Kynningarfundur um fyrirkomulag sveitarstjórnarkosninga 2026
6. maí
kl. 16:00-18:00
Holtið Kitchen Bar
Sveitarstjórn Langanesbyggðar boðar til kynningarfundar um fyrirkomulag kosninga á Holtinu (Þórsveri) miðvikudaginn 6. maí kl. 16:00.
Þar sem engir listar komu fram áður en framboðsfrestur rann út verða "óbundnar kosningar".
Yfirkjörstjórn mun skýra fyrirkomulag kosninga og svara spurningum varðandi kosningar. Kaffiveitingar á staðnum.
Sveitarstjórn Langanesbyggðar.