhreppur, EFLA og bremenports undirrita viljayfirlýsingu um uppbyggingu stórskipahafnar. Í henni eru hlutverk, skyldur og aðgerðir aðila skilgreind.

Viljayfirlýsing undirrituð um stórskipahöfn í Finnafirði, Austurfrétt, 24. maí 2016

12.05.2015

Liðurinn „Finnafjörður – staða verkefnis“ er á dagskrá sveitarstjórnarfundar. Í fundargerð er greint frá fyrirhugaðri heimsókn aðila frá bremenports, uppsetningu á veðurstöðvum og jarðvegsrannsóknum.

Fundargerð 25. fundar sveitarstjórnar

27.11.2014

Fjallað um stöðu Finnafjarðarverkefnisins í skýrslu sveitarstjóra til sveitarstjórnar. Fram kemur að unnið er að mælingum og rannsóknum.

Fundargerð 13. fundar sveitarstjórnar

Maí 2014

bremenports, Langanesbyggð, Vopnafjarðarhreppur og EFLA undirrita formlegan samstarfssamning um sameiginlega hagkvæmniathugun og lagalega, tæknilega, umhverfislega og fjárhagslega þætti verkefnisins.

Fundargerð 10. fundar sveitarstjórnar

10.10.2013

Haldinn íbúafundur þar sem farið er yfir bakgrunn verkefnisins, fyrstu þróunarvinnuna, tengslin við aðalskipulag, aðkomu bremenports og þá rannsóknaráætlun sem þá var fyrirhuguð.

Íbúakynning 2013
Kynning bremenports
Kynning um sjálfbæra höfn

17.09.2013

Haldinn er fundur með landeigendum til að kynna áform um mögulega uppbyggingu stórskipahafnar í Finnafirði.

Frétt um fund með landeigendum á vef Langanesbyggðar

05.09.2013

Frétt sveitarfélagsins með tengli á umfjöllun RÚV um fyrirhugaðar rannsóknir á um 1.000 hekturum lands og hafsvæðinu til að meta mögulega alþjóðlega stórskipahöfn.

Frétt um stórskipahöfn á vef Langanesbyggðar

27.08.2013

bremenports kynnir áform um stofnun fyrirtækis og fjárfestingu í athugun á því hvort alþjóðleg stórskipahöfn í Finnafirði sé raunhæfur kostur.

Frétt um hagkvæmniathugun á vef Langanesbyggðar

01.08.2013

Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007–2027 tekur gildi. Í aðalskipulaginu er gert ráð fyrir mögulegri stórskipa-/umskipunarhöfn og iðnaðar-/athafnasvæðum í Finnafirði.

Aðalskipulag 2007–2027

26.06.2013

Sveitarfélagið tilkynnir um samstarf Langanesbyggðar, Vopnafjarðarhrepps og bremenports um rannsóknir og prófanir í tengslum við mögulega uppbyggingu hafnar og athafnasvæðis í Finnafirði.

Fréttasafn, júní 2013

2012

EFLA kemur Langanesbyggð til aðstoðar í málefnum varðandi höfn í Finnafirði. Verkefnið er kynnt á alþjóðavettvangi og fyrir stjórnvöldum og unnið að undirbúningi rannsókna. Skrifað er undir viljayfirlýsingu með bremenports í desember 2012.

Íbúakynning 2013

2010–2011

EFLA ræðir hugmyndina um höfn í Finnafirði með óformlegum hætti við þrjá mögulega rekstraraðila á árunum 2010 og 2011.

Íbúakynning 2013

September 2008

Iðnaðarráðuneyti birtir skýrsluna "Þjónustumiðstöð fyrir olíuleit á Drekasvæðinu - Staðarval og aðstöðusköpun", þar sem meðal annars er fjallað um aðstæður í Finnafirði. Skýrslan er unnin af EFLU og Almennu verkfræðistofunni.

Þjónustumiðstöð fyrir olíuleit á Drekasvæðinu - Staðarval og aðstöðusköpun (Iðnaðarráðuneyti)

03.03.2008

Drekasvæðið ehf. stofnað. Félaginu er ætlað að vera samstarfsvettvangur um rannsóknir vegna uppbyggingar grunnþjónustu vegna olíuleitar frá svæðinu við innanverðan Bakkaflóa

Drekasvæðið ehf. (keldan.is)

2007–2008

Iðnaðarráðuneyti vinnur að athugun á þjónustumiðstöð fyrir olíuleit á Drekasvæðinu sem samstarfsverkefni með Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppi. Í íbúakynningu frá 2013 kemur fram að þessi vinna hafi vakið athygli á aðstæðum í Finnafirði og leitt til frekari athugunar á svæðinu.

Íbúakynning 2013

 

 



Uppfært12. nóvember 2026
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?