55. fundur sveitarstjórnar
Fundur í sveitarstjórn
55. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, fimmtudaginn 26. febrúar 2026. Fundur settur kl. 16:00.
Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson, Halldóra J. Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson, Halldór Rúnar Stefánsson, Margrét Guðmundsdóttir, Sigríður Friðný Halldórsdóttir, Mirjam Blekkenhorst, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Svala Sævarsdóttir sem ritaði fundargerð.
Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og því gengið til dagskrár.
Oddviti leggur til að liður 10 um loftslagsstefnu verði felldur úr dagskrá þar sem fjallað var um lokadrög að loftslagsstefnu á síðasta fundi og í þeim er ekki tekið tillit til bókunar sem þá var gerð.
Samþykkt samhljóða.
D a g s k r á
1. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 992 frá 23.01.2026
2. Fundargerð stjórnar SSNE nr. 80 frá 05.02.2026
3. Fundargerð 50. fundar byggðaráðs 12.02.2026
03.01 Bókun byggðaráðs vegna byggingar grunnskólans.
03.02 Bókun velferðar- og fræðslunefndar vegna 50. fundar byggðaráðs.
4. Fundargerð 48. fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 17.02.2026
04.1 wpd tilraunaverkefni Sauðaneshálsi – matsskyld fyrirspurn
04.2 Fylgiskjal – Áhrifamat vatnshlota.
04.3 Bókun skipulags- og umhverfisnefndar vegna tilraunaverkefnis.
04.4 Langanesbyggð – áætlun um aðalskipulag
04.5 Bókun skipulags- og umhverfisnefndar um gerð aðalskipulags.
5. Fundargerð 34. fundar velferðar- og fræðslunefndar frá 16.02.2026
6. Fundargerð 24. fundar atvinnu- og nýsköpunarnefndar frá 17.02.2026
7. Fundargerð 18. fundar hafnarnefndar frá 02.02.2026
07.1 Bókun hafnarhefndar vegna Samgönguáætlunar.
07.2 Bókun hafnarnefndar vegna Atvinnustefnu.
8. Skýrsla um stjórnsýsluskoðun 2025 frá KPMG
9. Tillaga sveitarstjórnar um sérstök skilyrði vegna byggðakvóta. Staðfesting ráðuneytis.
10. Loftslagsstefna erindi til sveitarfélaga.
10.1 Loftslagsstefna NE – lokadrög desember 2025
11. Skýrsla sveitarstjóra
Fundargerð
1. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 992 frá 23.01.2026
Fundargerðin lögð fram.
2. Fundargerð stjórnar SSNE nr. 80 frá 05.02.2026
Fundargerðin lögð fram.
3. Fundargerð 50. fundar byggðaráðs 12.02.2026
03.01 Bókun byggðaráðs vegna byggingar grunnskólans.
03.02 Bókun velferðar- og fræðslunefndar vegna 50. fundar byggðaráðs.
Byggðaráð leggur til í bókun sinni að endurbætur fari fram á A og B hluta ásamt anddyri skólans. Jafnframt verði hafinn undirbúningur að c.a. 800 m2 nýbyggingu, C hluti rifinn og D hluti fjarlægður. Framkvæmdir verði stilltar af innan fjárhagsáætlunar. Gert er ráð fyrir 250 m.kr. fjárveitingu sveitarsjóðs til framkvæmdarinnar á fjárhagsáætlun 2026.
Bókun um afgreiðslu: Sveitastjórn staðfestir hér með bókun byggðarráðs. Fjárveitingar eru innan fjárhagsáætlunar 2026.
Samþykkt samhljóða.
4. Fundargerð 48. fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 17.02.2026
04.1 wpd tilraunaverkefni Sauðaneshálsi – matsskyld fyrirspurn
04.2 Fylgiskjal – Áhrifamat vatnshlota.
04.3 Bókun skipulags- og umhverfisnefndar vegna tilraunaverkefnis.
04.4 Langanesbyggð – áætlun um aðalskipulag
04.5 Bókun skipulags- og umhverfisnefndar um gerð aðalskipulags.
Liður 04.1 – 04.3 Lögð fram matsskyld fyrirspurn varðandi tilraunaverkefni wpd á Brekknaheiði.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn tekur undir bókun skipulagsnefndar en þar segir: Skipulagsnefnd hefur farið yfir greinargerð vegna fyrirspurnar um matsskyldu tilraunaverkefnis í vindorku á Sauðaneshálsi, sem felur í sér uppsetningu allt að tveggja vindtúrbína með samanlagt uppsett afl allt að 9,9 MW.
Skipulagsnefnd bendir á að fyrirhuguð framkvæmd er ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag Langanesbyggðar 2007–2027, þar sem svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir framkvæmdasvæðið og yrðu breyting á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags forsenda frekari afgreiðslu málsins.
Nefndin tekur fram að þrátt fyrir að framkvæmdin sé skilgreind sem tilraunaverkefni er um að ræða mannvirki af umtalsverðri stærð og hæð, með áætlaðan rekstrartíma til langs tíma. Skipulagsnefnd telur því að framkvæmdin geti haft varanleg áhrif á skipulag, landslag og landnotkun á svæðinu.
Lagðir eru fram tveir valkostir sem eru ólíkir að hæð og umfangi, en endanlegt val á vindtúrbínum liggur ekki fyrir. Skipulagsnefnd telur að þessi óvissa torveldi mat á áhrifum framkvæmdarinnar, þar á meðal á ásýnd, hljóðvist og önnur umhverfisáhrif.
Fram kemur í greinargerð framkvæmdaraðila að framkvæmdin geti haft nokkuð neikvæð áhrif á ásýnd og landslag, vistgerðir og óbyggð víðerni. Skipulagsnefnd tekur undir að svæðið sé viðkvæmt að þessu leyti og að umfang framkvæmdarinnar gefi tilefni til varfærni.
Skipulagsnefnd bendir á að sveitarstjórn Langanesbyggðar hafi samþykkt stefnu um uppbyggingu við Finnafjörð þar sem lýst er jákvæðri afstöðu til afmarkaðra tilraunaverkefna í vindorku í tengslum við uppbyggingu hafnar- og iðnaðarsvæðis þar. Nefndin tekur fram að stefnan er stefnumótandi en breytir ekki lagalegum forsendum málsins né mati á fyrirhugaðri framkvæmd með hliðsjón af staðsetningu hennar, umfangi og mögulegum áhrifum á skipulag og landslag.
Með vísan til framangreinds telur skipulagsnefnd að fyrirhuguð framkvæmd geti haft í för með sér umtalsverð áhrif á umhverfi og skipulag og leggur til að Skipulagsstofnun taki það til skoðunar við ákvörðun um matsskyldu framkvæmdarinnar.
Til máls tóku Mirjam og Júlíus sem lagði til eftirfarandi breytingartillögu á niðurlagi tillögunnar:
„Með vísan til framangreinds telur sveitarstjórn að fyrirhuguð framkvæmd hafi í för með sér áhrif á umhverfi og skipulag og leggur til að Skipulagsstofnun taki það til skoðunar við ákvörðun um matsskyldu framkvæmdarinnar“.
Breyting samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Liður 04.4 – 04.5 Lögð fram áætlun um gerð aðalskipulags fyrir Langanesbyggð 2027-2042 ásamt kostnaðaráætlun.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn felur sveitarstjóra í samvinnu við umhverfis- og skipulagsnefnd og skipulagsfulltrúa að semja við „Landslag“ um endurskoðun aðalskipulags. Samkvæmt tímaáætlun er gert ráð fyrir að ný sveitarstjórn geti einnig lagt fram forsendur og að frumdrög liggi þá fyrir í ágúst – október 2026.
Vakin er athygli á að í þeirri áætlun sem lögð er fram er væntanlega misritað í upphafi, Skeggjastaðarhreppur þar sem standa á líklega Svalbarðshreppur.
Samþykkt samhljóða.
5. Fundargerð 34. fundar velferðar- og fræðslunefndar frá 16.02.2026
Velferðar- og fræðslunefnd bókaði um byggingaráform Grunnskólans ásamt því að skólastjóri lagði fram bókun.
Sveitarstjórn þakkar skólastjóra fyrir framlagaða bókun og brýninguna um að gera vel. Vísar efni bókunarinnar annars til verkefnahóps um endurbætur.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tók Sigríður Friðný.
6 Fundargerð 24. fundar atvinnu- og nýsköpunarnefndar frá 17.02.2026
Sveitarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi skoðunarstöð bifreiða á Þórshöfn sem tekið var á dagskrá undir „Önnur mál“ á fundinum.
Fundargerðin lögð fram.
Til máls tóku Mirjam Blekkenhorst og Björn Lárusson.
7. Fundargerð 18. fundar hafnarnefndar frá 02.02.2026
07.1 Bókun hafnarnefndar vegna samgönguáætlunar
07.2 Bókun hafnarnefndar vegna atvinnustefnu
Hafnarnefnd tekur undir bókun byggðaráðs vegna samgönguáætlunar.
Fundargerðin lögð fram.
8. Skýrsla um stjórnsýsluskoðun 2025 frá KPMG
Engar nýjar ábendingar vegna 2025. Bókun um álagningaprósentur fasteignaskatta. Ekki hefur verið brugðist við ábendingunni. Prósentur voru ekki bókaðar í fundargerðir 14 desember 2023, 12 desember 2024 eða 11 desember 2025.
Skýrslan lögð fram.
9. Tillaga sveitarstjórnar um sérstök skilyrði vegna byggðakvóta
Vísað er til tillögu sveitarstjórnar um sérstök skilyrði (sérreglur) vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025/2026. Að lokinni kynningu tillögunnar á vef ráðuneytisins og yfirferð fyrirliggjandi gagna hefur ráðuneytið tekið málið til efnislegrar meðferðar. Með hliðsjón af framkomnum rökstuðningi og aðstæðum í viðkomandi byggðarlagi fellst ráðuneytið á framlagðar tillögur sveitarstjórnar. Formlegt bréf ráðuneytisins um niðurstöðuna er meðfylgjandi.
Auglýsing um sérreglur verður send Stjórnartíðindum til birtingar og að því loknu verður Fiskistofu falið að auglýsa byggðakvóta til umsóknar í samræmi við gildandi reglur og staðfestar sérreglur.
Bréf ráðuneytisins lagt fram.
10. Loftslagsstefna, erindi til sveitarfélaga.
10.1 Loftslagsstefna NE – lokadrög desember 2025
Liður felldur niður
11. Skýrsla sveitarstjóra
Hr. oddviti og sveitarstjórnarfulltrúar
Allt frá því að reglugerð 803/2023 um meðferð úrgangs var sett hefur verið unnið að endurskipulagningu sorpmála í Langanesbyggð. Víða hefur verið leitað fanga og vandað til við undirbúning enda fáar fyrirmyndir og mörg mistök gerð í öðrum sveitarfélögum sem við lærðum af. Nú liggur fyrir áætlun um innleiðingu þessara mála sem í stórum dráttum verður þannig að við hvert heimili verða 3 tunnur, ein fyrir pappa og pappír, ein fyrir plast og ein fyrir óflokkaðan úrgang. Lífrænum úrgangi verður safnað í lokuð ílát sem geta verið innan dyra og settar við sorptunnur á þeim degi sem hirt er samkvæmt sorpdagatali. Megin tilgangurinn er að við greiðum ekki með sorpmálum eins og við höfum gert á undanförnum árum allt frá 20 til 40 milljónir króna árlega. Sorpgjöld voru í nokkur ár hækkuð langt umfram aðrar gjaldskrár sem dugði ekki til. Innan skamms hefst innleiðing nýs kerfis og verða íbúar upplýstir jafnóðum um framgang mála.
Upphaflegar áætlanir frá 2023 hafa tekið miklum breytingum, sorphús stækkað úr 350 fermetrum í 520 fermetra, lóðin stækkuð og reynt að finna einfalt og gott kerfi miðað við reynslu annarra sveitarfélaga sem var tímafrek vinna. Hingað til nemur kostnaður við endurskipulagninguna með húsi og undirbúningi um 190 milljónum króna á þremur árum. Eftir er að ganga frá lóð og malbika auk kaupa á nokkrum tækjum og endanlegur kostnaður verður að líkindum um 280 milljónir króna. Kröfur í úrgangsmálum með upptöku hringrásarhagkerfis, hafa aukist gífurlega og nær öll sveitarfélög hafa þurft að leggja í miklar fjárfestingar sem of oft hafa nýst illa og þurft í sumum tilfellum að byrja upp á nýtt. Þess vegna höfum við beðið þolinmóð og fylgst grannt með og þess vegna hefur þetta tekið svo langan tíma. Þess má geta vegna talna sem birst hafa að við höfum greitt Faglausn um 20 milljónir króna fyrir hönnun, teikningar, eftirlit, byggingastjórnun, verkumsjón og samninga eða um 11% af heildarkostnaði en sá kostnaður er jafnan í slíkum verkum um 12-18% af byggingakostnaði hjá ríki og sveitarfélögum.
Nú hillir undir samning við leigufélagið Brák um byggingu 4 íbúða raðhúss við Miðholt þar sem verða tvær þriggja herbergja íbúðir og tvær tveggja herbergja íbúðir. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í vor og að þeim ljúki fyrir næstu áramót. Þá hafa verið byggðar 13 íbúðir á Þórshöfn á árunum 2023-2026 en það var eitt af meginmarkmiðum sveitarstjórnar að fjölga íbúðum.
Núna standa yfir samningaviðræður við Björgunarsveitina um byggingu nýs húss undir starfsemina sem gæti falið í sér að sveitarfélagið kaupi á móti þau hús sem nú hýsa starfsemi sveitarinnar. Vonandi finnst farsæl lausn fyrir báða aðila fyrirhugaðs samnings. Áður hafa þreifingar í átt sér stað og ýmsar hugmyndir skotið upp kollinum en nú færist vonandi skriður á málið.
Hafnarstjóri, hafnarvörður og oddviti áttu góðan fund með umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis um framlag ríkisins til þeirra framkvæmda sem við leggjum áherslu á að farið verði í sem fyrst við höfnina. Þar er fyrst og fremst um að ræða nýja aðkomu að höfninni frá Fjarðarvegi sem verður mun öruggari en sú sem nú er á krossgötum og bygging nýrrar trébryggju meðfram fyllingunni. Þar sem ekki er um stórar upphæðir að ræða voru undirtektir góðar. Lenging austur-vesturgarðs er á áætlun að byrji 2029 til 2030. Lögð var áhersla á að flýta þeirri framkvæmd.
Hópur sem vinnur að endurbyggingu og viðgerðum á skólanum vinnur hörðum höndum við að undirbúa endurbyggingu nyrstu og elstu byggingarinnar (svokallaða A og B bygginga ásamt anddyri). Þá er unnið að hönnun nýbyggingar í stað þeirrar byggingar sem kölluð hefur verið C bygging í miðjunni. Þetta var samþykkt á síðasta fundi byggðaráðs 12. febrúar. Farið var í greiðslumat vegna þessara framkvæmda og stóðst sveitarfélagið það mat án athugasemda en engu að síður verður þetta verkefni mikil áskorun fyrir okkur. Bjartsýnustu vonir eru að hægt verði að taka í notkun nyrstu bygginguna í haust og losa þar með skólahald úr Þórsveri. Allar tillögur verða lagðar fyrir byggðaráð þar sem fjárveiting á þessu ári til þessa verkefnis er á fjárhagsáætlun og eins og áður segir stóðumst við greiðslumatið.
Á næstu mánuðum mun ég leggja áherslu á að ljúka við eða í það minnsta koma í farveg málum sem hafa verið á mínu borði þar sem kosningar fara í hönd um miðjan maí og ný sveitarstjórn verður kosin. Það eru mörg mál sem ég hefði viljað koma í höfn og erfitt að skilja við hálfnuð verk.
Við höfum tekið upp ýmsar bættar vinnureglur sem vonandi skila sér til næstu sveitarstjórnar s.s. að láta minni- og meirihluta njóta jafnræðis við undirbúning og fundi sveitarstjórnar með því að senda tímanlega út dagskrá og tillögur að bókunum til oddvita beggja lista, þannig að allir sitji við sama borð við undirbúning funda.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:45