Fara í efni

35. fundur velferðar- og fræðslunefndar

15.04.2026 14:00

Fundur velferðar- og fræðslunefndar

35. fundur velferðar- og fræðslunefndar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2, miðvikudaginn 15. apríl 2026 kl. 14:00.

Mætt voru: Sigríður Friðný Halldórsdóttir formaður, Jóhann Hafberg Jónasson og Árni Bragi Njálsson. Sigríður formaður sem ritaði fundargerð.

Áheyrnarfulltrúar fræðslumála: Hilma Steinarsdóttir skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn, Halldóra J. Friðbergsdóttir leikskólastjóri Barnabóls.

Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var gengið til dagskrár.
Formaður óskar eftir því að bæta við lið 11.

Samþykkt samhljóða. 

Fundargerð

Fræðslumál:

1. Fundargerð 2. fundar Farsældarráðs frá 14.01.2026
Fundargerði lögð fram.

2. Fundargerð 3. fundar Farsældarráðs frá 11.02.2026
Fundargerði lögð fram.

3. Fundargerð 4. fundar Farsældarráðs frá 11.03.2026
Fundargerði lögð fram.

4. Stytting vinnuvikunnar - breyttur opnunartími leikskólans Barnabóls
Leikskólinn hóf innleiðingu á styttingu vinnuvikunnar árið 2021 og hefur starfað með 37 stunda vinnuviku síðan. Farin var blönduð leið, þ.e. að stytta vinnuvikuna um tvær stundir innan vikunnar og safna einni stundu á viku upp í dagsfrí á átta vikna fresti. Mikil ánægja hefur verið með þetta fyrirkomulag, en það hefur á köflum valdið starfsfólki töluverðu álagi.
Samkvæmt kjarasamningum eiga starfsmenn rétt á 36 stunda vinnuviku. Ljóst er að við getum ekki innleitt 36 stunda vinnuviku án þess að gera einhverjar breytingar.

Bókun um afgreiðslu: Velferðar- og fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að leikskólinn verði lokaður kl. 14:00 á föstudögum og lokun í dimbilviku og milli jóla og nýárs (sjá skóladagatal) til prufu næsta skólaárs. Tillagan er borin fram vegna kjarasamninga þar sem stefnt var að því að vinnuvika starfsfólks leikskóla yrði 36 klst frá og með ágúst 2025. Nokkrar leiðir er hægt að fara til að bregðast við styttingunni. Lögð var könnun fyrir foreldra með þeirri niðurstöðu að meirihluti kaus styttingu opnunartíma.

Samþykkt með: Sigríður og Árni Hafnað: Jóhann
Jóhann gerir grein fyrir atkvæði með eftirfarandi bókun: Mikilvægt að vera ekki að skerða þjónustu til íbúa.

5. Skóladagatal Grunnskólans á Þórshöfn
Skóladagatal Grunnskólans á Þórshöfn lagt fram til samþykktar.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir skóladagatal Grunnskólans 2026-2027.

Samþykkt samhljóða.

6. Skýrsla skólastjóra Grunnskólans á Þórshöfn
Breyting verður á kennslufyrirkomulagi í Tónlistarskóla Langanesbyggðar í haust. Fengnir verða stundakennarar og mun kennslan fara fram í fjarnámi að hluta til eða að öllu leyti. Þrír nemendur af miðstigi tóku þátt í svæðismóti í skák á Akureyri síðastliðinn föstudag og næsta laugardag munu fjórir nemendur af miðstigi taka þátt á íslandsmóti skólasveita í skák í Rimaskóla í Reykjavík.
Auglýsa þarf eftir 1, 75 stöðugildi fyrir næsta vetur og er fyrri auglýsing búin að fara í loftið. Það eru komnar umsóknir en auglýsa þarf aftur vegna þess að umsækjendur hafa ekki leyfisbréf kennara. Starfsfólk GÞ fer allt á skyndihjálparnámskeið í apríl.
Samstarf við Barnaból og Naust hefur verið einstaklega ánægjulegt í vetur.

7. Skýrsla leikskólastjóra Barnabóls
Foreldrasamtöl fóru fram í mars og gengu mjög vel. Við bjuggum að þessu sinni til undirbúningsblað fyrir foreldra til að skoða fyrir samtölin og mældist það vel fyrir.
Það hafa allir starfsmenn áhuga á að halda áfram hjá okkur og því engar breytingar í starfsmannamálum. Það er einn kennari í fæðingarorlofi sem kemur aftur inn í apríl 2027. Við höfum byrjað að skipuleggja námsferð sem við förum í næsta vor, annað hvort verður farið til Split eða Prag en þá er flogið beint frá Akureyri. Allir starfsmenn fara á námskeið í skyndihjálp í apríl. Við fögnum sólinni og vorinu og vonum að lóðaframkvæmdir geti hafist sem fyrst að nýju. Verktaki stefnir á að byrja um miðjan maí þegar lóðin hefur náð að þorna. Það hafa verið uppbrotsdagar og fræðsludagar hjá okkur, til að mynda fengum við heimsókn frá hjúkrunarfræðingum frá HSN á Alþjóðlega tannverndardaginn.

8. Önnur mál
a) Erindi frá kennurum - Mikilvægi þess að nýbygging skólahúsnæðis innihaldi matsal
kennarar, leiðbeinendur og stuðningsfulltrúar við Grunnskólann á Þórshöfn vildu koma á framfæri rökstuddum áhyggjum og ábendingum varðandi fyrirhugaða viðbyggingu grunnskólans. Það eru þeim mikil vonbrigði að heyra að áætlanir geri ekki ráð fyrir matsal og móttökueldhúsi og vilja benda á jákvæðu áhrif sem matsalur og móttökueldhús myndi hafa á skólastarfið og þau tækifæri sem glatast ef matsalur verður ekki hluti af hönnun.

Velferðarmál

9. Aðlögun innflytjenda – kynning frá Nordregi
     05.1 Fræðsla fölmenningardeildar VMST
     05.2 Fundur VMST með fjölmenningarfulltrúum

Bókun um afgreiðslu: Nefndin bendir á verkefni í samþykktri atvinnustefnu þar sem lagt er til að skipaður sé mótttökufulltrúi.

Samþykkt samhljóða

10. Tillaga að starfslýsingu verkefnastjóra velferðar- og fræðslumál
Velferðarmál hafa oft setið á hakanum á svæðinu þar sem vantar hendur til að sinna þeim. Með því að ráða inn starfsmann, mögulega í samstarfi við Norðurþing er hægt að gera betur í velferðarmálum.

Bókun um afgreiðslu: Velferðar- og fræðslunefnd leggur til að starfsmaður verði ráðinn til að sinna velferðarmálum ásamt tilfallandi verkefnum hér á svæðinu. Lagt er til að eiga samtal við Norðurþing varðandi útfærslu starfs og verkefnaskiptingu milli Norðurþings og starfsmanns út frá núverandi samningum.

Samþykkt samhljóða

11. Áskrift á smáforritinu Iðunni - sjúkrasögusmáforrit fyrir Naust
Iðunn smáforrit gerir heilbrigðisstarfsfólki kleift að skrá viðkvæmar upplýsingar beint í sjúkraskrá á öruggan hátt. Þetta eykur gæði og öryggi þjónustu og stuðlar að betri yfirsýn yfir heilsufar skjólstæðinga.

Bókun um afgreiðslu: Nefndin leggur til við sveitarfélagið að Naust taki upp notkun á smáforritinu Iðunni.

Samþykkt samhljóða.

12. Önnur mál
a) Læknisþjónusta á svæðinu

Bókun um afgreiðslu: Velferðar- og fræðslunefnd lýsir áhyggjum sínum af fyrirkomulagi læknisþjónustu á svæðinu vegna ófærðar sem hefur verið um Hófaskarð á árinu sem hefur haft veruleg áhrif á aðgengi að þessari grunnþjónustu. Núverandi fyrirkomulag læknisþjónustu felur í sér að læknir sem sinnir þjónustu á Þórshöfn er staðsettur á Kópaskeri í um klukkutíma akstursfjarlægð. Við lokun Hófaskarðs raskast þjónustan verulega þar sem læknir kemst ekki til starfa á Þórshöfn. Þórshöfn er stærsti þéttbýliskjarni á staðnum og austan skarðsins búa um 600 íbúar. Nefndin telur að þetta fyrirkomulag tryggi ekki nægjanlegt öryggi eða aðgengi að heilbrigðisþjónustu fyrir íbúa, sérstaklega í ljósi tíðrar ófærðar yfir vetrarmánuði. Nefndin leggur áherslu á að tryggð verði föst búseta læknis á Þórshöfn.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl. 15:40.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?