Fara í efni

Fréttasafn

12.11.2026

Viðhorfskönnun um vindorkuhugmyndir og hafnaruppbyggingu

Á næstu dögum mun íbúum Langanesbyggðar sem náð hafa 18 ára aldri berast boð um að taka þátt í könnun á viðhorfi þeirra til hugmynda um virkjun vindorku í Langanesbyggð og uppbyggingar hafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði.  Íbúar eru hvattir til að kynna sér málin og taka þátt í könnuninni sem verður á íslensku, ensku og pólsku.
11.11.2026

66. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar

66. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar verður haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2, Þórshöfn, föstudaginn 13. nóvember 2026 kl. 10:00.
09.11.2026

Nýtt upplýsingaskjal wpd um vindorkuhugmyndir

wpd Ísland ehf. hefur birt nýtt upplýsingaskjal um hugmyndir um vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi. Þar er að finna nýjustu upplýsingar um verkefnið og meðal annars fjallað um mismunandi sviðsmyndir sem unnið er út frá.
28.10.2026

Varðskipið Freyja á Þórshöfn á Laugardag

Varðskipið Freyja verður við bryggju á Þórshöfn laugardaginn 31. október nk. Áhöfn skipsins býður áhugasömum að skoða skipið og kynnast verkefnum Landhelgisgæslunnar á milli 13 og 15 í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgæslunnar.
26.10.2026

Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamannastaða - síðasti séns að sækja um

Langanesbyggð vill vekja athygli á að frestur til að sækja um í framkvæmdasjóð ferðamannastaða er til kl. 13 þriðjudaginn 27. október, þ.e. á morgun.Áherslur í ár eru minna sótt svæði og lenging ferðamannatímabilsins.
23.10.2026

Ábending til skotveiðimanna í upphafi rjúpnaveiðitímabils

Nú þegar rjúpnaveiðitímabilið er hafið vill Langanesbyggð biðla til skotveiðimanna að haga veiðum sínum þannig að þær skapi ekki hættu eða valdi íbúum ónæði. Skoteiðimenn eru hvattir til að forðast skotveiðar í eða nálægt byggð, útivistarsvæðum og öðrum svæðum þar sem búast má við að fólk sé á ferðinni.
15.10.2026

Öll skotveiði bönnuð í landi Saurbæjar 2

Skotveiði bönnuð í landi Saurbæjar 2
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?