Fara í efni

34. fundur velferðar- og fræðslunefndar

16.02.2026 14:30

Fundur velferðar- og fræðslunefndar

34. fundur velferðar- og fræðslunefndar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2, mánudaginn 16. febrúar 2026 kl. 14:30.

Mætt voru: Sigríður Friðný Halldórsdóttir formaður, Þórarinn J. Þórisson, Jóhann Hafberg Jónasson Margrét Guðmundsdóttir og Árni Bragi Njálsson. Björn S. Lárusson sveitarstjóri. Sigríður formaður sem ritaði fundargerð.

Áheyrnarfulltrúar fræðslumála: Hilma Steinarsdóttir skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn, Halldóra J. Friðbergsdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Hjördís Matthilde Henriksen fyrir kennara Barnabóls og Almar Marinósson fyrir foreldrafélag grunnskólans.

Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var gengið til dagskrár.

Fundargerð

Fræðslumál:

1. Atvinnustefna Langanesbyggðar – verkefni VFN
     01.1 Bókun sveitarstjórnar um atvinnustefnu.

Bókun um afgreiðslu: Velferðar og fræðslunefnd leggur til að atvinnustefnan verði lögð fyrir að hausti og valin verkefni til að vinna áfram. Nú þegar er einu sameiginlegu verkefni Kistunnar og Grunnskólans lokið og annað í vinnslu sem og Menntastefnan.

Samþykkt samhljóða.

2. Tillögur að framkvæmd styttingu vinnuvikunnar á Barnabóli
Leikskólinn hóf innleiðingu á styttingu vinnuvikunnar árið 2021 og hefur starfað með 37 stunda vinnuviku síðan. Farin var blönduð leið, þ.e. að stytta vinnuvikuna um tvær stundir innan vikunnar og safna einni stundu á viku upp í dagsfrí á átta vikna fresti. Mikil ánægja hefur verið með þetta fyrirkomulag, en það hefur á köflum valdið starfsfólki töluverðu álagi. Samkvæmt kjarasamningum eiga starfsmenn rétt á 36 stunda vinnuviku. Ljóst er að við getum ekki innleitt 36 stunda vinnuviku án þess að gera einhverjar breytingar.

Bókun um afgreiðslu: Leikskólastjóra falið að gera könnun meðal foreldra um viðhorf þeirra til framlagðra tillaga.

Samþykkt samhljóða.

3. Baklandshópur farsældar
     03.1 Erindisbréf farsældarráðs Norðurlands eystra.
     03.2 Skipurit Farsældarráðs Norðurlands eystra.
 Lagt fram til kynningar

4. 50. fundur byggðaráðs – liður 5. Niðurstöður rannsókna á grunnskólanum A og B hluta. Næstu skref – yfirlit heildarkostnaðar. 
     04.1 Hlutfallsrakamælingar – kostnaður við viðgerð.
     04.2 Sundurliðun - kostnaður við viðgerð á A+B og anddyris án gólfbrota og án útveggja.
     04.3 Sundurliðun – nýbygging 2 hæðir og rif á C hluta.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir niðurstöðum og fór yfir bókun byggðaráð og hvað sú bókun þýðir.

Bókun um afgreiðslu: Velferðar- og fræðslunefnd biðlar til sveitarstjórnar að hafa þarfagreiningu sem unnin var haust 2025 í huga þegar unnið er að hönnun skólahúsnæðis.

Samþykkt samhljóða..

Bókun skólastjóra vegna fyrirhugaðra breytinga á skólahúsnæði:
Fyrir liggur ákvörðun um að ráðast í endurbætur á hluta skólahúsnæðisins og rífa annan hluta þess. Með þeirri leið er stefnt að því að nýta það húsnæði sem er í góðu ásigkomulagi og aðlaga það að nútímakröfum, jafnvel þótt það kalli á breytingar á skipulagi og nýtingu rýma. Mikilvægt er að við slíka uppbyggingu sé horft til langtímasjónarmiða og heildarhagsmuna skólasamfélagsins. Ég tel þó ástæðu til að gera athugasemd við að ekki sé gert ráð fyrir mötuneyti innan nýrrar skólabyggingar. Samkvæmt fyrirliggjandi áformum munu nemendur áfram þurfa að fara yfir bílaplan til að sækja hádegismat í félagsheimili staðarins. Þótt samstarf við rekstraraðila þar hafi verið farsælt og gangi vel í dag er ljóst að ákvarðanir um húsnæði skóla eru teknar til næstu áratuga. Skipulag skólahúsnæðis þarf að taka mið af öryggi nemenda, samfellu í skólastarfi og sjálfstæði skólans til framtíðar. Það er ekki sjálfgefið að rekstrarforsendur eða samstarfsaðilar verði óbreyttir um ókomin ár. Sú afstaða felur ekki í sér að mælt sé gegn því að sami aðili annist rekstur mötuneytis áfram eða að skólinn leiti til verktaka um þá þjónustu. Áherslan snýr að því að aðstaðan sjálf sé innan skólahúsnæðisins en rekstrarformið geti eftir sem áður verið sveigjanlegt. Jafnframt er mikilvægt að skólinn hafi aðgang að eigin sal eða fjölnota rými innan skólahúsnæðisins. Slík aðstaða styður við fjölbreytt skólastarf, ýmsar samkomur og sýningar og aðra viðburði sem eru mikilvægur hluti af skólasamfélaginu. Salur innan skólans eykur hvata til að efna til fjölbreyttra viðburða og auðveldar skipulag og framkvæmd þeirra án þess að reiða sig alfarið á utanaðkomandi húsnæði. Í fyrirliggjandi áformum er gert ráð fyrir starfsemi tónlistarskóla og bókasafns innan skólahúsnæðisins og þeim rýmum sem ekki eru til staðar í núverandi skólahúsnæði. Það finnst mér ánægjulegt og mikilvægt skref, enda styrkir slík samþætting bæði skólastarf og menningarlíf í samfélaginu. Ég vona og er bjartsýn á áframhaldandi farsæla og metnaðarfulla vinnu, hver sem að henni kemur, sem styrkir skólasamfélagið til framtíðar.

5. Menntastefna – niðurstöður fundar 3. febrúar 2026
Formaður nefndarinnar gerði grein fyrir viðræðum við Gunnar Gíslason vegna Menntastefnu en stefnt er að því að kalla saman menntastefnuhóp fyrir mars lok til að yfirfara viðmið stefnunnar.

6. Skýrsla leikskólastjóra leikskólans Barnabóls – Skólaþjónustan og samræming leik og grunnskóla
Unnið hefur verið að smá viðhaldi á leikskólanum, búið er að mála öll rými nema Starfsmannaaðstöðuna ca. 80% af leiskólanum. Einnig er búið að loka betur stöfnunum á húsinu og voandi þá búið að loka fyrir að það geti skafið snjór inn undir. Árleg starfsþróusamtöl verða á næstu tveim vikum. Við erum að innleiða nýtt kerfi í stað Karellen og stefnt verður að því að taka það í notkun í mars. Við erum líka að vinna í að gera nýja heimasíðu fyrir leikskólann. Lóðaframkvæmdir eru bara stopp meðan frost er í jörð en stefnt er að því að framkvæmdum verði lokið 17.júní.

Samstarf leik-og grunnskóla er mjög gott. Við skólastjórnendur erum í teymi og fundum vikulega. Í því er mjög mikill stuðningur og gerir það að verkum að samstarfið verður líka meira milli skólanna.  Samstarf við skólaþjónustu gengur ágætlega, og eru þær að koma samkvæmt palni. Það d att ein ferð niður fyrir áramót sem á eftir að "skila".

7. Skýrsla skólastjóra Grunnskólans á Þórshöfn - Skólaþjónustan og samræming leik og grunnskóla
Varðandi samhæfingu leik og grunnskóla sem er á tímalínu fræðslunefndar í febrúar þá hafa kennarar í leik- og grunnskóla endurskipulagt samstarfið á milli skólanna. Stjórnunarteymið þar sem skólastjóri, leikskólastjóri og deildarstjóri stoðþjónustu sitja í funda vikulega og ýmis mál tekin þar fyrir. Deildarstjóri stoðþjónustu sem jafnframt er tengiliður farsældar sér að mestu um samskipti og skipulag við þá skólaþjónustu sem kemur utan frá. Þar nýtum við þjónustu talmeinafræðings og sálfræðings. Í farsæld sækjum við þjónustu á öðru og þriðja stigi hjá félagsþjónustu Norðurþings.
Mikið hefur verið um veikindi hjá starfsfólki GÞ, bæði langtíma og stakir dagar, eðlilegar skýringar að baki en hefur áhrif á launaáætlun.
Drög að skóladagatali er tilbúið en þó eftir að leggja fyrir skólaráð og svo fræðslunefnd. Starfsmannasamtölum er lokið og fer að skýrast hvort og hvaða stöður þarf að auglýsa. Framundan er svo öskudagur sem er skertur dagur hjá okkur og svo tveggja daga vetrarfrí. Eftir vetrarfrí taka við þrjár þemavikur, það er heilsuvika, lestarvika og stærðfræðivika.
Í mars verða nýju samræmdu prófin lögð fyrir nemendur í 4. -10. bekk. Skylda er að leggja fyrir 4. 6. og 9.bekk en boðið er upp á próf fyrir aðra bekki og ætlum við að nýta okkur það. Þessi próf eru ekki grunnur að inntöku á næsta skólastigi, þ.e. framhaldskóla, þau eru til að skoða stöðu nemenda og eiga að gagnast þeim. Prófað er í íslensku og stærðfræði. Prófað er í lestri og lesskilningi í íslensku, ekki hlustun og því má ekki lesa upp fyrir nemendur en hins vegar er boðið upp á upplestur í stærðfræði. Hægt er að sækja um undaþágu í þeim bekkjum sem skylda er að leggja fyrir í en ástæða þykir til. Úrvinnsla niðurstaða verður í apríl og niðurstöður ættu að koma í maí. Prófin verða árleg og verður tímaramminn fjórar vikur fyrir páskafrí.

8. Önnur mál

Velferðarmál:

9. Önnur mál
Rætt um líkgeymslumál á svæðinu.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl. 16:06.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?