39. fundur velferðar- og fræðslunefndar
Fundur velferðar- og fræðslunefndar
39. fundur velferðar- og fræðslunefndar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2, mánudaginn 2. nóvember kl. 14:00.
Mætt voru: Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir formaður, Kristín Heimisdóttir, Þórarinn J. Þórisson, Mateusz Swierczewski, Sigríður Friðný Halldórsdóttir og Bjarnheiður Jónsdóttir skrifstofustjóri sem ritaði fundargerð.
Áheyrnarfulltrúar í fræðslumálum: Hilma Steinarsdóttir skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn, Halldóra J. Friðbergsdóttir leikskólastjóri Barnabóls og Almar Marinósson fyrir foreldrafélag grunnskólans.
Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var gengið til dagskrár.
Fundargerð
Fræðslumál
1. Skýrsla skólastjóra Grunnskóla Þórshafnar
Starfsdagurinn 21. október var tileinkaður vinnu við skólanámskrá, þar sem unnið var að því að tengja hana við nýja menntastefnu sveitarfélagsins. Með útgáfu menntastefnunnar getur sú vinna nú haldið áfram og skólanámskráin þróast áfram í samræmi við áherslur hennar.
Þemadagar vegna árshátíðar voru líflegir og er undirbúningur kominn vel á veg hjá öllum stigum. Árshátíðin verður með sama sniði og í fyrra, þannig að ekki verður sett upp eitt sameiginlegt leikverk heldur mun hvert stig vera með sín eigin atriði.
Leiðbeinandi sem var í 50% stöðuhlutfalli er nú farin í fæðingarorlof. Við náðum með skipulagsbreytingum að dekka þá stöðu og þurfum ekki að ráða inn.
Hrekkjavökunni var fagnað í skólanum með búningadegi fimmtudaginn 29. október. Seinnipartinn og um kvöldið stóð nemendafélagið Aldan fyrir hrekkjavökuballi og draugahúsi sem tókst einstaklega vel. Stjórn Öldunnar á mikið hrós skilið fyrir góða skipulagningu og framkvæmd. Boð voru send á nokkra skóla og þáðu nemendur Öxarfjarðarskóla boðið. Mæting þaðan var mjög góð, bæði á ballið fyrir yngri nemendur og það eldra. Það er ánægjulegt að sjá frumkvæði og metnað nemendafélagsins og hvernig nemendur leggja sitt af mörkum til að skapa skemmtilegt félagslíf og góð tengsl milli skóla.
Starfsmannasamtal í formi könnunar var sent til starfsfólks í dag og er gert ráð fyrir að könnuninni og samtölum ljúki í lok vikunnar. Spurningarnar í könnuninni eru þær sömu og lagðar eru til grundvallar í starfsþróunaráætlun skólans.
Annar fundur vetrarins með Önnu Sigrúnu vegna leiðsagnarnáms fer fram á morgun.
Ný valönn hjá 7. -10.bekk hefst á morgun en þær eru fjórar, níu vikur í senn.
Hópar fara þá í nýtt „bundið val“ sem er heimilisfræði, þrek, náttúrufræði og list- og verkgreinar.
Annað val er heimanám, skotbolti, amigurumi, skapandi skrif, demantamyndir, olíu- og vatnslitamálning, Langanesbitinn, Bílaverkstæði Hjartar, Barnaból og slökun/nudd/jóga með Anítu Dröfn.
Nokkrir nemendur tónlistarskólans verða með tónlistaratriði á Jólakúlunni.
2. Skýrsla leikskólastjóra
Almennt gengur starfið vel. Á tímabilinu fór einn starfsmaður í þriggja vikna veikindaleyfi og annar starfsmaður er nú í hlutaveikindaleyfi og starfar í 80% starfshlutfalli í stað 100%.
Haldinn var kynningarfundur fyrir foreldra um leikskólastarfið. Fundurinn tókst mjög vel, mæting var góð og umræðurnar gagnlegar.
Árleg heimsókn frá slökkviliðinu fór fram á dögunum. Starfsfólk slökkviliðsins fræddi elsta árgang leikskólans um brunavarnir og öryggi, auk þess sem farið var yfir brunavarnir og öryggismál í húsnæði leikskólans.
Hrekkjavakan var haldin með pompi og prakt eins og venja er. Mikil vinna var lögð í skreytingar og skemmtilegt hrekkjavökuball var haldið í salnum við mikla ánægju barnanna.
Fram undan eru rólegur jólaundirbúningur og hefðbundin aðventuverkefni. Þá mun starfsfólk einnig sækja námskeið á vegum ADHD-samtakanna á starfsdegi leikskólans þann 17. nóvember.
3. Matsáætlun Barnabóls 2026-2027
Leikskólastjóri kynnti áætlunina.
4. Starfsþróunaráætlun Barnabóls 2026-2027
Leikskólastjóri kynnti áætlunina.
5. Innra mat í Grunnskóla Þórshafnar 2025-2026 og umbótaáætlun 2026-2027
Skólastjóri grunnskólans kynnti innra mat skólans og umbótaáætlun.
6. Starfs- og starfsþróunaráætlun Grunnskóla Þórshafnar 2026-2027
Skólastjóri grunnskólans kynnti áætlunina.
Mateusz Swierczewski vék af fundi.
Velferðarmál:
7. Íbúðir fyrir aldraða – staða íbúða
Tvær íbúðir verða lausar til umsóknar á næstunni.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin felur forstjóra Nausts að auglýsa þær íbúðir sem eru að losna og í framhaldi koma umsóknum til úrvinnslu hjá fagráði.
Samþykkt samhljóða.
8. Barnavernd – áætlun kostnaðar og kostnaðarskiptingar 2027 (áður tekið fyrir í byggðaráði)
Lagt fram til kynningar.
9. Erindi Stígamóta um stuðning og samstarf (áður tekið fyrir í byggðarráði)
Lagt fram til kynningar.
Æskulýðs- og íþróttamál
10. Erindi frá HSÞ um endurnýjun rekstrarsamnings
Lagt fram til kynningar.
Bókun nefndar: Nefndin hvetur sveitarstjórn til að taka samtalið við forsvarsmenn HSÞ um verkaskiptingu svæðisstöðva íþróttahéraða og HSÞ. Nefndin telur einnig óljóst hvaða stuðning eða styrk félagasamtök Langanesbyggðar geta sótt til félagsins og hvaða verkefnum félagið hefur verið að sinna á okkar svæði.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 16:04.