Opið bréf til íbúa Langanesbyggðar og Vopnafjarðar frá stjórnarmönnum FFPD
Þróunarfélag Finnafjarðarhafnar ehf. I Finnafjord Port Development Company ehf.
Lynghálsi 4
110 Reykjavík
Bremen/Reykjavik, 21. apríl 2026
Sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjörður
Til: Fulltrúa í sveitarstjórnum beggja sveitarfélaga og íbúa.
Varðar: Finnafjord Port Project – Íbúafundur 31. mars 2026
Opið bréf til íbúa
Kæru íbúar Langanesbyggðar og Vopnafjarðar,
Þann 24. mars 2026 þáði Þróunarfélag Finnafjarðarhafnar ehf. (oft skammstafað sem FFPD) boð sveitarstjórna Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps um að kynna, á opnum fundi, Finnafjarðarverkefnið fyrir íbúum beggja samfélaga. Við vorum afar þakklát fyrir þetta boð og komum til Þórshafnar til að kynna framtíðarsýn okkar og stöðu verkefnisins.
Eftir íbúafundinn fengum við nokkrar athugasemdir, sérstaklega varðandi yfirlýsingar um hvað nærsamfélag ætti að gera til að tryggja framgang verkefnisins. Þessar athugasemdir valda okkur áhyggjum, enda leggjum við okkur fram um að þróa verkefnið í samstarfi við bæði samfélög. Þess vegna teljum við viðeigandi að biðjast einlægrar afsökunar á því hvernig skilaboðum okkar var komið á framfæri á þessum fundi. Við höfum fullan skilning á því að að kynning okkar kunni að hafa valdið sárindum meðal viðstaddra. Á þessu berum við fulla ábyrgð.
Við hörmum það innilega ef orðræðan hafði ekki aðeins áhrif á þá sem voru viðstaddir fundinn, heldur einnig aðra þá íbúa sem lengi hafa stutt Finnafjarðarverkefnið – og eru nú í afar erfiðri stöðu þegar þeir eru beðnir um að útskýra verkefnið eða verja. Við skiljum að traust hefur skaðast, og að slíkt geti dregið úr þátttöku og trú heimamanna á verkefnið.
Finnafjarðarverkefninu er ætlað að vera valkostur fyrir bæði sveitarfélögin til að bregðast við fækkun íbúa, með því að styrkja núverandi virðiskeðjur í sjávarútvegi og um leið kanna tækifæri tengd grænni orku. Þessi tækfæri eru sannarlega háð framboði á raforku, rétt eins og fram kom á fundinum. Raunhæfasti valkosturinn í dag er vindorka sem væri virkjuð í nálægð við verkefnið. Fyrsti áfanginn í slíkri uppbyggingu yrði jafnframt upphafspunkturinn fyrir framtíðarþróun Finnafjarðarverkefnisins.
Finnafjarðarverkefnið hefur staðið yfir í langan tíma, en Bremenports gekk til liðs við sveitarfélögin árið 2012. Í ljósi þessa er eðlilegt að hluthafar Bremenports og Eflu, sem koma að verkefninu, spyrji sig hvað fyrirtækin séu að gera á Íslandi. Það er óljóst hversu lengi þessir samstarfsaðilar geta haldið áfram með verkefnið án þess að ná raunverulegum árangri.
Að sjálfsögðu sjáum við og kunnum að meta þá miklu vinnu sem sveitarstjórnir Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps hafa lagt í verkefnið, t.d. með því að vinna að þróun vindorku og með ráðningu verkefnastjóra til að styðja við FFPD. Hann leggur mikið til verkefnisins, sérstaklega þegar kemur að samskiptum við stjórnvöld.
Nú, hvað stjórnvöld snertir, þá teljum við samtalið vera á góðum stað. Við getum í sameiningu mótað raunhæfar kröfur til verkefnisins og unnið að framgangi þess landshlutanum til heilla. Við getum og viljum halda áfram, en þó aðeins í nánu samráði og samstarfi við sveitarstjórnir Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps.
Við væntum þess að framtíðarsamstarf okkar við bæði sveitarfélögin verði eins og áður mótað af gagnkvæmu trausti og opinskáum samskiptum, en við viljum einnig sjá skýrari mótun þeirra hugmynda sem samfélögin hafa varðandi Finnafjarðarverkefnið.
Með bestu kveðjum
- Fyrir hönd Finnafjord Port Development Company ehf. (FFPD) -

Robert Howe Hafsteinn Helgason