Fara í efni

Auglýsing um samþykkta skipulagstillögu í Langanesbyggð

Fréttir

Deiliskipulag miðsvæðis við Bakkaveg og Vesturveg á Þórshöfn

 Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti deiliskipulag miðsvæðis við Bakkaveg og Vesturveg á Þórshöfn, með breytingum, á fundi sínum þann 22. ágúst 2019.

Deiliskipulagssvæðið er 4,3 ha að stærð og nær yfir hluta miðsvæðis Þórshafnar. Í deili-skipulaginu eru m.a. lóðamörk núverandi lóða skilgreind, byggingarreitir og nýtingarhlutföll. Þá er 1 ný lóð fyrir einbýli skilgreind og 6 nýjar lóðir fyrir blandaða byggð. Göngustígar eru skipulagðir um svæðið og útivistarstígur meðfram strandlengjunni við Bakkaveg. Deiliskipulagið er sett fram í greinargerð og á skipulagsuppdrætti dags. 30. nóvember 2018, m.br. 2. ágúst 2019.

Tillagan var auglýst 5. febrúar 2019 og var athugasemdafrestur til 27. mars 2019. Auglýsingar birtust í Lögbirtingarblaðinu, á heimasíðu Langanesbyggðar og staðarblaðinu Skeglan. Skipulagsgögn voru aðgengileg á skrifstofu Langanesbyggðar, Fjarðarvegi 3 Þórshöfn, og á heimasíðu sveitarfélagsins www.langanesbyggd.is. Athugasemdir bárust frá fjórum aðilum og hefur þeim er athugasemdir gerðu verið send umsögn sveitarstjórnar. Gerð var óveruleg breyting á auglýstum gögnum vegna athugasemdanna. Frekari upplýsingar má nálgast á skrifstofu Langanesbyggðar.

Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

B-deild útgáfudagur 26. september 2019

Langanesbyggð, 11. september 2019

Elías Pétursson, sveitarstjóri