Nýtt upplýsingaskjal wpd um vindorkuhugmyndir
09.11.2026
Fréttir
wpd Ísland ehf. hefur birt nýtt upplýsingaskjal um hugmyndir um vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi. Þar er að finna nýjustu upplýsingar um verkefnið og stöðu þess. Meðal annars er fjallað um mismunandi sviðsmyndir sem unnið er út frá. Fyrirtækið hefur einnig birt myndband sem sýnir sýnileka vindorkumannvirkja frá þremur sjónarhornum á Þórshöfn.
Í upplýsingskajlinu kemur meðal annars fram að hugmyndir um tilraunaverkefni á Sauðaneshálsi hafa verið lagðar til hliðar, eftir að Alþingi samþykkti breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun) sem fela í sér að hugmyndir um vindorkuver sem ná 30 metra hæð eða meira eru felld undir lögin og þurfa að sæta flokkun í rammaáætlun.