Drög að atvinnustefnu Langanesbyggðar
03.06.2025
Fréttir
Hér má kynna sér drög að atvinnustefnu Langansbyggðar sem er í vinnslu. Íbúum er bent á að koma tillögum og athugasemdum við stefnuna til Sigríðar Friðnýjar Halldórsdóttur, sigridur@hac.is eða Gunnars Más Gunnarssonar, gunnar@ssne.is. Þau stýra vinnunni við stefnuna.
Stefnan er meðal annars byggð á eftirfarandi gögnum:
- Samfélagssáttmáli Bakkafjarðar 2022
- SVÓT greining á landbúnaði í Langanesbyggð og Norðurþingi 2023
- Vinnustofa með sveitarstjórn um fjárfestingartækifæri í Langanesbyggð - áhersluverkefni SSNE 2024
- Áfangastaðaáætlun Norðurhjarasvæðisins 2024
- Stefna sveitarstjórnar Langanesbyggðar vegna uppbyggingar í Finnafirði 2024
- Byggðabragur - verkfærakista unga fólksins, vinnustofur 2025
- Fyrirtækjaþing í Langanesbyggð 2025