Fara í efni

Vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi

Mynd af vindorkuveri búin til með aðstoð gervigreindar.

Staðsetning

Fyrirhuguð vindorkusvæði á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi eru í landi Sóleyjarvalla, Hóls, Hraunkots og Staðarsels á sunnanverðu Langanesi. Í áætlunum er gert ráð fyrir að vegalengdin frá mörkum Þórshafnar að þeirri vindmyllu sem reist yrði næst byggðinni verði um 4 km. Norðausturvegur (þjóðvegur 85) liggur þvert yfir það svæði sem til skoðunar er.

Áætlanir um staðsetningu túrbína hafa breyst frá upphaflegum hugmyndum að teknu tilliti til votlendis, vatns, fornminja, hindrunarsvæðis Þórshafnarflugvallar, landamerkja og þátttöku landeigenda. Endanleg útfærsla ræðst af niðurstöðum umhverfismats, ákvörðunum sveitarfélagsins um skipulag og fleiru.

Myndin sýnir staðsetningu vindorkuversins eins og hún er kynnt í matsáætlun wpd. Matsáætlun miðast við stærstu mögulegu hönnun vindorkuversins en wpd vinnur einnig með sviðsmyndir með færri vindtúrbínum. Gera má ráð fyrir að vindorkuverið byggist upp í áföngum.

Heimildir:

Verkefnislýsing

wpd á Íslandi ehf. er með þrjú svæði til skoðunar til að setja upp vindorkuver í Langanesbyggð; á Brekknaheiði, Sauðaneshálsi og Viðvíkurheiði. Svæðin á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi liggja saman og því er unnið að þróun tillagnanna og mati á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra vindorkuvera samhliða. Verkefnin tengjast hugmyndum um uppbyggingu hafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði og er gert ráð fyrir að orka frá verunum gæti nýst við iðnaðarframleiðslu þar.

Matsáætlun fyrir tillögurnar lýsir samtals um 36,7 km² þróunarsvæði, með allt að 74 túrbínum sem yrðu allt að 210 m háar og samtals allt að 532,8 MW uppsettu afli. Gert er ráð fyrir allt að 47 túrbínum á Brekknaheiði sem geti framleitt 338,4 MW og allt að 27 túrbínum á Sauðanesi með framleiðslugetu allt að 194,4 MW. Þetta eru hámarksviðmið verkefnanna sem notuð eru í matsferlinu en endanleg útfærsla hefur ekki verið ákveðin og er háð niðurstöðu umhverfismats. Unnið er með þrjár sviðsmyndir sem eru misjafnar að umfangi (sjá neðar).

Uppsetning vindtúrbína kallar á steinsteyptar undirstöður, aðkomu- og þjónustuvegi, rafstrengi innan svæðisins og tengivirki við flutningsnet raforku Landsnets.

Áður var gert ráð fyrir sérstöku tilraunaverkefni á Sauðaneshálsi með uppsetningu á tveimur vindtúrbínum með samtals allt að 9,9 MW uppsett afl, en í kjölfar breytinga á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011, þar sem kveðið er á um að vindorkumannvirki yfir 30 metrum að hæð falli undir rammaáætlun, var fallið frá þeirri hugmynd.

Samkvæmt lokaskýrslu verkefnisstjórnar 5. áfanga rammaáætlunar hafa virkjunarkostirnir verið skilgreindir til rammaáætlunar og kynntir verkefnisstjórn um rammaáætlun og faghópum. Þeir eru því tilbúnir til að verða metnir í 6. áfanga rammaáætlunar.

Brekknaheiði

  • Fjöldi vindtúrbína: allt að 47.
  • Afl á hverja túrbínu: allt að 7,2 MW
  • Uppsett afl samanlagt: allt að 338,4 MW.
  • Hæð túrbína: allt að 210 m.
  • Stærð rannsóknarsvæðis: 18,7 km²

Sauðanesháls

  • Fjöldi vindtúrbína: allt að 27.
  • Afl á hverja túrbínu: allt að 7,2 MW
  • Uppsett afl samanlagt: allt að 194,4 MW.
  • Hæð túrbína: allt að 210 m.
  • Stærð rannsóknarsvæðis: 22,3 km²

Tillögurnar samtals

  • Fjöldi vindtúrbína: allt að 74.
  • Afl á hverja túrbínu: allt að 7,2 MW
  • Uppsett afl samanlagt: allt að 532,8 MW.
  • Hæð túrbína: allt að 210 m.
  • Þróunarsvæði alls: Um 36,7 km². Rannsóknir í umhverfismati ná samtals til um 39,4 km².

Heimildir:

Sviðsmyndir

Unnið er út frá þremur sviðsmyndum sem eru misjafnar að umfangi:

Sviðsmynd A
74 vindtúrbínur sem eru 210 m á hæð í landi Sóleyjarvalla, Hraunkots, Hóls og Staðarsels.

Sviðsmynd B
56 vindtúrbínur sem eru 150 m á hæð í landi Sóleyjarvalla og Hraunkots.

Sviðsmynd C
24 vindtúrbínur sem eru 180 m á hæð í landi Sóleyjarvalla.

Heimildir:

Staða verkefnisins

Vindorkukostir á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi: Unnið að undirbúningi mats á umhverfisáhrifum.

wpd hefur skilað áætlun fyrir mat á umhverfisáhrifum vindorkuvera á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi til Skipulagsstofnunar. Í matsáætluninni er gerð grein fyrir því hvernig umhverfismatið verður framkvæmt og hvaða umhverfisþættir verða rannsakaðir. HMS birti álit sitt um matsáætlunina þann 1. apríl 2026. Gera má ráð fyrir að umhverfismat hefjist þegar þróunaraðili hefur tryggt aðgang að landi og taki að lágmarki tvö ár.

Lögð hefur verið inn umsókn um að virkjunarkostirnir verði settir í nýtingarflokk rammaáætlunar.

Þótt ofangreindir vindorkukostir séu til skoðunar er ekki gert ráð fyrir þeim Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007–2027. Vinna við nýtt aðalskipulag er hafin og felur meðal annars í sér að marka stefnu um vindorkuver. Ekkert formlegt leyfi hefur enn verið gefið fyrir rekstri vindorkuvera eða framkvæmdum við þau og niðurstaða umhverfismats þarf að liggja fyrir áður en stjórnvöld gefa út slík leyfi.

Tilraunaverkefnið á Sauðaneshálsi: Fallið frá uppsetningu

Niðurstaða Skipulagsstofnunar var að meta þyrfti áhrif tilraunaverkefnis wpd á Sauðaneshálsi á umhverfið í umhverfismati. Við það bætist að samkvæmt nýlegum ákvæðum laga um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011 skulu öll vindorkumannvirki sem ná meira en 30 metra hæð í hæstu stöðu flokkuð í nýtingarflokk, verndarflokk eða biðflokk í rammaáætlun. Það er tímafrekt ferli og hefur wpd því fallið frá hugmyndinni um tilraunaverkefni.

Heimildir:

Þróunaraðili

wpd Ísland ehf.
wpd Ísland ehf. er aðilinn sem vinnur að því að fá að setja upp vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi. wpd Ísland er dótturfyrirtæki wpd GmbH í Þýskalandi sem er umsvifamikill þróunar- og rekstraraðili vindorkuvirkjana á landi víðs vegar um heiminn. wpd tók við þróun verkefnisins á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi af verkfræðistofunni Eflu sem leiddi þróunina þar til wpd tók yfir þróun tillagnanna í júlí 2022.

Heimildir:

Aðrir þátttakendur í ferlinu

EFLA
Verkfræðistofan EFLA hóf þróun vindorkuhugmynda á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi árið 2019 og skilaði verkefnaupplýsingum til verkefnisstjórnar um rammaáætlun árið 2020. EFLA vann einnig matsáætlunina fyrir wpd. EFLA er jafnframt einn eigenda Þróunarfélags Finnafjarðarhafnar (FFPD) sem vinnur að uppbyggingu hafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði.

Ríkisstofnanir og innviðafyrirtæki
Ríkið kemur að verkefnunum sem það stjórnvald sem veitir virkjunarleyfi í kjölfar umhverfismats, í samræmi við forgangsröðun Alþingis í Rammaáætlun. Verði af verkefninu mun Landsnet að líkindum setja upp tengivirki í tengslum við virkjunina og Vegagerðin þarf að samþykkja tengingar við þjóðvegi og ráðstafanir sem framkvæmdaaðili þarf að gera til að tryggja að vegir beri flutninga að svæðinu á framkvæmdatíma.

Langanesbyggð
Langanesbyggð er ekki beinn þátttakandi í þróun vindorkukostanna, en hefur áhrif á þróun þeirra sem það stjórnvald sem fer með skipulagsvald á svæðinu og eigandi hluta þess lands sem um ræðir. Langanesbyggð er jafnframt einn eigenda Þróunarfélags Finnafjarðarhafnar (FFPD) sem vinnur að uppbyggingu hafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði.

Þróunarfélag Finnafjarðarhafnar ehf. (FFPD)
Þróunarfélag Finnafjarðarhafnar er ekki beinn þátttakandi í verkefninu en hefur hagsmuna að gæta þar sem aðgengi að raforku er talið forsenda uppbyggingar iðnaðarsvæðis og hafnar í Finnafirði. Þróunarfélagið er í eigu bremenports, Eflu, Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps.

Aðkoma Langanesbyggðar

Langanesbyggð ber ábyrgð á gerð aðal- og deiliskipulags fyrir svæðið, sem og á útgáfu framkvæmdaleyfis þegar þar að kemur. Ekki er gert ráð fyrir vindorkuverum í aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007–2027. Vinna við nýtt aðalskipulag er hafin og í tengslum við hana þarf sveitarstjórn að taka afstöðu til hugsanlegra vindorkuvera og staðsetningar þeirra.

Í stefnu sveitarfélagsins sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar 20. júní 2024 lýsti þáverandi sveitarstjórn sig jákvæða fyrir áframhaldandi vinnu við þróun vindorkukosta á svæðinu með það fyrir augum að framleiða hluta þeirrar raforku sem til þarf til að tryggja uppbyggingu á rafeldsneytisverksmiðju í Finnafirði í skynsamlegum áföngum. Í því felst þó ekki endanlegt samþykki fyrir framkvæmdum sem er háð niðurstöðum umhverfismats, skipulagi, samningum við landeigendur um afnot af landi og fleiru.

Langanesbyggð hefur tekið þátt í að kanna möguleika á virkjun vindorku á svæðinu, meðal annars til að mæta hugsanlegri orkuþörf á fyrirhuguðu iðnaðarsvæði við Finnafjörð. Sveitarfélagið hefur veitt leyfi fyrir vindmælingum á Staðarselssvæðinu og tekið þátt í viðræðum við þróunaraðila, ráðuneyti og aðra hagsmunaaðila. Langanesbyggð hefur einnig tekið þátt í upplýsingagjöf og samráði við íbúa.

Langanesbyggð kemur einnig að málinu sem landeigandi í gegnum Jarðasjóð Langanesbyggðar. Viðræður um landleigusamning eru hafnar en ekki hefur verið gengið frá undirritun.

Heimildir:

Næstu skref

Samningar um landleigu við landeigendur
Unnið er að samningum við landeigendur um leigu á landi undir vindtúrbínurnar til að tryggja aðgang að því landi sem fyrirtækið vill framkvæma á, ásamt því að draga úr áhættu verkefnisins áður en ráðist er í umfangsmiklar rannsóknir. Samið hefur verið við eigendur Hraunkots og samningaviðræður við aðra landeigendur eru hafnar.

Umhverfismat
Unnið er að undirbúningi mats á umhverfisáhrifum vindorkuvers eða -vera á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi. Í umhverfismati verður lagt mat á áhrif vindorkumannvirkjanna á þætti eins og vistgerðir og gróður, fuglalíf, dýralíf, jarðminjar, vatnshlot, landslag, óbyggð víðerni, ásýnd, skuggaflökt, myrkurgæði, hljóðvist, samfélag, menningarminjar og loftslag. Markmið umhverfismatsins og rannsókna er að kortleggja möguleg umhverfisáhrif svo koma megi í veg fyrir eða draga úr neikvæðum áhrifum starfseminnar með aðlögun á útfærslu vindorkuversins eða með mótvægisaðgerðum. Gera má ráð fyrir að umhverfismatið taki a.m.k. tvö ár.

Skipulag
Í Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007–2027 er ekki gert ráð fyrir vindorkuverum. Vinna við nýtt aðalskipulag er hafin og liður í þeirri vinnu er að taka afstöðu til virkjunarkostanna og staðsetningar þeirra. Kjósi sveitarstjórn að gera ráð fyrir vindorkuveri eða -verum þarf að skilgreina landið sem iðnaðarsvæði í aðalskipulagi. Áður en til útgáfu framkvæmdaleyfis kemur þarf svo að vinna deiliskipulag fyrir viðkomandi svæði, sem sýnir nánari staðsetningu vindtúrbína og annarra mannvirkja, legu vega og fleira.

Könnun á viðhorfi íbúa
Langanesbyggð hyggst kanna viðhorf íbúa til vindorkuvera í nóvember 2026. Könnunin er unnin í samstarfi við Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri.

Rammaáætlun
Gögnum um vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi var skilað til verkefnisstjórnar um rammaáætlun árið 2020 og wpd skilaði uppfærðum gögnum árið 2025. Gögnin hafa ekki verið tekin til efnislegrar meðferðar en hafa verið kynnt verkefnisstjórn og faghópum. Verkefnin eru meðal þeirra 27 vindorkuverkefna víða um land sem bíða afgreiðslu í 6. áfanga áætlunarinnar.  Verkefnisstjórn um rammaáætlun hefur það verkefni að gera tillögu að flokkun virkjunarkosta í orkunýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk. Fari virkjunarkostur í orkunýtingarflokk má gefa út virkjunarleyfi, að því gefnu að önnur skilyrði séu uppfyllt.

Upplýsingaefni frá þróunaraðila

Tímalína

Dagsetning

Skýring

Hlekkur

21.8.2026

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kveður upp úrskurð í máli wpd Ísland ehf. sem
kærði ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 22. apríl 2026 um að uppsetning tveggja vindtúrbína á Sauðaneshálsi í Langanesbyggð skuli sæta mati á umhverfisáhrifum

Úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála á uua.is

?.?.2026

wpd tilkynnir um að fallið hafi verið frá tilraunaverkefninu á Sauðaneshálsi.

wpd.is - Ákvörðun HMS um tilraunaverkefnið á Sauðaneshálsi

21.6.2026

Alþingi samþykkir breytingar á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun) . Breytingarnar fela í sér að vindorkumannvirki sem eru 30 m á hæð eða hærri eru felld undir lögin og þurfa að sæta flokkun í rammaáætlun.

Lög um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011

21.5.2026

wpd kærir ákvörðun HMS um umhverfismatsskyldu tilraunaverkefnis á þeim forsendum að ákvörðunin sé haldin efnislegum annmörkum og brjóti í bága við meðalhófsreglu.

Úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála á uua.is

22.4.2026

Skipulags-, umhverfis- og mannvirkjastofnun birtir ákvörðun sína um að uppsetning tveggja vindtúrbína á Sauðaneshálsi skuli sæta umhverfismati í skipulagsgátt.

Skipulagsvefsjá HMS, Mál nr. 93/2026, Ákvörðun um matsskyldu

15.4.2026

Skýrsla verkefnisstjóra SSNE í verkefni um innviðauppbyggingu í Langanesbyggð, „Stoðir atvinnu- og mannlífs í Langanesbyggð“, lögð fram á fundi sveitarstjórnar.

Fundargerð 57. fundar sveitarstjórnar Langanesbyggðar

7.4.2026

Skipulags-, umhverfis- og mannvirkjastofnun birtir álit sitt um matsáætlun wpd í skipulagsgátt.

Skipulagsvefsjá HMS, Mál nr. 1/2026

6.3.2026

Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna að íbúakönnun um hugmyndir um vindorkugarð á Brekknaheiði, uppbyggingu iðnaðar við Finnafjörð og tengd atriði

Fundargerð 51. fundar byggðarráðs

26.2.2026

Sveitarstjórn fjallar um umfjöllun skipulags- og umhverfisnefndar um fyrirspurn um matsskyldu tilraunaverkefnis á Sauðaneshálsi á 48. fundi skipulags- og umhverfisnefndar.

55. fundur sveitarstjórnar | Langanesbyggð

17.2.2026

Skipulagsnefnd fjallar um greinargerð vegna fyrirspurnar um matsskyldu tilraunaverkefnis wpd á Sauðaneshálsi í landi Hraunkots. Að áliti nefndarinnar hefði framkvæmdin veruleg áhrif á umhverfi og skipulag.

48. fundur skipulags- og umhverfisnefndar

17.2.2026

Skipulagsnefnd fjallar um greinargerð vegna fyrirspurnar um matsskyldu tilraunaverkefnis í vindorku á Sauðaneshálsi. Nefndin telur að framkvæmdin myndi hafa veruleg áhrif á umhverfi
og skipulag.

Fundargerð 48. fundar skipulags- og umhverfisnefndar

29.1.2026

Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti tillögur skipulags- og umhverfisnefndar að umsögn um matsáætlun wpd vegna vindorkuvera á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi. 

Fundargerð 54. fundar sveitarstjórnar Langanesbyggðar

28.1.2026

wpd heldur kynningu fyrir íbúa sveitarfélagsins á Þórshöfn um vindorkuáform á Brekknaheiði
og Sauðaneshálsi og um fyrirhugað tilraunaverkefni á Sauðaneshálsi.

Langanesbyggd.is - Auglýsing um íbúafund

20.1.2026

Skipulags- og umhverfisnefnd Langanesbyggðar fjallar um auglýsta tillögu að matsáætlun um vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi. Nefndin leggur áherslu á að í matinu verði tekið tillit til sjónarmiða sveitarfélagsins varðandi áhrif á landslag, óbyggð víðerni, nærsamfélag og framtíðarnýtingu svæðisins.

Fundargerð 50. fundar skipulagsnefndar

20.1.2026

wpd gefur út greinargerð vegna fyrirspurnar um matsskyldu til HMS

Greinargerð með fyrirspurn um matsskyldu vegna tilraunaverkefnis á Sauðaneshálsi

5.1.2026

Matsáætlun framkvæmdaraðila dagsett 11. desember 2025 birt til umsagnar í skipulagsgátt HMS. Í henni er gert ráð fyrir 36,7 km² þróunarsvæði með allt að 74 vindtúrbínum með uppsett
afl allt að 532,8 MW.

Auglýsing í Skipulagsvefsjá 5.1.2026

5.8.2025

wpd birtir greinargerð vegna fyrirspurnar um matsskyldu vegna tilraunaverkefnis á Sauðaneshálsi. Í greinargerðinni var gert ráð fyrir tveimur vindtúrbínum sem samanlagt myndu vera um 9,9 MW. 

wpd - Greinargerð vegna fyrirspurnar um matsskyldu tilraunaverkefnis á Sauðaneshálsi

5.8.2025

wpd birtir ítarlegt upplýsingaskjal um vindorkuhugmyndir á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi.
Í því er fjallað um sögu verkefnis, kynntar hugmyndir um skipulag vindorkuvers og tilraunaverkefni og um ferlið við umhverfismat og leyfisveitingar. Í skjalinu kemur fram að samið hafi verið við eiganda Hraunkots um leigu á landi og að samningaviðræður séu hafnar við aðra landeigendur, þar á meðal Jarðasjóð Langanesbyggðar.

wpd Ísland - Upplýsingaskjal fyrir vindorkuhugmyndir á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi

26.5.2025

wpd Ísland ehf. skilar uppfærðum gögnum um virkjunarhugmyndir á Sauðaneshálsi með nýrri uppröðun vindtúrbína til Orkustofnunar. Eftir sem áður er gert ráð fyrir 27 túrbínum og
194,4 MW uppsettu afli.

wpd Ísland - Upplýsingaskjal fyrir vindorkuhugmyndir á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi, bls. 8

8.-9.10.2024

wpd heldur íbúafundi um starfsemi fyrirtækisins og hugmyndir um virkjun vindorku á Sauðaneshálsi og Brekknaheiði.

Tilkynning um íbúafundi wpd í Þórsveri (30.9.2024)

11.11.2024

Fulltrúar í sveitarstjórn Langanesbyggðar heimsækja Pyhäjoki í Finnlandi, skoða vindorkugarð sem wpd reisti í sveitarfélaginu og funda með fulltrúum sveitarstjórnar og landeigendum á svæðinu.

Langanesbyggð sækir Finnland heim (15.11.2024)

20.6.2024

Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkir stefnu um uppbyggingu við Finnafjörð. Í stefnunni lýsir sveitarstjórn sig jákvæða fyrir tilraunaverkefni með uppsetningu tveggja vindtúrbína með minna en 10 MW uppsettu afli, sem og áframhaldandi þróun virkjunar vindorku í skynsamlegum skrefum.

Fundargerð 32. fundar sveitarstjórnar 20.7.2026

Vor 2024

Þróun vindorkukosta í Langanesbyggð hefst að nýju eftir hlé að beiðni sveitarstjórnar.

wpd Upplýsingaskjal fyrir virkjunarhugmyndir á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi, 2025 (bls. 4)

Vor 2023

Sveitastjórn Langanesbyggðar óskar eftir því við wpd að hægt sé á þróun á virkjunarhugmyndanna.

wpd Upplýsingaskjal fyrir virkjunarhugmyndir á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi, 2025 (bls. 4)

1.12.2023

Langanesbyggð og innviðaráðuneytið gera með sér samning um stuðning til ráðningar verkefnisstjóra í innviðaverkefni í sveitarfélaginu.

Tveggja ára samningur við ríkið vegna Finnafjarðar, RÚV 12.2.2024

Október 2022

wpd hefur vindmælingar með SODAR vindmælingartæki á Brekknaheiði.

wpd Upplýsingaskjal fyrir virkjunarhugmyndir á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi, 2025 (bls. 4)

8.9.2022

Erindi EFLU um leyfi til vindorkurannsókna í landi Staðarsels samþykkt á 4. fundi sveitar-
stjórnar Langanesbyggðar.

Fundargerð 4. fundar sveitarstjórnar 8. september 2022

Júlí 2022

wpd Tekur við þróun vindorkuhugmynda af EFLU.

wpd Upplýsingaskjal fyrir virkjunarhugmyndir á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi, 2025 (bls. 4)

17.11.2021

EFLA átti í viðræðum við landeigendur og Langanesbyggð og kynnti hugmyndir um virkjun vindorku í Langanesbyggð á íbúafundi ásamt fjárfestingarfélaginu Summu.

Auglýsing um íbúafund á vef Langanesbyggðar
Kynningarefni frá íbúafundi

1.3.2021

Skýrsla verkefnisstjórnar 4. áfanga rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða 2017-2021 gefin út. Langanesbyggð er skráð sem framkvæmdaraðili verkefna í sveitarfélaginu.

Skýrsla verkefnisstjórnar 4. áfanga rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða 2017-2021

17.9.2020

Vindorkukostir í Langanesbyggð dregnir til baka af Orkustofnun vegna breyttra krafna um gagnaskil.

Skýrsla verkefnisstjórnar 4. áfanga rammaáætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða 2017-2021, bls. 24

Vor 2020

Fimm virkjunarkostir í Langanesbyggð teknir til skoðunar í 4. áfanga rammaáætlunar og Langanesbyggð skráð sem framkvæmdaraðili. Kostirnir voru Brekknaheiði, Sauðanesháls, Langanesströnd, Viðvíkurheiði og Bakkaheiði.

Virkjunarkostir í rammaáætlun - ramma.is

8.3.2020

Langanesbyggð tilkynnir að sveitarfélagið muni í samstarfi við Vopnafjarðarhrepp, EFLU o.fl. leita eftir fjárstuðningi vegna skoðunar á kostum og ókostum fimm mögulegra vindorkuvirkjunarkosta í Langanesbyggð og eins í Vopnafjarðarhreppi í tengslum við áform um uppbyggingu hafnar í Finnafirði.

Kynning á hugmyndum um rannsóknir á vindmyllugörðum í Langanesbyggð (8.3.2020)

22.2.2020

EFLA gefur út lýsingu á staðháttum og tilhögun um 100 MV vindorkuvers á Sauðaneshálsi
vegna umfjöllunar í rammaáætlun 4. 

Sauðanesháls - Tilhögun virkjunarkosts R4333A, EFLA 2020

2019

EFLA, Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur hefja skoðun á möguleikum á vindorkuveri
á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi.

wpd Upplýsingaskjal fyrir virkjunarhugmyndir á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi, 2025 (bls. 4)

2.4.2013

Veðurstofa Íslands gerir úttekt á vindauðlindum á Íslandi. Lónafjörður og suðvesturhluti Langaness eru á meðal 14 svæða sem skoðuð voru sérstaklega.

Veðurstofa Íslands, "The wind energy potential of Iceland", 2013

     
Uppfært12. nóvember 2026
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?