Fara í efni

Opinn kynningarfundur um virkjunarhugmyndir í Langanesbyggð

Fréttir

Vindorkufyrirtækið wpd Ísland býður íbúum Langanesbyggðar á opinn kynningarfund þann 28. janúar frá kl. 17:15
Fundurinn verður haldinn í Þórsveri í félagsheimili Þórshafnar þar sem fulltrúar wpd Ísland munu kynna matsáætlun fyrir virkjunarhugmyndirnar Brekknaheiði og Sauðanesháls sem og matsskyldufyrirspurn fyrir tilraunaverkefni á Sauðaneshálsi.

Íbúar eru velkomnir í Þórsver í spjall kl. 16:45 en formleg kynning hefst kl. 17:15.

Sýnt verður frá kynningunni í streymi en skráning í streymið fer fram hér: https://forms.office.com/e/1DwNg3tju1 

eða í gegnum QR kóðann.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Kl. 16:45-17:15 Opið hús
Kl. 17:15 Kynning

Spurningum úr sal og af netinu verður svarað eftir kynninguna
Í boði verður kaffi og bakkelsi