Fara í efni

Auglýsing um skipulagsmál í Langanesbyggð

Fréttir

Staðarárvirkjun í Bakkafirði, breyting á Aðalskipulagi Langanesbyggðar 2007-2027, nýtt deiliskipulag – Tillaga á vinnslustigi.

Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 15. apríl 2026 að kynna vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar og vinnslutillögu deiliskipulags vegna Staðarárvirkunar í Bakkafirði.

Arctic Hydro hefur áform um að reisa vatnsaflsvirkjun í Staðará í Bakkafirði. Áætlað uppsett afl virkjunarinnar er 0,99 MW og árleg orkuframleiðsla 6,1 GWh. Virkjunin verður tengd við dreifikerfi RARIK.

Vinnslutillagan verður aðgengileg hér á heimasíðu Langanesbyggðar og á skrifstofu sveitarfélagsins frá föstudeginum 24. apríl 2026. Einnig er hægt að skoða vinnslutillöguna í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, skipulagsgatt.is, undir málsnúmerum 736/2025 og 737/2025.

Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum vegna skipulagsins. Ábendingar skulu vera skriflegar og merktar ,,Staðarárvirkun - vinnslutillaga“. Þær skal senda á: Langanesbyggð Langanesvegur 2, 680 Þórshöfn eða á netfangið bjorn@langanesbyggd.is. Einnig er hægt að senda inn ábendingar á skipulagsgatt.is undir fyrrnefndum málsnúmerum.

Frestur til að skila inn ábendingum er til og með föstudagsins 8. maí 2026. Ábendingar verða hafðar til hliðsjónar í skipulagsvinnunni en þeim verður ekki svarað með formlegum hætti.

Tenglar á vinnslutillögurnar eru hér fyrir neðan:
25025-001-askbr-stadararvirkjun-grg-og-uppdr-id-479020-.pdf
25025-001-dsk-stadararvirkjun-grg-id-512694-.pdf
25025-001-dsk-stadararvirkjun-uppdr-id-479881-1-.pdf

Sveitarstjórinn í Langanesbyggð