Fara í efni

Íbúafundur um Finnafjarðarverkefnið

Fréttir

Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur bjóða til íbúafundar um Finnafjarðarverkefnið.

Fundurinn verður haldinn í Þórsveri á Þórshöfn, þriðjudaginn 31. mars kl. 17:00.

Sérstakir gestir verða Robert Howe, forstjóri þýska fyrirtækisins Beremenports, og Hafsteinn Helgason, sviðsstjóri viðskiptaþróunar hjá Eflu. Bæði fyrirtækin eru samstarfsaðilar sveitarfélaganna í þróunarfélaginu FFPD, sem vinnur að uppbyggingu alþjóðlegrar hafnar og iðnaðar-og þjónustusvæðis í Finnafirði. Munu þeir fara yfir stöðu verkefna og framtíðarhorfur í tengslum við þetta þróunarverkefni.

Fundurinn er m.a. liður í aðgerðaáætlun og samþykktri stefnu sveitarstjórnar Langanesbyggðar um uppbyggingu við Finnafjörð.
Fundurinn verður á íslensku og er öllum opinn. Samantekt á staðnum á þeim erindum sem verða flutt á ensku.
Boðið verður upp á kaffiveitingar að fundi loknum.