Fara í efni

33. fundur velferðar- og fræðslunefndar

21.01.2026 14:30

Fundur velferðar- og fræðslunefndar

33. fundur velferðar- og fræðslunefndar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2, miðvikudaginn 21. janúar 2026 kl. 14:30.

Mætt voru: Sigríður Friðný Halldórsdóttir formaður, Þórarinn J. Þórisson, Jóhann Hafberg Jónasson og Silvía Jónsdóttir. Björn S. Lárusson og Bjarnheiður Jónsdóttir skrifstofustjóri sem ritaði fundargerð.

Áheyrnarfulltrúar fræðslumála: Hilma Steinarsdóttir skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn, Halldóra J. Friðbergsdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Magdalena Zawodna fyrir kennara grunnskólans og Almar Marinósson fyrir foreldrafélag grunnskólans.

Formaður spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki og var gengið til dagskrár.

Fundargerð

Fræðslumál:

1. Niðurstöður á ítarlegri rannsókn á myglu í grunnskólanum A, B og C rými- Sveitarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála.

2. Menntastefna Langanesbyggðar – staða.
Vinna við Menntastefnu Langanesbyggðar hefur tafist. Það á eftir að setja inn viðmið í stefnuna en að öðru læti er vinnan langt komin. Mikilvægt er að stefnan klárist sem fyrst.

Bókun um afgreiðslu: Formanni og sveitarstjóra falið að funda með skólaráðgjafa Langanesbyggðar um vinnulok stefnu.

Samþykkt samhljóða.

3. Skýrsla skólastjóra Grunnskólans á Þórshöfn.
Breytingar urðu á teymi elsta stigs á nýju ári, þar er kennari farinn í orlof vegna barneigna. Nýr stuðningsfulltrúi var ráðinn þar inn þar sem stuðningsfulltrúinn sem var þar fyrir var ráðin í afleysingu sem leiðbeinandi út vorönnina.
Starfsmannasamtöl eru hafin og undirbúningur fyrir næsta vetur. Eftir samtöl verða þær stöður auglýstar sem þarf að auglýsa.
Þriðja valönnin hófst í gær 20. janúar og lýkur henni 17. mars. Það er gaman að segja frá því að þrír nýir vinnustaðir taka þátt núna en það eru Langanesbitinn, Kjörbúðin og verksmiðjan. Annað sem boðið er upp á er þrek, heimanám, skólahreysti, olíu- og vatnslitamálun, skotboltaleikir, aðstoðaþjálfari, prjón, hekl og hnýtingar, podcast og skólablað og snyrtifræði hjá Sonju en þetta er önnur valönnin sem Sonja snyrtifræðingur tekur þátt í.
Bundið val er bekkjaskipt og byrjuðu nýir hópar í gær í heimilisfræði, list og verkgreinum og í náttúrufræði.
Þorrablót verður hjá okkur þriðjudaginn 27. janúar. Þar koma fjölskyldur saman með mat í bakka og nemendur sjá um að skemmta okkur öllum. Þorrablótið er haldið í Þórsveri og hefst kl. 17.00.

4. Skýrsla skólastjóra Leikskólans Barnabóls.
Desember mánuður var mjög skemmtilegur og lögðum við okkur fram við að breyta aðeins til og minnka álag og spennu sem er mikil í desember hjá litlum krílum. Við erum alltaf í góðu samstarfi við Grunnskólann og vorum við með sameiginlega útikennslu/stund í desember þar sem við gæddum okkur á smákökum og súkkulaði. Poppað var yfir eldi og var þetta mjög skemmtileg stund.
Nýja árið fer vel af stað hjá okkur, ég er að klára að ráða inn afleysingu vegna fæðingarorlofs og það komu fjórar umsóknir og ég tók tvo umsækjendur í viðtal. Stefni á að klára þetta fyrir lok þessarar viku.
Það eru þrjú börn í aðlögun þessa viku og gengur vel, 24 börn eru nú í heildina í leikskólanum.
Þorrablót verður hjá okkur á föstudaginn en hefðin er að bjóða pöbbunum í smá þorrahitting á þessum degi.

Velferðarmál:

5. Fundargerð stjórnar Menningarmiðstöðvar Þingeyinga frá 03.12.2025.
Fundargerð lögð fram.

6. Fyrirkomulag íbúða aldraðra og öryrkja.
Drög að nýju formi leigusamnings og húsreglum kynntar.

Bókun um afgreiðslu: Formanni og forstjóra Nausts falið að fullvinna gögnin samkvæmt umræðum og bera undir félagsþjónustu Norðurþings.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl. 16:06.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?