38. fundur fræðslu- og velferðarnefndar
Fundur velferðar- og fræðslunefndar
38. fundur velferðar- og fræðslunefndar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2, mánudaginn 5. október kl. 14:00.
Mætt voru: Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir formaður, Kristín Heimisdóttir, Þórarinn J. Þórisson, Mateusz Swierczewski, Sigríður Friðný Halldórsdóttir og Jón Hrói Finnsson, sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Áheyrnarfulltrúar í fræðslumálum: Hilma Steinarsdóttir skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn, Halldóra J. Friðbergsdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Hjördís Matthilde Henriksen fyrir starfsmenn leikskólans og Almar Marinósson fyrir foreldrafélag grunnskólans (mætti kl. 14:20).
Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var gengið til dagskrár.
Formaður óskaði eftir leyfi fundarmanna til að taka mál á dagskrá fundarins sem ekki var í fundarboði, kynningu Sigurbjörns Veigars Friðbjörnssonar á Íþróttaviku Evrópu sem var samþykkt samhljóða.
Fundargerð
Fræðslumál
1. Skýrsla skólastjóra Grunnskólans á Þórshöfn
Það hefur verið mikið um ferðalög í haust. Nemendur í 7.–10. bekk tóku þátt í grunnskólamóti á Laugum, nemendur í 9. og 10. bekk fóru í framhaldsskólakynningar á Akureyri og nemendur í 5. og 6. bekk sóttu sirkusnámskeið hjá Hringleik á Egilsstöðum.
Á Degi íslenskrar náttúru voru farnar bæði styttri og lengri vettvangsferðir. Þá fóru nemendur í 7. bekk í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði og dvöldu þar í fjóra daga.
Skólinn hefur einnig fengið góðar heimsóknir í haust. Hildigunnur Birgisdóttir listakona kom í heimsókn og bauð nemendum í 1.–4. bekk upp á myndlistarnámskeið.
Nemendur í 7.–10. bekk fengu hagnýta hugarþjálfun frá Bjarti Guðmundssyni, leikara og frammistöðuþjálfara.
Þá komu Rögnvaldur Ólafsson og Sigurjón Leifsson frá Glímusambandi Íslands í heimsókn og fengu allir nemendur skólans tækifæri til að spreyta sig á glímu.
Síðustu viku lauk með þátttöku í Ólympíuhlaupinu þar sem nemendur og starfsfólk gátu valið um 2,5 km, 5 km eða 10 km vegalengd.
Á starfsdegi 17. september kom Anna Sigrún frá Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri í heimsókn og var dagurinn helgaður leiðsagnarnámi.
Anna Sigrún hefur undanfarin ár veitt skólanum leiðsögn og stuðning við innleiðingu og þróun leiðsagnarnáms og var starfsdagurinn liður í þeirri áframhaldandi vinnu.
Lesfimi hefur verið lögð fyrir nemendur og niðurstöður skráðar í nemendagrunn MMS. Foreldrar ættu að geta nálgast niðurstöðurnar í gegnum Ísland.is.
Nemenda og foreldrasamtöl eru í gangi núna. Vetrarfrí að hausti er 19. og 20. okt, starfsdagur 21. Október, þemadagar fyrir árshátið eru 22. og 23. október en árshátíðin verður 19. nóvember
Í tónlistarskólanum eru 11 nemendur, þar af 10 í fullu námi og einn í hálfu námi. Fjarkennslan gengur vel. Fyrirhugaðir eru tónleikar um mánaðamótin nóvember/desember og koma kennararnir Jón Hilmar og Birgir þá á staðinn.
2. Skýrsla leikskólastjóra
Nú er allt faglegt starf komið í fastar skorður og daglegt starf gengur vel. Við förum einu sinni í viku í íþróttahúsið þar sem Sigurbjörn tekur á móti okkur með fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum æfingum sem börnin njóta vel.
Starfsdagur var haldinn 17. september. Dagurinn var meðal annars nýttur í námskeið um YAP, sem byggir á markvissri hreyfiþjálfun sem hægt er að samþætta öðru námi og starfi með börnum. Einnig var unnið með framkvæmdaráætlun okkar í Jákvæðum aga og farið vel yfir áherslur starfsins fram að áramótum.
Eldri deildin fór í heimsókn í grunnskólann til að ræða mikilvægi þess að ganga vel um leikskólalóðina og hvað ber að varast. Börnin unnu saman að gerð reglna sem afhentar voru bekkjunum og einnig hengdar upp á girðingu leikskólans með aðstoð Þjónustumiðstöðvarinnar. Þessi vinna hefur haft mjög jákvæð áhrif og hefur umgengni á lóðinni verið til fyrirmyndar síðan.
Samstarf okkar við Naust er hafið og búið er að skipuleggja starfið fram að áramótum. Þá kemur Skólaþjónustan í heimsókn síðar í vikunni og foreldrasamtöl hefjast í næstu viku.
Einnig verður foreldrafundur haldinn síðar í þessum mánuði. Þar verður farið yfir starf leikskólans, kynnt helstu verkefni vetrarins og veittar ýmsar hagnýtar upplýsingar sem varða skólastarfið. Fundurinn er jafnframt mikilvægt tækifæri til að efla samstarf heimilis og leikskóla til hagsbóta fyrir börnin.
3. Menntastefna Langanesbyggðar
Lögð fram drög að menntastefnu Langanesbyggðar sem unning var af stýrihópi um menntastefnu með aðstoð Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.
Bókun um afgreiðslu: Rætt um stefnuna og vinnu stýrihópsins við hana. Nefndin samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Velferðarmál:
4. Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027–2030
Lögð fram drög að áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030. Hilma Steinarsdóttir, fulltrúi Langanesbyggðar í farsældarráði Norðurlands eystra fór yfir áætlunina. Verði áætlunin samþykkt þarf að kortleggja stöðu Langanesbyggðar gagnvart áætluninni og hverju þurfi að bæta við.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
5. Íþróttavika Evrópu – kynning
Sigurbjörn Veigar Friðbjörnsson, forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinar Vers kynnti íþróttaviku Evrópu sem fram fór dagana 23.-30. september 2026 og fór yfir viðburði í Langanesbyggð sem haldnir voru í tengslum við hana.
6. Samþykktir um úthlutun íbúða aldraðra og félagslegra leiguíbúða í Langanesbyggð
Áður á dagskrá 36. fundar velferðar- og fræðslunefndar þann 11. maí 2026.
Lagt fram minnisblað Lúðvíks Bergvinssonar lögfræðings um samþykktirnar og drög að leigusamningum þar sem fram kemur að uppfæra þarf reglurnar með hliðsjón af húsaleigulögum.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjóra falið að gera tillögur að breytingum á samþykktum og drögum að húsaleigusamningi samkvæmt athugasemdum Lúðvíks.
Samþykkt samhljóða.
7. Fundur vegna barnaverndarþjónustu 1. október 2026
Lögð fram fundargerð fundar fulltrúa aðildarsveitarfélaga að samningi um barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra ásamt samningnum um þjónustuna.
8. Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um notendaráð sveitarfélaga
Lagt fram erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem minnt er á mikilvægi þess að skipa í lögbundin notendaráð sveitarfélaga þ.e. samráðshóp í málefnum fatlaðs fólks, öldungaráð og ungmennaráð. Jafnframt er bent á mikilvægt er að rýna vel samþykktir og erindisbréf sem og lagaleg skilyrði varðandi uppbyggingu ráðanna.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin þakkar áminningu Sambandsins. Langanesbyggð hefur þegar skipað fulltrúa í sameiginlegt öldungaráð með öðrum sveitarfélögum á þjónustusvæði félagsþjónustu Norðurþings. Nefndin leggur áherslu á að ungmennaráð verði virkjað til að fjalla um málefni barna og ungmenna í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða.
9. Stefna og viðbragðsáætlun Langanesbyggðar gegn einelti, ofbeldi, kynferðislegri og kynbundinni áreitni
Lögð fram tillaga Þórarins J. Þórissonar um og viðbragðsáætlun Langanesbyggðar gegn einelti, ofbeldi, kynferðislegri og kynbundinni áreitni.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir stefnuna og viðbragðsáætlunina og vísar henni til umfjöllunar í byggðarráði.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 15:50