Fara í efni

50. fundur skipulags- og umhverfisnefndar

09.04.2026 14:00

Fundur í skipulags- og umhverfisnefnd

50. fundur skipulags- og umhverfisnefndar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, fimmtudaginn 9. apríl 2026. Fundur var settur kl. 14:00

Mætt voru: Hildur Stefánsdóttir formaður, Ina Leverköhne, Þorsteinn Vilberg Þórisson, Þorri Friðriksson, Sigtryggur Brynjar Þorláksson og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Formaður spurði hvort gerð væri athugasemd við fundarboð – svo var ekki og fundur því settur.

Formaður óskaði eftir afbrigðum frá útsendri dagskrá og taka á dagskrá 2 liði undir önnur mál:
a) Ósk um heimild til niðurrifs á Beitarhöllinni
b) Beiðni um breytta skráningu á Hafnargötu 3 á Bakkafirði úr iðnaðarhúsnæði í íbúðarhús.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerð

1. Fundargerð 246 fundar Heilbrigðisnefndar NE frá 04.03.2026
Fundargerðin lögð fram

2 Staðarárvirkjun í Bakkafirði – breyting á aðalskipulagi – tillaga á vinnslustigi.
     02.1 Staðarárvirkjun í Bakkafirði deiliskipulag – greinargerð - tillaga á vinnslustigi.
     02.2 Staðarárvirkjun – yfirlitsuppdráttur.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin heimilar skipulagsaðila að leggja fram vinnslutillögu að deiliskipulagi og aðalskipulagsbreytingu til kynningar. Vinnslutillögurnar verða kynntar almenningi og hagsmunaaðilum skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga 123/2010 og 40. gr. sömu laga.

Samþykkt samhljóða.

3. Svarbréf frá byggingafulltrúa – umsókn um niðurrif á C hluta byggingar Grunnskólans á Þórshöfn ásamt því að fjarlægja byggingu D.
Byggingafulltrúi gerir ekki athugasemdir við fyrirhugað niðurrif fyrir sitt leiti.

Bréfið lagt fram.

4. Beiðni um byggingaleyfi fyrir viðbyggingu við Frystihús Ísfélagsins að Eyrarvegi 12 samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir erindið fyrir sitt leiti og vísar því til byggingafulltrúa til meðferðar og öflunar frekari gagna.

Samþykkt samhljóða..

5. Tillaga að deiliskipulagi fyrir þjónustu- og íbúðasvæði vi Langholt – skipulagslýsing.
     05.1 Þjónustu- og íbúðasvæði við Langholt - skýringamynd

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir skipulagslýsinguna og leggur til við sveitarstjórn að lýsingin verði kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010

Samþykkt samhljóða.

6. Deiliskipulag miðsvæðis við Bakkaveg og Vesturveg. Breyting á deiliskipulagi vegna Bakkavegar 11.
Lögð fram tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu fyrir Bakkaveg 11 vegna stækkunar á húsnæði slökkviliðs Langanesbyggðar. Um er að ræða stækkun á byggingarreit og hámarksbyggingamagni til að hægt sé að koma fyrir búnaði sem rúmast ekki innan núverandi húsnæðis.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að breytingin verði unnin skv. 2. mgr. 43. gr. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin er óveruleg og varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.

Samþykkt samhljóða.

7. Tunguárvirkjun í Þistilfirði – Samantekt umsagna og viðbrögð.
Breyting á aðalskipulagi – tillaga til kynningar á vinnslustigi. Deiliskipulag, greinargerð og skipulagsuppdráttur – tillaga til kynningar á vinnslustigi.
Samantekt umsagna og viðbrögð, ásamt umsögnum sem bárust vegna skipulagslýsingar, til skýringar. Vinnslutillaga vegna verkefnisins var auglýst frá 10. til 23. febrúar 2026. Umsagnir bárust frá Fiskistofu, Hafrannsóknarstofnun, Náttúrufræðistofnun, Náttúruverndarstofnun, Rarik, Veðurstofu Íslands, Norðurþingi, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Minjastofnun og Vegagerðinni – Norðursvæði. Sjá samantekt umsagna og viðbrögð.

Bókun um afgreiðslu: Skipulagsnefnd hefur farið yfir framkomnar umsagnir við vinnslutillögu og telur að unnt sé að halda áfram vinnu við skipulagið með hliðsjón af þeim athugasemdum sem fram hafa komið. Einnig þarf að taka fullt tillit til umsagna sem bárust á fyrra stigi málsins vegna skipulagslýsingar verkefnisins.

Samþykkt samhljóða.

8. Frágangur frystiklefa Ísfélagsins.
Við umfjöllun um byggingaleyfi til Ísfélags vegna frystiklefa á 29. fundi 24. júlí 2024 bókaði nefndin eftirfarandi m.a.:
Þessi bygging mun verða sú stærsta á Þórshöfn og mikilvægt að hún hafi jákvæð áhrif á ásýnd þorpsins, til dæmis má brjóta upp stóra veggjarfleti með timburklæðningu eða annarri aðlaðandi hönnun. Ekki koma fram í gögnum upplýsingar um lýsingu (ljóskastara) á byggingu og umhverfi hennar. Jákvætt væri ef sú lýsing mundi nýtast hafnarsvæðinu einnig.

Í svari Ísfélags kom eftirfarandi fram:
Svar um lýsingu: Almennt gildir að ljós verða yfir keyrslu‐ og gönguhurðum auk aðkomu‐ og umferðaleiða við húsið. Lýsingarhönnuðir Eflu munu fara yfir lýsingarmál og þá einnig skoða lýsingu á hafnarsvæði austan við frystigeymslu m.t.t. lýsingar á hafnarsvæði. Ekkert er því til fyrirstöðu að setja ljós á austurhlið frystigeymslu sem myndi nýtast hafnarsvæði. Lýsingarhönnuðir Eflu munu fara yfir lýsingarmálin með Ísfélagi hf. og starfsmönnum hafnarinnar á Þórshöfn.

Bókun um afgreiðslu: Skipulags- og umhverfisnefnd minnir á þau samskipti sem hér er lýst og óskar eftir nánari upplýsingum um hvenær farið verði í að lýsa upp svæðið eins og kemur fram í svarinu.

Samþykkt samhljóða.

9. Álit – vindorkuverk á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi – frá HMS.
Fyrir liggur álit Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um matsáætlun vegna fyrirhugaðra vindorkuvera á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi. Nefndin leggur áherslu á að við vinnslu umhverfismatsskýrslu verði tekið tillit til sjónarmiða sveitarfélagsins, einkum varðandi áhrif á landslag, óbyggð víðerni, nærsamfélag og framtíðarnýtingu svæðisins. Jafnframt er lögð áhersla á virkt samráð við sveitarfélagið á áframhaldandi stigum málsins.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjóra (skipulagsráðgjafa Langanesbyggðar) er falið að fylgjast með framvindu málsins og upplýsa nefndina þegar frekari gögn liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða

10. Önnur mál.
a) Niðurrif á „Beitarhöllinni“. Óskað er heimildar nefndarinnar til að rífa það sem eftir stendur af Beitarhöllinni að Eyrarvegi 1 vegna fokskemmda sem urðu í óveðri aðfararnótt 7. Apríl. Húsið er illa farið og slysahætta af því eins og það stendur í dag.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir fyrir sitt leiti niðurrif Beitarhallarinnar við Eyrarveg 1.

Samþykkt samhljóða.

b) Beiðni um breytta skráningu á Hafnargötu 3, Bakkafirði.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin felur sveitarstjóra og skipulagsráðgjafa að breyta skráningu hússins úr iðnaðarhúsnæði í íbúðarhúsnæði.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl. 14:50.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?