Fara í efni

Viðhorfskönnun um vindorkuhugmyndir og hafnaruppbyggingu

Fréttir
Mynd búin til með gervigreind
Mynd búin til með gervigreind

Á næstu dögum mun íbúum Langanesbyggðar sem náð hafa 18 ára aldri berast boð um að taka þátt í könnun á viðhorfi þeirra til hugmynda um virkjun vindorku í Langanesbyggð og uppbyggingar hafnar og iðnaðarsvæðis í Finnafirði.  Íbúar eru hvattir til að kynna sér málin og taka þátt í könnuninni.

Í tengsum við könnuna hefur upplýsingum um um þau verkefni sem spurt er um verið safnað saman og þær birtar á vef Langanesbyggðar. Hægt er að nálgast efnið undir "Þróunarverkefni" hér efst á síðunni. Upplýsingaefnið er á íslensku en hægt er að nota þýðingarvélina efst til hægri til að þýða textann yfir á ensku og pólsku. Sömuleiðis er hægt að svara könnuninni á íslensku, ensku og pólsku. 

Að auki hafa þróunaraðilar verkefnanna útbúið og/eða uppfært kynningarefni sitt um verkefnin. Það efni er birt undir liðnum "Upplýsingaefni frá þróunaraðila" á hvorri síðu fyrir sig.