Fara í efni

54. fundur sveitarstjórnar

29.01.2026 16:00

Fundur í sveitarstjórn

54. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, fimmtudaginn 29. janúar 2026. Fundur settur kl. 16:00.

Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson, Halldóra J. Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson, Þórarinn J. Þórisson, Sigríður Friðný Halldórsdóttir, Hulda Kristín Baldursdóttir, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki.

D a g s k r á

1. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 990 frá 05.12.2025
2. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 991 frá 12.12.2025
3. Fundargerð stjórnar SSNE nr. 79 frá 08.01.2026
4. Fundargerð 49. fundar byggðaráðs frá 13.01.2026
     04.1 Innviðaráðun. 18.12.2025 - Úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025-2026
     04.2 Tillögur Langanesbyggðar að sérstökum skilyrðum fyrir úthlutun 2025-2026
     04.2.1 Bókun byggðaráðs vegna sérstakra skilyrða fyrir úthlutun byggðakvóta.
5. Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 20.01.2026
     05.1 Marsáætlun Brekknaheiði Sauðanesháls – vindorkuver
     05.1.1 Skipulagsstofnun – umsagnarbeiðni um matsáætlun.
     05.1.2 Bókun skipulags- og umhverfisnefndar vegna matsáætlunar um vindorkuver.
     05.2 Tillaga sveitarstjóra um byggingu eiguíbúða við Miðholt 12-18
     05.2.1 Staðfesting um stofnframlag sveitarfélags.
     05.2.2 Bókun skipulags- og umhverfisnefndar vegna tillögu um byggingu leiguíbúða.
6. Fundargerð 33 fundar velferðar- og fræðslunefndar frá 21.01.2026
7. Fundargerð 19. fundar stjórnar Jarðasjóðs frá 22.01.2026
8. Húsnæðisáætlun Langanesbyggðar – endurskoðun fyrir 2026
9. Gátlisti – fjölbreyttari sjónarmið í sveitarstjórnum á Íslandi – frá Jafnréttisstofu.
10. Atvinnustefna Langanesbyggðar – lokaskjal.
11. Erindi til sveitarfélaga – drög að lofslagsstefnu
     11.1 Lokadrög að loftslagsstefnu Norðurlands Eystra
12. Umsögn um samgönguáætlun 2026-2040 og aðgerðaráætlun 2026-2030
     12.1 – 12.5 Fylgiskjöl vegna umsagnar
13. Erindi frá Þorrablótsnefnd
14. Skýrsla sveitarstjóra

Fundargerð

1. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 990 frá 05.12.2025
Fundargerðin lögð fram.

2. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 991 frá 12.12.2025
Fundargerðin lögð fram.

3. Fundargerð stjórnar SSNE nr. 79 frá 08.01.2026
Fundargerðin lögð fram.

4. Fundargerð 49. fundar byggðaráðs frá 13.01.2026  
     04.1 Innviðaráðun. 18.12.2025 - Úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025-2026.
     04.2 Tillögur Langanesbyggðar að sérstökum skilyrðum fyrir úthlutun 2025-2026.
     04.2.1 Bókun byggðaráðs vegna sérstakra skilyrða fyrir úthlutun byggðakvóta.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir tillögu að sérstökum skilyrðum fyrir úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 (sjá meðfylgjandi fsk. 04.2). Jafnframt mótmælir sveitarstjórn Langanesbyggðar þeirri skerðingu sem virðist ætla að verða varanleg fyrir Þórshöfn þar sem kvótinn var skertur á fiskveiðiárinu 2024/2025 úr 102 tonnum í 33.

Samþykkt samhljóða.

5. Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 20.01.2026
Liður 05.1
     05.1 Matsáætlun Brekknaheiði Sauðanesháls – vindorkuver.
     05.1.1 Skipulagsstofnun – umsagnarbeiðni um matsáætlun.
     05.1.2 Bókun skipulags- og umhverfisnefndar vegna matsáætlunar um vindorkuver.
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn um matsáætlun vegna hugsanlegrar vindorkuvirkjunar á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi.

Til máls tóku: Sigríður, Þórarinn.

Bókun um afgreiðslu 05.1: Sveitafélagið Langanesbyggð vekur athygli Skipulagsstofnunar á eftirfarandi atriðum:

A) Skipulagsnefnd Langanesbyggðar hefur farið yfir tillögu að matsáætlun fyrir vindorkuvirkjun á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi. Um er að ræða mjög umfangsmikla framkvæmd, allt að 74 vindmyllur með allt að 210 m heildarhæð og allt að 532,8 MW uppsett afl, í um 3,5 km fjarlægð frá Þórshöfn. Með hliðsjón af stærð framkvæmdarinnar, staðsetningu hennar á opnu heiðasvæði og mögulegum langtímaáhrifum telur nefndin að gera verði ríkar kröfur til matsáætlunar og umhverfismats.
Svæðið er skilgreint sem hluti af óbyggðum víðernum og landslagsgerð Langaness. Nefndin telur að áhrif allt að 210 m hára mannvirkja á slíkt landslag geti verið veruleg og óafturkræf. Því telur nefndin að umhverfismat þurfi að byggja á víðtækari sjónrænum greiningum en fyrirliggjandi matsáætlun gerir ráð fyrir, þar á meðal hvað varðar upplifun víðerna, fjarsýni (sjónmengun), myrkurgæði (ljósamengun) og ásýnd frá þéttbýli, helstu samgöngu- og ferðaleiðum og lykilútsýnisstöðum.

B) Þá vill Sveitastjórn benda á stefnumörkun sem samþykkt var í sveitastjórn þann 20. júní 2024 um uppbyggingu í Finnafirði. En sú framkvæmdarmats áætlun sem hér er óskað umsagnar um hefur snerti punkt við þá stefnu.

https://www.langanesbyggd.is/static/files/frettir/2024/14.1-stefna-sveitarstjornar-langanesbyggdar-um-uppbyggingu-ad-finnafirdi_hreint.pdf 

C) Þau atriði sem við viljum ennfremur benda á er að umfang framkvæmda þarf að ávarpa í umhverfismati og leggjum við til að umhverfismat innihaldi mismunandi sviðsmyndir framkvæmda;
1. Athugað verði áhrif mismunandi hæðar á vindrellum, eða þrjár turnhæðir eða 80, 100 og 120 metrar.
2. Athugað verði áhrif mismunandi fjölda af vindrellum á framkvæmdarsvæðinu, eða t.d. 20, 40 og 70 rellur.
3. Athugað verði mismunandi fjarlægðir vindrellna frá þéttbýli eða sem svarar t.d. 3,5 km, 5,5, km og 6,5 km.
4. Athugað verði áhrif þess að vindrellum séu ekki staðsettar norðar í landi en sem samsvarar stefnu frá Þórshöfn í Hleiðólfsfjall.
5. Athugað verði áhrif þess að vindrellur séu staðsettar með undirstöðu í landi undir 200 m hæð.

Varðandi myndatökustaði sem fram koma í töflu 4,3 gerum við eftirfarandi tillögur og leiðréttingar.
Nr. 5, Hér er væntanlega átt við útsýnisskífu á Gunnarsstaðaás.
Nr. 12 Hér er væntanlega átt við Vesturheiðakofa í Tunguselsheiði.

Þá gerum við tillögu að 4 myndatökustöðum til viðbótar til gerðar ásýndarmynda.
1. Frá hæsta punkti við Skálavatn á Langanesi
2. Frá Skoruvíkurbjargi
3. Sjónarhól við Hávarðsstaði í Hvammsheiði
4. Krossavík

Þá bendum við á að umhverfismats skýrsla þarf að innhalda áhrif á samfélag og framkvæma þarf viðhorfskönnun á meðal íbúa Langanesbyggðar til að meta viðhorf þeirra til slíkrar framkvæmdar.
Þá bendir sveitastjórn skipulagsstofnun á að sveitastjórn Langanesbyggðar hefur um nokkuð skeið beitt sér mjög fyrir stofnun Þjóðgarðs á utanverðu Langanesi og ávarpa þarf áhrif framkvæmdarinnar á þá möguleika.

Samþykkja bókun: Sigurður, Halldóra og Júlíus. Sitja hjá: Sigríður, Þórarinn og Hulda.

Liður 05.2 
     05.2 Tillaga sveitarstjóra um byggingu leiguíbúða við Miðholt 12-18.
     05.2.1 Staðfesting um stofnframlag sveitarfélags.
     05.2.2 Bókun skipulags- og umhverfisnefndar vegna tillögu um byggingu leiguíbúða.
Sveitarstjóri leggur fram tillögu um að gengið verði til samninga við leigufélagið Brák um byggingu fjögurra íbúða raðhúss við Miðholt. Um er að ræða tvær tveggja herbergja íbúðir um 70m2 og tvær þriggja herbergja íbúðir um 90m2. Staðfesting á stofnframlagi hefur verið send HMS með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar. Stofnframlag sveitarfélagsins er 24.503.542.- en að frádregnum gatnagerðargjöldum, tengigjöldum, byggingaleyfisgjöldum og kostnaði við lóð er beint framlag sveitarfélagsins kr. 10.629.929.- Gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið til útleigu undir lok ársins 2026?

Til máls tóku: Sveitarstjóri, oddviti.

Bókun um afgreiðslu 05.2: Sveitarstjórn heimilar sveitarstjóra að ganga til samninga við leigufélagið Brák um byggingu hússins á grundvelli fyrirliggjandi gagna um stofnframlag sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

6. Fundargerð 33. fundar velferðar- og fræðslunefndar frá 21.01.2026
Fundargerðin lögð fram.

7. Fundargerð 19. fundar stjórnar Jarðasjóðs frá 22.01.2026
Fundargerðin lögð fram.

8. Húsnæðisáætlun Langanesbyggðar – endurskoðun fyrir 2026
Á hverju ári fer fram endurskoðun á húsnæðisáætlunum hvers sveitarfélags. Helsta forsendan er spá sveitarfélagsins um þróun mannfjölda með lágspá, miðspá og háspá. Út frá mannfjöldaþróun reiknast húsnæðisþörf að frádregnum þeim íbúðum sem þegar eru í byggingu eða hafa verið byggðar á árinu á undan. Í húsnæðisáætlun eru skoðaðir flokkar húsnæðis, innviðir og aldursskipting og borið saman við mannfjöldaþróun og húnsæðisþörf.

Til máls tóku: Sveitarstjóri, oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir framkomna húsnæðisáætlun, endurskoðun fyrir 2026.

Samþykkt samhljóða.

9. Gátlisti – fjölbreyttari sjónarmið í sveitarstjórnum á Íslandi – frá Jafnréttisstofu.
Jafnréttisstofa hefur sent frá sér meðfylgjandi gátlista til sveitarstjórna.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn felur sveitastjóra að koma bæklingnum fyrir á haganlegum stað á heimasíðu til upplýsingar eða vísa til efni hans á heppilegan hátt þar sem efni hans er holl áminning.

Samþykkt samhljóða.

10. Atvinnustefna Langanesbyggðar 2026-2030 – lokaskjal.
Eftir yfirferð í nefndum og ráðum sveitarfélagsins liggur fyrir lokaútgáfa af atvinnustefnu fyrir Langanesbyggð.

Til máls tóku: Oddviti, Sigríður, sveitarstjóri, oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir framkomna atvinnustefnu og vísar henni til nefnda sveitarfélagsins vegna framkvæmdar þeirra verkefna sem koma fram í atvinnustefnunni.

Samþykkt samhljóða.

11. Erindi til sveitarfélaga – drög að lofslagsstefnu
     11.1 Lokadrög að loftslagsstefnu Norðurlands Eystra.
SSNE, sem stóð að gerð loftslagsskýrslunnar, óskar eftir því að fjallað verði um stefnuna í sveitarstjórn og óskar jafnframt eftir athugasemdum og/eða ábendingum við hana.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn fagnar því að fyrir liggi lokadrög að Loftslagsstefnu Norðurlands eystra og hefur ekki athugasemdir við efni hennar en kemur með eftirfarandi ábendingu: Í kaflanum Landnotkun er markmið 1 sett 50% árið 2028, það er fullkomlega óraunhæft, réttar væri að hafa það 2030 eða 2032.

Samþykkt samhljóða.

12. Umsögn um samgönguáætlun 2026-2040 og aðgerðaráætlun 2026-2030  
     12.1 Fsk. 1 Loftmynd af hafnarsvæðinu fyrir breytingu.
     12.2 Fsk. 1a Yfirlitsmynd fyrir framkvæmdir.
     12.3 Fsk. 3 Gildandi deiliskipulag hafnarinnar á Þórshöfn 2024.
     12.4 Fsk. 4 Þórshöfn – landanir gögn.
     12.5 Fsk. 5 Myndir – höfnin fullnýtt.
Á Alþingi er nú fjallað um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt 5 ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030. Frestur til að skila inn umsögn er 9. febrúar áður en önnur umræða um áætlunina fer fram. Hjálagt eru drög að umsögn um áætlunina.

Til máls tóku: Sveitarstjóri, oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjóra er falið að koma umsögninni á framfæri við þingmenn kjördæmisins og Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.

Samþykkt samhljóða.

13. Erindi frá Þorrablótsnefnd.
Þorrablótsnefnd leggur fram erindi um kaup á búnaði og tækjum fyrir kr. 300 þús.

Til máls tóku: Sveitarstjóri, oddviti, Þórarinn.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir að veita umbeðna upphæð til kaupa á búnaði og tækjum.

Samþykkt samhljóða.

14. Skýrsla sveitarstjóra

Hr. Oddviti og sveitarstjórnarfulltrúar

Sú ákvörðun var tekin vegna þeirra skemmda sem komu í ljós vegna myglu í grunnskólanum að fara í frekari rannsóknir á byggingum skólans og einblína á þann hluta sem mestar líkur væru á að hægt væri að gera við. Þetta voru þau skilaboð sem við fengum frá íbúafundinum, það er, að rannsaka frekar.

Athyglin beindist fyrst og fremst að elsta hluta skólans þar sem farið var í umfangsmiklar viðgerðir árið 2016. Einu áhyggjurnar voru að þar mældist, með einfaldri mælingu töluverður raki undir gólfum af ástæðum sem ekki eru kunnar. Því var ákveðið að skoða það nánar. Settir voru niður hlutfallsrakamælar í gólfin til að sjá hvort taka þurfi gólfin upp, sem er reyndar mikið verk vegna þykktar gólfplötu en hún er um 30 cm þykk vegna hitalagna í gólfinu. Nýjustu fregnir sem ég fékk í morgun um niðurstöður benda til þess að gólfplatan er þurr og öll gildi undir þeim viðmiðunarmörkum sem hægt er að sætta sig við. Því bendir allt til þess að farið verði í viðgerðir, í það minnsta á þessum hluta skólans. Þetta breytir heilmikið stöðunni fyrir okkur og við þurfum að meta vandlega næstu skref. En þegar öllu er á botninn hvolft þá eru miklar líkur á að framkvæmdin verði mun ódýrari en ætlað var í fyrstu.

Fyrir þessum fundi sveitarstjórnar lá matsáætlun vegna vindorkuvirkjunar á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi sem EFLA gerði fyrir hönd fyrirtækisins Wpd. Á fjölmennum íbúafundi í gær kynnti fyrirtækið fyrirætlanir um þennan vindorkugarð. Að vonum hafa íbúar misjafna sýn á þessi áform eins og reyndin er nánast um allt land. Ástæðan gæti verið sú að við höfum engar fyrirmyndir hér á landi né reynslu af því að setja upp vinorkugarða og því eru upplýsingar lykilatriði í þessu máli. Fyrirmyndir okkar eru allar erlendis frá þar sem jafnvel heilu breiðurnar af vindmyllum eru á landi og úti á sjó. Við sækjum okkur upplýsingar í reynslubanka og þekkingu annarra þjóða. Þetta ferli er mjög langt og hvort eða hvenær af þeim verður veltur einfaldlega á svo mörgum þáttum að það er erfitt að gera sér grein fyrir hver endanleg niðurstaða verður. Málið á sér líka langa sögu eftir því sem mér skilst og ég veit að endanleg niðurstaða málsins ræðst alls ekki í tíð núverandi sveitarstjórnar og jafnvel ekki þeirrar næstu. Eitt er þó víst, og ég vona, að þegar að endanlegri ákvörðun kemur verði hún tekin af íbúum. Mín upplifun af fundinum í gær var sú að þetta er mikið tilfinningamál og íbúar hafa á þessu sterkar skoðanir sem sveitarstjórnir framtíðar geta ekki litið framhjá – hvort sem fólk er með eða á móti.

Ég er ánægður með að sveitarstjórn skuli samþykkja framhald samstarfs við Brák leigufélag um byggingu fleiri leiguíbúða í Langanesbyggð því enn er töluverð eftirspurn eftir leiguhúsnæði. Og - enn eigum við eftir 4 lóðir fyrir einbýlishús við götur sem þegar eru tilbúnar. Það fjölgar í sveitarfélaginu þó ég hafi verið tiltölulega hógvær að mínu mati í húsnæðisáætlun um fjölgun íbúa. Með frekari styrkingu atvinnulífs og fleiri stoðum ásamt enn frekari styrkingu innviða þá getum við verið afar bjartsýn á framtíðina.

Ég trúi á framtíð sveitarfélags okkar og þess vegna tók ég þá ákvörðun að setjast hér að þegar ég lýk störfum í vor. Hér er, eins og ég hef alltaf sagt gott að búa, gott fólk og fallegt umhverfi.

Til máls tók: Oddviti.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:57.

Tengd skjöl

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?