48. fundur skipulags- og umhverfisnefndar
Fundur í skipulags- og umhverfisnefnd
48. fundur skipulags- og umhverfisnefndar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, þriðjudaginn 17. febrúar 2026. Fundur var settur kl. 14:00
Mætt voru: Hildur Stefánsdóttir formaður, Þorsteinn Vilberg Þórisson, Ina Leverköhne (á fjarfundi), Þorri Friðriksson og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Formaður spurði hvort gerð væri athugasemd við fundarboð – svo var ekki og fundur því settur.
Formaður fer fram á afbrigði frá dagskrá þar sem teknir eru inn 10. liður sem er beiðni frá Teiknistofunni Sniddu fh. Sólarsala um að fá að opna námur í landi Tungusels og liður 11 sem er ný merkjalýsing fyrir Eyrarveg 12 og kemur í stað eldri merkjalýsingar og lóðasamnings.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerð
1. Atvinnustefna Langanesbyggðar – lokaskjal.
01.1 Bókun sveitarstjórnar vegna atvinnustefnu
01.2 Bókun hafnarnefndar vegna atvinnustefnu
Óskað er efir umsögn nefndarinnar um lokaskjal atvinnustefnu. Hafnarnefnd minnir á mikilvægi hafnarinnar og að gerð verði heildstæð áætlun fyrir hafnirnar og tekið tillit til þess við gerð nýs aðalskipulags.
Bókun um afgreiðslu: Skipulagsnefnd hefur ekki athugasemdir við lokaskjal atvinnustefnu. Nefndin mun taka tillit til framtíð hafna og heildstæðrar áætlunar fyrir hafnir við gerð nýs aðalskipulags.
Samþykkt samhljóða.
2. Loftlagsstefna – erindi til sveitarfélaga frá 20.01.2026
02.1 Loftslagsstefna NE lokadrög des 2025
Lögð fram lokadrög að loftslagsstefnu NE sem starfshópur SSNE hefur unnið. Óskað er eftir athugasemdum og ábendingum frá sveitarfélaginu. Loftlagsstefna ásamt bókun nefndarinnar verður lögð fyrir sveitarstjórn til umfjöllunar.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin geir ekki athugasemdir við loftslagsstefnuna. Stefnan ásamt bókun nefndarinnar verður lögð fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
3. Upplýsingar frá Rarik vegna lagningar rafstrengs – Nýibær.
Lagt fram til kynningar.
4. Langanesbyggð – aðalskipulag áætlun frá „Landslagi“.
„Landslag“ hefur lagt fram áætlun um vinnu við nýtt aðalskipulag Langanesbyggðar ásamt kostnaðaráætlun.
Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd mælir með því að meðfylgjandi áætlun sem lögð var fram að undangenginni verðkönnun verði samþykkt af sveitarstjórn. Með áætluninni verður til nýtt aðalskipulag sameinaðs sveitarfélags 2027-2043.
Samþykkt samhljóða.
5. Ískarhús – breyting á hönnun.
Faglausn hefur lagt fram breytta tillögu að byggingu húss fyrir ískör og óskar eftir að málið verði tekið upp að nýju. Tillögunni er breytt með tilliti til bókunar nefndarinnar á síðasta fundi þar sem nefndin hafði samráð við Vegagerðina. Ný tillaga gerir ekki ráð fyrir að þekja verði rofin. Húsið er mjórra sem nemur 1,3 m þannig að fjarlægð frá bryggjukanti verður 13,7m
Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leiti og vísar því til byggingafulltrúa til endanlegrar afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða.
6. Bréf Skipulagsstofnunar vegna umsagnar um tilraunaverkefni wpd.
06.1 Tilraunaverkefni wpd á Sauðaneshálsi, fyrirspurn um matsskyldu.
06.2 Áhrifamat vatnshlota – tilraunaverkefni wpd á Sauðaneshálsi.
Wpd leggur fram greinargerð vegna fyrirspurnar um matsskyldu á tilraunaverkefni um 2 vindmyllur á Sauðaneshálsi um 5 km austan Þórshafnar í landi Hraunkots.
Bókun um afgreiðslu: Skipulagsnefnd hefur farið yfir greinargerð vegna fyrirspurnar um matsskyldu tilraunaverkefnis í vindorku á Sauðaneshálsi, sem felur í sér uppsetningu allt að tveggja vindtúrbína með samanlagt uppsett afl allt að 9,9 MW.
Skipulagsnefnd bendir á að fyrirhuguð framkvæmd er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag Langanesbyggðar 2007–2027, þar sem svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir framkvæmdasvæðið og yrðu breyting á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags forsenda frekari afgreiðslu málsins.
Nefndin tekur fram að þrátt fyrir að framkvæmdin sé skilgreind sem tilraunaverkefni er um að ræða mannvirki af umtalsverðri stærð og hæð, með áætlaðan rekstrartíma til langs tíma. Skipulagsnefnd telur því að framkvæmdin geti haft varanleg áhrif á skipulag, landslag og landnotkun á svæðinu.
Lagðir eru fram tveir valkostir sem eru ólíkir að hæð og umfangi, en endanlegt val á vindtúrbínum liggur ekki fyrir. Skipulagsnefnd telur að þessi óvissa torveldi mat á áhrifum framkvæmdarinnar, þar á meðal á ásýnd, hljóðvist og önnur umhverfisáhrif.
Fram kemur í greinargerð framkvæmdaraðila að framkvæmdin geti haft nokkuð neikvæð áhrif á ásýnd og landslag, vistgerðir og óbyggð víðerni. Skipulagsnefnd tekur undir að svæðið sé viðkvæmt að þessu leyti og að umfang framkvæmdarinnar gefi tilefni til varfærni.
Skipulagsnefnd bendir á að sveitarstjórn Langanesbyggðar hafi samþykkt stefnu um uppbyggingu við Finnafjörð þar sem lýst er jákvæðri afstöðu til afmarkaðra tilraunaverkefna í vindorku í tengslum við uppbyggingu hafnar- og iðnaðarsvæðis þar. Nefndin tekur fram að stefnan er stefnumótandi en breytir ekki lagalegum forsendum málsins né mati á fyrirhugaðri framkvæmd með hliðsjón af staðsetningu hennar, umfangi og mögulegum áhrifum á skipulag og landslag.
Með vísan til framangreinds telur skipulagsnefnd að fyrirhuguð framkvæmd geti haft í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfi og skipulag og leggur til að Skipulagsstofnun taki það til skoðunar við ákvörðun um matsskyldu framkvæmdarinnar.
Samþykkt samhljóða.
7. Hugmynd að byggingu 800-1000 m2 iðnaðarhúsnæðis á athafnasvæði á lóðum nr. 2 og 4 við Markholt.
07.1 Skipulag athafnasvæðis í dag.
07.2 Stærðir lóða á athafnasvæði.
Lagðar fram hugmyndir um byggingu 800 – 1000 m2 iðnaðarhúsnæðis við Markholt 2-4 þar sem gert er ráð fyrir að hluti húsnæðis verði leigður út til ýmissar starfsemi iðnaðarmanna og annarrar starfsemi.
Bókun um afgreiðslu: Skipulagsnefnd tekur vel í hugmyndirnar og fagnar þeim. Bent er á, að gera þarf minniháttar breytingu á deiliskipulagi til að sameina lóðir. Óskað er eftir fullmótuðum tillögum varðandi afgreiðslu byggingaleyfis og formlegri ósk um minniháttar breytingu á deiliskipulagi.
Samþykkt samhljóða.
8. Umsókn um hækkun á þaki Eyrarvegar 12 frá Faglausn.
Faglausn leggur fram tillögu um hækkun á þaki Eyrarvegar 12.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir breytinguna fyrir sitt leiti og vísar henni til byggingafulltrúa til afgreiðslu. Byggingafulltrúi mun kalla eftir nánari gögnum varðandi framkvæmdina.
Samþykkt samhljóða.
9. Tillaga að breyttu deiliskipulagi við Miðholt vegna byggingar 4 íbúða raðhúss.
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi við Miðholt. Breytingin felst í því að gert er ráð fyrir lóð og byggingareit fyrir 4 íbúða raðhús við Miðholt. Það er leigufélagið Brák sem standa mun að byggingunni.
Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að breytingin verði unnin skv. 1. mgr.43. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur til að húsið verði nr. 20, 22, 24 og 26 við götuna í samræmi við þá byggingu sem er á móti fyrirhuguðum byggingareit.
Samþykkt samhljóða.
10. Umsókn frá Sniddu Teikninstofu fh. Sólarsala til að opna námur í landi Tungusels.
Teiknistofan Snidda sækir um leyfi til að opna námur í landi Tungusels. Nánar um framkvæmdina í umsókn um leyfi.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir erindið fyrir sitt leiti.
Samþykkt samhljóða.
11. Merkjalýsing Eyrarvegur 3 og 12-12D sem verður Eyrarvegur 12. Einnig merkjalýsing fyrir Eyrarveg 5
Ný merkjalýsing fyrir Eyrarveg 12 þar sem lóðin er stækkuð og tekur nú við af eldri samningi um Eyrarveg 12. Merkjalýsingin tekur nú einnig til frystiklefa og Eyrarvergar 3. Þá er merkjalýsing fyrir Eyrarveg 5 sem er Hafnarhús.
Bókun um afgreiðslu: Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir nýja merkjalýsingu fyrir Eyrarveg 12 og Eyrarveg 5 samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Sveitarstjóra falið að skrá lýsinguna hjá HMS.
Samþykkt samhljóða.
12. Önnur mál.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 15:20.