12.11.2026
Viðhorfskönnun um vindorkuhugmyndir og hafnaruppbyggingu
Á næstu dögum mun íbúum Langanesbyggðar sem náð hafa 18 ára aldri berast boð um að taka þátt í könnun á viðhorfi þeirra til hugmynda um virkjun vindorku í Langanesbyggð og uppbyggingar hafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði. Íbúar eru hvattir til að kynna sér málin og taka þátt í könnuninni sem verður á íslensku, ensku og pólsku.