Vegna viðhalds verður íþróttamiðstöðin á Þórshöfn heitavatnslaus á morgun, föstudaginn 9. janúar frá 13-15:30.
Ákveðið hefur verið að leyfa kaldavatnskarinu að standa á laugarbakkanum fram yfir helgina
Birgir Björnsson, tannlæknir verður með móttöku á heilsugæslunni á Þórshöfn frá 26.- 29. janúar n.k. Tímapantanir í síma 462-7108 og á heilsugæslunni í síma 464-0608 frá 26. janúar.
Lykilorð okkar í Grunnskólanum á Þórshöfn eru vinsemd, virðing, vellíðan og virkni en þessi gildi leggjum við rækt við og leitumst við að uppfylla. Starfsfólk skólans hefur sinnt fjölbreyttu þróunarstarfi á liðnum árum og leggur áherslu á virkni og hlutdeild allra í skólabragnum. Áherslan í skólastarfinu er á fjölbreytta kennsluhætti, eflingu læsis, félagsfærni (ART) og samvinnu allra í skólanum, jafnt nemenda sem fullorðinna.
Á annann í jólum var haldið skemmtilegt jólaball í Þórsveri þar sem börn og fullorðnir stigu dans í kringum jólatréð. Hljómsveit spilaði undir dansi og setti það hátíðlegan brag á samkomuna. Leikskólabörnin stigu á svið og einnig sungu Dagný Rós og Katrín tvö lög með hljómsveitinni. Jólasveinarnir mættu að sjálfsögðu á svæðið til að gleðja börnin með góðgæti en einnig var boðið uppá heitt súkkulaði og smákökur. Þetta er árviss viðburður og er það foreldrafélag Grunnskólans sem sér um skipulag. Í ár voru það Dawid smiður ehf og útgerðin Hólmi sem styrktu samkomuna og foreldrafélagið færir þeim þakkir fyrir, sem og hljómsveitinni fyrir þeirra frábæra framlag. /GBJ
Gleðilegt nýtt ár.
Við minnum fólk á fésbókarsíðu Langanesbyggðar https://www.facebook.com/langanesbyggd
Þar birtast stundum tilfallandi fréttir og myndir af líðandi stundu þó flestar fréttir komi einnig hér inn. Um að gera að senda fréttir eða myndir til birtingar, það má senda á greta@hac.is eða sirry@langanesbyggd.is
Langanesbyggð óskar íbúum og landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári. Með jólakveðjunni fylgja nokkrar myndir frá árlegri jólatrésskemtun á Þorláksmessukvöld þar sem sungið og dansað er í kring um jólatréið, og svo kíkja jólasveinarnir auðvitað í heimsókn með tilþrifum. /GBJ
23. desember - Þorláksmessa 11:00-14:00
24. desember - Aðfangadagur Lokað
25. desember Jóladagur Lokað
26. desember - Annar í jólum 11:00-19:00
27. desember - laugardagur 11:00-14:00
28. desember - sunnudagur Lokað
29. desember - mánudagur 13:00-20:00
30. desember þriðjudagur 13:00-20:00
31. desember - Gamlársdagur 11:00-14:00
1. janúar Nýársdagur Lokað
Opnunartími leikskólans Barnabóls um hátíðarnar er eftirfarandi:
Aðfangadag - Lokað
Jóladag - Lokað
Annan í jólum - Lokað
29. og 30. desember er leikskólinn opinn fyrir þá sem eru skráðir.
Gamlársdag - Lokað
Nýársdag - Lokað
2. janúar er leikskólinn opinn en börnin verða að vera komin kl 9 eða búið að láta vita fyrir þann tíma ef þau eru væntanleg.
Við óskum börnum og foreldrum gleðilegra jóla
Starfsfólk Barnabóls