51. fundur byggðaráðs 06.03.2026
Fundur í byggðaráði
51. fundur byggðaráðs Langanesbyggðar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins á Þórshöfn, föstudaginn 6. mars 2026. Fundur var settur kl. 10:00.
Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson, Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Oddviti spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var fundur settur.
Almar Eggertsson frá Faglausn kom á fundinn í gegn um Teams undir 3. og 4. lið.
Fundargerð
1. Fundargerð vinnuhóps um grunnskólann frá 16.02.2026
Fundargerð lögð fram
2. Fundargerð vinnuhóps um grunnskólann frá 26.02.2026
Fundargerðin lögð fram.
3. Hugmyndir um viðbyggingar við grunnskólann
03.1 Skissa – grunnskólinn, ein hæð eða tvær.
03.2 Tillöguteikning – viðbygging suður.
03.2.1 Tillöguteikning – viðbygging suður T – skipulag innanhúss.
03.2.2.Tillöguteikning – viðbygging suður L – skipulag innanhúss.
03.3 Tillöguteikning – viðbyggingar norður/suður
03.4 Kostir og gallar byggingaáforma frá starfsfólki skólans.
03.5 Tillöguteikning viðbygging suður T-uppfært.
Lagðar fram hugmyndir um viðbyggingar og / eða byggingu á einni eða tveimur hæðum ásamt viðhorfi starfsfólks.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð samþykkir að fara í byggingaform T-2 samtals 976m“ samkvæmt framlögðu uppkasti. Byggðaráð felur jafnframt sveitarstjóra að vinna áfram að hönnun nýbyggingar með Faglausn og vinnuhóp um grunnskóla.
Sveitarstjóra falið að semja við verktaka um viðgerðir og verkumsjón á A og B hluta ásamt því að auglýsa D hluta til flutnings. Óskað er eftir áliti umhverfis- og skipulagsnefndar á áformum um niðurrif á C hluta og að fjarlægja D hluta.
Samþykkt samhljóða.
4. Framkvæmdir við grunnskólann – verkáætlun
04.1 Framkvæmdir við grunnskólann – verkáætlun staða 26.02.2026
Lögð fram verkáætlun vegna viðgerðar og nýbyggingar við grunnskólann ásamt stöðu áætlunar 26.02.2026.
Lagt fram til upplýsinga og athugasemda.
5. Ósk um breytingar á leigu- og rekstrarsamningi Þórsvers 01.03.2026
05.1 Drög að breytingum á leigu og rekstrarsamningi Þórsvers.
05.2 Greinargerð um rekstur í Þórsveri (Trúnaðarmál)
05.3 Þórsver – grunnteikning með geymslu.
Rekstraraðili Þórsvers hefur lagt fram hugmyndir um breytingar á leigusamningi og rekstrarsamningi fyrir mötuneyti. Í tillögum er komið til móts við ýmsar óskir leigutaka. Enn fremur leggur leigutaki fram greinargerð um rekstur og frumteikningar af breytingum á húsnæði.
Bókun um afgreiðslu: Málinu frestað til næsta fundar. Sveitarstjóra falið að ræða við forstöðumann Þjónustmiðstöðvar og leigutaka frekar um málið.
Samþykkt samhljóða..
6. Tilboð RAH í gerð könnunar á meðal íbúa Langanesbyggðar.
Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri hefur lagt fram tilboð í gerð könnunar á meðal íbúa í Langanesbyggð varðandi hugmyndir um vindorkugarð á Brekknaheiði, stóriðjuframkvæmdir við Finnafjörð og tengd atriði.
Bókun um afgreiðslu: Byggðaráð er jákvætt fyrir hugmyndinni um gerð könnunar. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram í samvinnu við innviðaráðgjafa.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerð lesin upp og samþykkt samhljóða
Fundi sliti kl. 11.15