Fara í efni

36 fundur velferðar- og fræðslunefndar

11.05.2026 14:30

Fundur velferðar- og fræðslunefndar

36. fundur velferðar- og fræðslunefndar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2, mánudaginn 11. maí 2026 kl. 14:30.

Mætt voru: Sigríður Friðný Halldórsdóttir formaður, Þórarinn J. Þórisson, Jóhann Hafberg Jónasson. Hulda Kristín Baldursdóttir og Silvía Jónsdóttir. Bjarnheiður Jónsdóttir, skrifstofustjóri sem ritaði fundargerð.

Áheyrnarfulltrúar fræðslumála: Hilma Steinarsdóttir skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn, Halldóra J. Friðbergsdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Hjördís Matthilde Henriksen fyrir kennara Barnabóls og Almar Marinósson fyrir foreldrafélag grunnskólans.

Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var gengið til dagskrár.

Fundargerð

Fræðslumál:

1. Skóladagatal Leikskólans Barnabóls
Skóladagatal Leikskólans Barnabóls fyrir skólaárið 2026-2027 lagt fram til samþykktar.

Bókun um afgreiðslu: Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir skóladagatal leikskólans fyrir skólaárið 2026-2027.

Samþykkt samhljóða.

2. Barn í sumarvistun á Leikskólanum Barnabóli
Innsend umsókn um tímabundna leikskólavistun fyrir barn sem ekki er með lögheimili í Langanesbyggð. Leikskólastjóri greinir frá því að svigrúm sé til þess að taka á móti barni tímabundið sem hefur ekki áhrif á mönnun leikskólans.

Formaður lýsir sig vanhæfan og víkur af fundi.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir tímabundna leikskóladvöl sumarið 2026 fyrir sitt leiti og að greitt verði samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

Formaður kemur aftur inn á fund.

3. Starfsáætlun Leikskólans Barnabóls skólaárið 2026-2027 - drög
Leikskólastjóri fer yfir starfsáætlun leikskólans fyrir næsta skólaár.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir framlagða starfsáætlun Leikskólans Barnabóls 2026-2027.

Samþykkt með 4 greiddum atkvæðum. Jóhann sat hjá

4. Starfsáætlun Grunnskólans á Þórshöfn skólaárið 2026-2027 - drög
Skólastjóri fer yfir drög að starfsáætlunar Grunnskólans á Þórshöfn. Endanleg áætlun verður lögð fyrir í haust.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin vill vekja athygli á aukinni verkefnabyrgði skólastjórnenda vegna skólabyggingar, nýrra fasteignalaga og fleiri verkefna. Skoða hvort það þurfi að leysa þessi verkefni tímabundið með auknu starfsgildi eða minni kennsluskyldu.

Samþykkt samhljóða.

5. Rekstur Grunnskólans á Þórshöfn 2025
Málinu frestað til næsta fundar.

6. Rekstur Leikskólans Barnabóls 2025
Málinu frestað til næsta fundar.

7. Innra mat Leikskólans Barnabóls - eftirfylgd
Leikskólastjóri fór yfir matið.

Matsteyminu gekk vel að vinna saman og gerð var starfsáætlun fyrir teymið og matsáætlun. Grunnurinn að góðu mati er skýr matsáætlun og niðurstöður innra matsins voru mjög góðar og markmiðunum var náð.

8. Innra mat Grunnskólans á Þórshöfn – eftirfylgd
Málinu frestað til næsta fundar.

9. Skýrsla skólastjóra Grunnskólans á Þórshöfn
Innritun 1. bekkjar fer nú fram með breyttu sniði. Forsjáraðilar sækja um á island.is og fer umsóknin inn í kerfi sveitarfélagsins og tengist Nemendagrunni MMS. Þegar skólastjóri afgreiðir umsókn fá forsjáraðilar staðfestingu á að skólavist hafi verið samþykkt.
Venjan hefur verið að bjóða tilvonandi nemendur okkar og forsjáraðilum í heimsókn í maí en vegna ástandsins í húsnæðismálum var ákveðið að bjóða upp á það í ágúst. Einn nemandi er í elsta árgangi leikskólans og mun skólastjóri hafa samband við foreldrana vegna innritunar.
Föstudaginn 15. maí mun 4.-7. bekkur fara í heimsókn í Öxarfjarðarskóli þar sem megináhersla verður lögð á skák. Nemendur fá þar tækifæri til að tefla saman í blönduðum hópum og einnig verður önnur skemmtileg dagskrá í boði.
Nemendur 10.bekkjar fara af stað í sína útskriftarferð á fimmtudag. Þau fara til Ítalíu og fara tveir foreldar með hópnum.
Námsmat verður birt 15. maí, dagar atvinnulífsins hefjast 20. maí og verður skólaferðalögum fléttað inn í þá daga.

Varðandi húsnæðismál næsta skólaár, þá verður yngsta- og miðstig í grunnskólahúsnæðinu að Langanesvegi 20, þeim hluta sem nú er verið að endurgera. Elsta stig verður áfram í Kistufelli og frístund verður í Þórsveri, þar sem yngsta stigið var í vetur. Mönnun fyrir næsta skólaár er lokið og ríkir áfram stöðugleiki í starfsmannahaldi.

10. Skýrsla skólastjóra Leikskólans Barnabóls
Skólastarfið er komið í vor- sumar fasa, þar sem ákveðnir þættir í dagskipulaginu fara í smá frí og annað kemur inn í staðinn. Við erum byrjuð að ganga frá í ferilmöppur barnanna, það er allskonar skýrslugerð og fleira sem fylgir því að gera upp þetta skólaár. Við erum einnig byrjuð að skipuleggja næsta skólaár eins og sjá má í drögum að starfsáætlun sem lögð er hér fyrir fundinn. Það er einungis eitt barn að útskrifast frá okkur og verður útskrift í byrjun júní. Áætlun sem lögð er hér fyrir fundinn. Það er einungis eitt barn að útskrifast frá okkur og verður útskrift í byrjun júní.
Framkvæmdir á leikskólalóð hefjast á ný 15. maí og ætluð verklok 15 júlí.

11. Önnur mál
Inntökureglur leikskólabarna
Leikskólastjóri bendir á að það þurfi að uppfæra reglurnar þar sem ýmislegt í þeim er orðið úrelt.

Bókun um afgreiðslu: Velferðar- og fræðslunefnd leggur það í hendur nýrrar velferðar- og fræðslunefndar að uppfæra reglurnar. Leikskólastjóra er falið að koma punktum á nýja nefnd varðandi málið.

Samþykkt samhljóða.

Velferðarmál:

12. Fundargerð MMÞ frá 25.03.2026
Fundargerðin lögð fram.

13. Samþykktir um úthlutun íbúða aldraðra og félagslegra íbúða– endurskoðun
Tillaga að breytingu á samþykktum við úthlutun íbúða til aldraðra og öryrkja lagðar fram.

Bókun um afgreiðslu: Velferðar og fræðslunefnd samþykkir breytingarnar fyrir sitt leiti og vísar þeim til sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

14. Húsaleigusamningur – íbúðir aldraðra og félagslegar leiguíbúðir drög.
Tillaga að húsaleigusamningi vegna íbúða öryrkja og aldraðra hjá Langanesbyggð ásamt drögum að húsreglum fyrir Miðholt og Bakka á Þórshöfn sem viðauki húsaleigusamnings.

Bókun um afgreiðslu: Skrifstofustjóra falið að uppfæra reglurnar og kanna það í samstarfi við lögfræðing hvort segja þurfi upp öllum húsaleigusamningum. Einnig þarf að skoða hvort leigufjárhæð standi undir rekstrarkostnaði. Niðurstöður lagðar fyrir sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

15. Kynning VMS - Alþjóðleg vernd og dvalarleyfi
Kynningin lögð fram.

16. Önnur mál

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl. 16:01.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?