Fara í efni

57. fundur sveitarstjórnar

15.04.2026 16:00

Fundur í sveitarstjórn

57. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, miðvikudaginn 15. apríl 2026. Fundur settur kl. 16:00.

Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson, Halldóra J. Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson, Sigríður Friðný Halldórsdóttir, Gunnlaugur Steinarsson, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki.
Oddviti fór fram á afbrigði frá boðaðri dagskrá og taka á dagskrá. 6 lið fundargerðar skipulags- og umhverfisnefndar sem varðar breytingu á deiliskipulagi við Bakkaveg. .

D a g s k r á

1. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 995 frá 10.03.2026
2. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga nr. 996 frá 18.03.20226
3. Fundargerð stjórnar SSNE nr. 81 frá 05.03.2026
4. Fundargerð stjórnar SSNE nr. 82 frá 24.03.2026
5. Fundargerð 50. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 09.04.2026
Liður 5
     05.0 Þjónustu og íbúðasvæði við Langholt – tillaga að skipulagslýsingu
     05.1 Þjónustu og íbúðasvæði við Langholt – skýringamynd
     05.2 Bókun umhverfis- og skipulagsnefndar vegna málsins.
Liður 9
     05.3 Bókun skipulagsnefndar vegna álits við matsskýrslu vegna vindorkuvers á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi
6. Bréf frá Samkeppniseftirlitinu varðandi opinber innkaup – niðurstöður vinnustofu og ráðstefnu.
7. Stefna um opinbera þjónustu

8. Greinargerð um frumvarp til sveitarstjórnarlaga – 505. mál á 157. löggjafarþingi.
9. Stoðir atvinnu- og mannlífs í Langanesbyggð – skýrsla verkefnastjóra SSNE
10. Erindi til sveitarstjórnar frá kennurum Grunnskóla Þórshafnar.
11. Tilboð í D álmu grunnskólans.
12. Tillaga um breytingar á fundartímum sveitarstjórnar og byggðaráðs.
13. Skýrsla sveitarstjóra

Fundargerð

1. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 995 frá 10.03.2026
Fundargerðin lögð fram.

2. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga nr. 996 frá 18.03.20226
Fundargerðin lögð fram.

3. Fundargerð stjórnar SSNE nr. 81 frá 05.03.2026
Fundargerðin lögð fram.

4. Fundargerð stjórnar SSNE nr. 82 frá 24.03.2026
Fundargerðin lögð fram.

5. Fundargerð 50. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar frá 09.04.2026
Liður 5.
     05.0 Þjónustu og íbúðasvæði við Langholt – tillaga að skipulagslýsingu.
     05.1 Þjónustu og íbúðasvæði við Langholt – skýringamynd.
     05.2 Bókun umhverfis- og skipulagsnefndar vegna þjónustu og íbúðasvæðis við Langholt.

Til máls tóku: Oddviti, Mirjam, sveitarstjóri, oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir skipulagslýsinguna og leggur til að hún verði kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

Liður 6
Deiliskipulag miðsvæðis við Bakkaveg og Vesturveg. Breyting vegna Bakkavegar 11.

Til máls tók: Oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og leggur til að breytingin verði unnin samkvæmt 2. mgr. 43. gr. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin er óveruleg og varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tók: Oddviti.

Liður 9.
     05.3 Bókun skipulagsnefndar vegna álits við matsskýrslu vegna vindorkuvers á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi.
Langt fram til kynningar.

6. Bréf frá Samkeppniseftirlitinu varðandi opinber innkaup – niðurstöður vinnustofu og ráðstefnu.
Lagt fram til kynningar.

7. Stefna um opinbera þjónustu.
Þjónustustefnan tekur til þjónustu bæði ríkis og sveitarfélaga. Mikilvægi þess að samræma þjónustu þvert á stjórnsýslustigin er ein helsta áhersla stefnunnar með það að markmiði að veita betri, aðgengilegri og hagkvæmari þjónustu.
Í stefnunni er horft á þjónustu hins opinbera á heildstæðan hátt. Stefnan mun því koma í stað stefnu hins opinbera um stafræna þjónustu sem kom út árið 2021 sem mun í kjölfarið falla úr gildi. Sambandið ísl. sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til að senda Sambandinu ábendingar um stefnuna og ábendingar um mögulegar aðgerðir á netfangið samband@samband.is
Lagt fram til kynningar.

Til máls tóku: Sveitarstjóri, Mirjam.

8. Greinargerð um frumvarp til sveitarstjórnarlaga – 505. mál á 157. löggjafarþingi.
Guðjón Bragason lögfræðingur hefur unnið greinargerð fyrir smærri sveitarfélög um frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 505 mál sem liggur fyrir Alþingi. Guðjón tekur fram í lokin að greinargerðin tekur eingöngu til breytingartillagna sem eru í frumvarpinu eins og það var lagt fram á Alþingi.

Til máls tóku: Sveitarstjóri, oddviti, Mirjam, oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkir að standa að því, ásamt nokkrum fámennari sveitarfélögum að senda meðfylgjandi greinargerð til Alþingis.

Samþykkt samhljóða.

9. Stoðir atvinnu- og mannlífs í Langanesbyggð – skýrsla verkefnastjóra SSNE
Verkefnisstjóri innviða, Gunnar Már Gunnarsson hefur lagt fram skýrslu um „Stoðir atvinnu- og mannlífs í Langanesbyggð“.
Skýrslan lögð fram til kynningar.

Til máls tóku: Oddviti, sveitarstjóri, Mirjam, oddviti, Halldóra, Mirjam, oddviti.

Bókun frá Mirjam: Skýrslan er vönduð og gagnleg samantekt á stöðu atvinnulífs og framtíðarmöguleikum í Langanesbyggð. Umfjöllun um stór iðnaðarverkefni, svo sem Finnafjarðarverkefnið og vindorku, er fyrirferðarmikil og almennt jákvæð. Mikilvægt er þó að halda til haga að skoðanir á þessum málum eru skiptar, bæði innan sveitarstjórnar og meðal íbúa. Nauðsynlegt er að tryggja víðtækt samráð og að raddir íbúa fái skýrt vægi áður en frekari ákvarðanir eru teknar.  Hefðbundnir atvinnuvegir, landbúnaður og sjávarútvegur, eru áfram undirstöður byggðarinnar og mikilvægt að tryggja þeim viðeigandi stuðning, m.a. af hálfu stjórnvalda. Tækifæri í ferðaþjónustu og möguleg friðlýsing svæða eru jafnframt jákvæð, en mikilvægt er að samræma slíka sýn við áform um stór iðnaðarverkefni. Þrátt fyrir eftirspurn eftir húsnæði sýna tölur fækkun íbúa og barna, sem kallar á markvissa og raunsæja uppbyggingu og skýra stefnu um framtíðarsýn svæðisins.

10. Erindi til sveitarstjórnar frá kennurum Grunnskóla Þórshafnar.
Kennarar við Grunnskólann hafa sent erindi til sveitarstjórnar varðandi mötuneyti við skólann.

Til máls tóku: Oddviti, Mirjam, Halldóra, oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Bréfið er móttekið og verður haft til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu.

Samþykkt samhljóða.

11. Tilboð í D álmu grunnskólans.
Samkvæmt samþykkt byggðaráðs á 51. fundi 6. mars s.l. var sveitarstjóra falið að auglýsa D álmu grunnskólans (syðsta hluta) til sölu og flutnings eða eftir hugmyndum um nýtingu þess fyrir sveitarfélagið. Húsið var auglýst til sölu og flutnings eða eftir hugmyndum um aðra nýtingu þess á heimasíðu sveitarfélagsins 23. mars.  Eitt tilboð barst, sem er meðfylgjandi og hljóðar upp á eina milljón króna og að tilboðsgjafi mun fjarlægja húsið á sinn kostnað.

Til máls tóku: Sveitarstjóri, oddviti, Mirjam, Halldóra, sveitarstjóri, Mirjam, sveitarstjóri, Sigríður, oddviti, Halldóra, sveitarstjóri, Sigríður, Mirjam, oddviti, sveitarstjóri, Júlíus, oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn heimilar sveitarstjóra að undirrita kaupsamning um sölu hússins til tilboðsgjafa sem mun fjarlægja húsið. Frestur til að fjarlægja húsið af staðnum er gefin til 20. maí.

Atkvæðagreiðsla: Með bókun: Sigurður, Júlíus, Gunnlaugur. Á móti: Sigríður, Mirjam. Sat hjá: Halldóra.

12. Tillaga um breytingar á fundartímum sveitarstjórnar og byggðaráðs.
Lögð fram tillaga að breytingum á fundartímum sveitarstjórnar og byggðaráðs vegna umfjöllunar um ársreikning.

Til máls tóku: Sveitarstjóri, oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir framlagða áætlun um breytingar á fundartímum sveitarstjórnar og byggðaráðs.

Samþykkt samhljóða.

13. Skýrsla sveitarstjóra

Hr. Oddviti og sveitarstjórnarfulltrúar.

Nú er framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga runnin út og ekkert listaframboð var tilkynnt í Langanesbyggð til yfirkjörstjórnar. Það þýðir, að persónukjör mun fara fram þann 16. maí næstkomandi. Innan skamms verður boðað til fundar þar sem kosningafyrirkomulagið verður kynnt en nú þegar eru komnar upplýsingar á heimasíðu um fyrirkomulag. Að því að ég best veit hafa ekki verið persónukosningar í Langanesbyggð síðan 2010.

Það er bæði athyglisvert og forvitnilegt að af 470 kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum á landinu árið 2022 voru 317 nýkjörnir eða 67%. Þetta segir nokkra sögu. Þetta er erilsamt starf og vanda þarf til verka, fulltrúar bera mikla ábyrgð, leggja á sig mikla vinnu og ef til vill hugsa margir að þetta sé ekki þess virði miðað við það sem greitt er fyrir að taka þátt þessu, nema af hugsjóninni einni saman. En nóg um það, vonandi tekst okkur að fylla í skörð þeirra sem nú þegar hafa ákveðið að bjóða sig ekki fram aftur. Hér í Langanesbyggð er hæfileikaríkt fólk sem hvetja þarf til að bjóða fram krafta sína, reynslu og þekkingu á mörgum sviðum. Við þurfum á því að halda.

Á undanförum vikum hefur verið unnið ötullega að því að þróa hugmyndir um endurnýjun og nýbyggingu við grunnskólann og fundað stíft. Þessar hugmyndir eru nú að komast í framkvæmd með viðgerð á nyrsta hluta skólans og vonast er til að þann hluta byggingarinnar verði hægt að taka í notkun í haust. Þá hefur verið tekið tilboði í syðsta hlutann um sölu og flutning á byggingunni svo koma megi fyrir nýrri byggingu í norður / suður. Þetta er eins og áður hefur komið fram stórt verkefni fyrir lítið samfélag en með því að vonir standa til að sveitarsjóður geti lagt fram stóran hluta upphæðarinnar sem þarf standa vonir til þess að skuldahlutfall hækki ekki upp úr öllu valdi. Enn er verið að þróa innrými nýrrar byggingar en vonandi lýkur því innan skamms.

Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum og fengu smærri sveitarfélög Guðjón Bragason lögmann til að rýna lögin með tilliti til hagsmuna smærri sveitarfélaga. Að mati Guðjóns kemur fram skýr vilji ráðherra til að fækka sveitarfélögum þó þvingunaraðgerðir í þá átt sé ekki að finna í frumvarpinu. Í heild má sjá að nokkrir ágallar á gildandi frumvarpi eru lagaðir án þess að ég nefni hér dæmi en einnig er að finna ýmis framkvæmdaatriði sem Guðjón finnur að eins og málsmeðferð í 22 gr. frumvarpsins. Það sem kannski er mikilvægast, og Guðjón og fleiri benda á í frumvarpinu er 10. kafli þess sem fjallar um samvinnu sveitarfélaga og samninga um starfrækslu verkefna. Annars hvet ég ykkur til að lesa þessa umsögn sem er mjög góð og skýr.

Ég hvet ykkur einnig til að rýna vel skýrslu Gunnars Más Gunnarssonar um „Stoðir atvinnu- og mannlífs í Langanesbyggð“. Þar er að finna ítarlega úttekt á stöðunni í dag, og eins og segir í inngangi „að draga fram helstu áskoranir og raunhæf tækifæri til næstu ára. Tölfræðin sem kemur fram segir mikið um stöðu okkar í dag og hlutverk hinna ýmsu hagsmunaaðila um sinn þátt í þróun samfélagsins.

Á næstu fundum sveitarstjórnar verður fjallað um ársreikning 2025 og verður fróðlegt að sjá þróunina þó tilfinning mín sé sú að hún hafi í raun verið í jákvæða átt undanfarin ár. Fyrri umræðan fer fram á næsta fundi þriðjudaginn 28. apríl en seinni umræðan fimmtudaginn 7. maí sem er reyndar síðasti fundur núverandi sveitarstjórnar ef ekki verður boðað til aukafunda, en þá er einungis rúm vika í kosningar.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:18.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?