Fara í efni

37. fundur velferðar- og fræðslunefndar

24.08.2026 14:00

Fundur velferðar- og fræðslunefndar

37. fundur velferðar- og fræðslunefndar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2, mánudaginn 24. ágúst kl. 14:00. Mætt voru: Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir formaður, Kristín Heimisdóttir, Þórarinn J. Þórisson, Anna Lilja Ómarsdóttir og Bjarnheiður Jónsdóttir, skrifstofustjóri sem ritaði fundargerð.
Áheyrnarfulltrúar fræðslumála: Hilma Steinarsdóttir skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn, Halldóra J. Friðbergsdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Kamila Kinga Swierczewski fyrir kennara og Almar Marinósson fyrir foreldrafélag grunnskólans.
Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var gengið til dagskrár.

Fundargerð


1. Erindisbréf
Lagt fram til kynningar.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin leggur til að erindisbréfið sé endurskoðað með tillitil til menningarmála þar sem menningarmál falla nú undir atvinnu- og menningarmálanefnd.

Samþykkt samhljóða.

2. Tímalína verkefna velferðar- og fræðslunefndar - kynning
Lögð fram til kynningar.

Bókun um afgreiðslu: Tímalínan sýnir einungis fræðsluhlutann. Nefndin leggur til að einnig verð gerð tímalína fyrir velferðarhlutann sem unnið verður eftir.

Samþykkt samhljóða.


Fræðslumál:

3. Innra mat grunnskóla
Skólastjóri kynnti drög að innri matsskýrslu.

4. Reglur um innritun barna í leikskóla – drög að uppfærslu
Leikskólastjóri lagði fram tillögu að breyttum reglum.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin felur skrifstofustjóra að uppfæra reglurnar miðað við umræður á fundi og í framhaldi auglýsa á heimasíðu sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

5. Gjaldskrá tónlistar-, grunn- og leikskóla – tillaga að breytingum
Gjaldskráin lögð fram til kynningar og umræðu.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin ræddi ýmsa möguleika og ætla að taka gjaldskrána aftur fyrir síðar og leggja þá fram tillögur um breytingar fyrir sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

6. Rekstur grunnskóla 2025
Lagt fram til kynningar.

7. Skýrsla skólastjóra gunnskólans
Starfsdagar hjá yngsta- og miðstigi fóru að mestu í að koma sér fyrir í uppgerðu skólahúsnæði og undirbúa skólastarfið fyrir komandi skólaár.
Elsta stigið verður áfram á efri hæð Kistufells þar sem ekki er nægilegt rými fyrir það í skólahúsnæðinu.
Ráðuneytið hefur birt áform um breytingar á námsmatshluta aðalnámskrár þar sem m.a. er gert ráð fyrir tölukvarða í stað bókstafakvarða. Í vetur tekur breytingin gildi hjá 10.bekk. Skólastjórnendur fengu kynningu í vikunni fyrir starfsdaga kennara. Í þessari viku hefjast fundir á vegum Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) um stuðning við innleiðingu matskvarða og vægi flokka.
Skólasetning fór fram 20. ágúst með þeim hætti að nemendur og foreldrar mættu í bekkjarstofur nemenda. Þar fóru kennarar yfir skipulag skólastarfsins og helstu áherslur fyrir komandi skólaár. Að kynningu lokinni bauð foreldrafélagið upp á grillaðar pylsur og gafst fólki jafnframt kostur á að skoða nýuppgert skólahúsnæði.
Nýir bekkjatenglar hafa einnig verið settir inn á heimasíðu skólans, þar sem foreldrar og nemendur geta nálgast helstu upplýsingar um bekkina og skólastarfið.
Nemendafjöldi er 45 og er skipting á milli stiga svona:
1.-4.bekkur/yngsta stig - 19 nemendur
5.-7.bekkur/miðstig - 11 nemendur
8.-10.bekkur/elsta stig - 15 nemendur

Á morgun koma fjarkennarar tónlistaskólans til að hefja skólastarfið.

8. Rekstur leikskóla 2025
Lagt fram til kynningar.

9. Skýrsla leikskólastjóra
Leikskólastarfið fer vel af stað eftir sumarfrí. Aðeins eitt barn byrjaði hjá okkur í haust og er aðlögun þess lokið. Í leikskólanum eru 23 börn og ein umsókn hefur borist um vistun í janúar. Nýr starfsmaður hefur verið ráðinn í eldhús og ræstingu en annars er starfsmannahald óbreytt. Einn starfsmaður fer í fæðingarorlof og annar kemur til baka úr fæðingarorlofi, en leysa þarf af í þrjá mánuði þar á milli. Við byrjuðum að nota nýju leikskólalóðina 17. ágúst og óhætt er að segja að börn og kennarar séu alsæl með framkvæmdina. Enn eru nokkur verkefni eftir á lóðinni, aðallega tengd geymsluskúrnum og grindverkinu.

10. Fundargerð 7. fundar Farsældarráðs NE frá 12. ágúst 2026
Hilma Steinarsdóttir er fulltrúi Langanesbyggðar í ráðinu. Fundargerðin lögð fram.

Velferðarmál:

11. Erindi frá Landssambandi eldri borgara
Lagt fram til kynningar.

12. Tilnefning í öldungaráð 2026-2030

Bókun um afgreiðslu: Nefndin er sammála um að Jón Gíslason hafi staðið sig vel sem fulltrúi eldri borgar í Langanesbyggð og leggur til að hann starfi áfram.

Samþykkt samhljóða.

13. Niðurfelling reglulegs fundar 7. september 2026
Tillaga liggur fyrir um að leggja niður næsta reglulega fund nefndarinnar.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin er sammála um að leggja niður næsta fund og boða til aukafundar ef þörf krefur.

Samþykkt samhljóða.

 

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl. 15:54.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?