27. fundur velferðar- og fræðslunefndar
Fundur velferðar- og fræðslunefndar
27. Fundur velferðar- og fræðslunefndar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2, mánudaginn 2. júní 2025 kl. 14:00.
Mætt voru: Sigríður Friðný Halldórsdóttir, Jóhann Hafberg Jónasson, Hulda Kristín Baldursdóttir, Árni Bragi Njálsson, Þórarinn Þórisson og Björn Sigurður Lárusson ritaði fundagerð.
Áheyrnarfulltrúar: Hilma Steinarsdóttir skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn, Halldóra J. Friðbergsdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Hjördís Matthildur Henriksen fyrir kennara leikskólans, Magdalena Zawodna fyrir kennara grunnskólans og Jóhanna Ósk Guðmundsdóttir fyrir foreldrafélag leikskólans Barnabóls.
Þorri Friðriksson, forstöðumaður þjónustumiðstöðvar sat fundinn undir lið 5 og 6.
Sigurbjörn Veigar Friðgeirsson sat fundinn undir lið 10 og 11.
Fræðslumál:
1. Innra mat leikskólans Barnabóls – uppgjör ársins 2024-2025
Innra mat leikskóla er greining og fagleg ígrundun á starfi leikskólans þar sem gæði og árangur skólastarfs er metinn. Matið er samofið daglegu starfi og er samvinnuverkefni alls skólasamfélagsins. Leikskólinn notast við skólapúlsinn, starfsmannaviðtöl og foreldraviðtöl, matsblöð deildarstjóra o.fl. Í matsteymi sitja leikskólastjóri ásamt tveimur starfsmönnum. Innra mats áætlun var tekin fyrir síðastliðið haust og nefndin bókaði þá eftirfarandi:
Viðmið um innra mat leikskólans uppfyllt að mati nefndar en nefndin stefnir að því að taka málið upp aftur að vori þegar niðurstöður innra mats 2024-2025 liggja fyrir. Stefnt að því til framtíðar að taka innra mat fyrir tvisvar á ári, að hausti þar sem fjallað er um matsáætlun og að vori þar sem fjallað er um niðurstöður innra mats og umbótaáætlunar.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin lýsir yfir ánægju sinni með framkvæmd innra matsins og stefnir að því að halda áfram með það fyrirkomulag að taka innra matið tvisvar á ári, að hausti annarsvegar og vori hins vegar.
Samþykkt samhljóða.
2. Starfsáætlun leikskólans Barnabóls 2025-2026
Leikskólastjóri fer yfir starfsáætlun 2025-2026.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir starfsáætlun leikskólans Barnabóls 2025-2026
Samþykkt..
3. Innra mat Grunnskólans á Þórshöfn – uppgjör ársins 2024-2025
Innra mat grunnskóla er fagleg ígrundun og greining á gögnum um skólastarfið þar sem mat er lagt á hversu vel tekst að ná þeim gæðum og árangri sem stefnt er að út frá fyrirfram ákveðnum viðmiðum. Með innra mati er vonast til að ná fram auknum gæðum náms og betri námsárangri, eflingu fagmennsku og styrkingu lærdómssamfélags og betri upplýsingagjöf. Innra mats áætlun var tekin fyrir síðastliðið haust og nefndin bókaði þá eftirfarandi:
Viðmið um innra mat Grunnskólans uppfyllt að mati nefndar en nefndin stefnir að því að taka málið upp aftur að vori þegar niðurstöður innra mats 2024-2025 liggja fyrir. Stefnt að því til framtíðar að taka innra mat fyrir tvisvar á ári, að hausti þar sem fjallað er um matsáætlun og að vori þar sem fjallað er um niðurstöður innra mats og umbótaáætlunar.
Skólastjóri fór yfir drög að innra mats skýrslu og niðurstöður kannana skoðaðar. Unnið er að umbótaáætlun og verður hún lögð fyrir nefndina í haust.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin vísar í bókun undir 1 lið þar sem lýst er yfir ánægju með framkvæmd innra matsins og stefnt að því að halda áfram með það fyrirkomulag að taka innra matið tvisvar á ári, að hausti annarsvegar og vori hins vegar.
Samþykkt samhljóða.
4. Starfsáætlun Grunnskólans 2025-2026
Skólastjóri fór yfir drög að starfsáætlun Grunnskólans 2025-2026. Enn er unnið að því að skipuleggja næsta skólaár sem verður ákveðin áskorun í ljósi þess að ekki verður hægt að kenna í hluta húsnæðis skólans og þarf því að finna aðrar lausnir.
5. Ástand skólahúsnæðis
Skólastjóri og sveitarstjóri fóru yfir niðurstöður sýnatöku vegna raka í skólahúsnæði og hvaða aðgerða þarf að grípa til fyrir næsta skólaár.
Lagt fram til kynningar.
6. Grunnskóla- og leikskólalóðin framkvæmdir 2025 – staða mála
Í vetur hefur verið í undirbúningi endurbætur á báðum skólalóðum sem stóð til að ætti að fara í sumar. Skólastjórnendur og sveitarstjóri fara yfir stöðu framkvæmda og áætlun sumarsins en ekki er ljóst hvort hægt verði að fara í framkvæmdir í ár.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin leggur áherslu á að allra leiða verði leitað til að hægt sé að fara í framkvæmdir á lóðunum sem fyrirhugaðar eru í ár. Lóðirnar eru ekki boðlegar til skólastarfs eins og þær eru núna og mikilvægt að fara í framkvæmdir sem fyrst.
Samþykkt samhljóða.
7. Skýrsla skólastjóra
Þemadagar og vorferðalög gengu mjög vel. Þemað var fuglar og var farið í fuglaskoðunarferðir út á Langanes og ýmis fjölbreytt verkefni unnin. 10.bekkur fór í útskriftarferð til Portúgal, 8. og 9.bekkur fóru á Akureyri og yngsta og miðstig fóru í dagsferðir hér á svæðinu.
Sýningin Tungubrestur og listsköpun var opnuð formlega um helgina á Bakkafirði. Níu sögum, þ.e. myndum eftir nemendur á miðstigi og QR kóðum er dreift um þorpið, QR kóðinn vísar svo á sögurnar sem nemendur í 8.-10.bekk gerðu undir leiðsögn Ævars Þórs Benediktssonar. Hægt er bæði að hlusta á höfunda lesa sögurnar og lesa þær af skjánum.
Skólaslit fóru fram föstudaginn 30. maí í Þórsveri og var fólki svo boðið yfir í grunnskólahúsnæði á verkefna-, mynd og handmenntasýningu.
Í byrjun maí kom upp grunur um myglu í kennslustofu 8. og 9. bekkjar, Eldjárnstöðum. Stofunni var tafarlaust lokað. Í kjölfarið voru tekin 19 sýni úr veggjum og gólfum úr eftirfarandi rýmum í suðurálmu skólans: úr bekkjastofu 8. og 9. bekkjar, bekkjarstofu 10. bekkjar (Brimnes), skiptistofu (Staðarsel), salernum og gangi. Niðurstöður sýndu að mygla greindist í 12 sýnum, öllum úr gólfum. Mygla fannst í öllum prófuðum rýmum, sem þýðir að allur austurhluti suðurálmu er mengaður. Niðurstöðurnar bárust í byrjun síðustu viku og var málið tekið fyrir á byggðarráðsfundi miðvikudaginn 28. maí. Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar verður líklega að loka allri suðurálmunni og finna bráðabirgðahúsnæði fyrir næsta skólaár. Þetta hefur víðtæk áhrif þar sem í álmunni eru nú bekkjastofur 4.-10. bekkjar, tvö salerni, vinnuaðstaða kennara og kaffistofa. Þetta er mikið áfall en við munum einbeita okkur að lausnum til að tryggja óskert skólastarf þrátt fyrir þessar erfiðu aðstæður. Við munum geta notað önnur húsnæði í eigu Langanesbyggðar.
Uppfæra þarf allar stundaskrá, sem annars voru tilbúnar fyrir næsta vetur, með það í huga að fækka ferðum á milli kennslurýma, bæði fyrir starfsfólk og nemendur. Starfsfólk nýtir starfdaga núna m.a. í að pakka niður á mið- og unglingastigi og í vinnurými kennara.
Eins og áður hefur komið fram þá fékk skólinn styrk frá Endurmenntunarsjóði grunnskóla fyrir verkefnið „Það starfsfólk vex í starfi sem að er hlúð.“ Verkefnið byrjaði á því að Huld Aðalbjarnardóttir lífs þjálfi var hjá okkur í hálfan dag og svo stóð öllu starfsfólki til boða að fá þrjá einkatíma í markþjálfun hjá Önnu Þorsteinsdóttur. Almenn ánægja er með verkefnið. Unnið er að lokaskýrslu og fæst styrkurinn greiddur þegar búið er að skila henni inn.
8. Skýrsla leikskólastjóra
Maí mánuður var dásamlegur hjá okkur, veðrið lék við okkur og farið var mikið í vettvangsferðir í nágrenni leikskólans.
Stekkur fór í árlega sveitaferð og að þessu sinni var farið í heimsókn í Miðfjarðarnes. Fram undan er svo útskrift og útskriftarferð hjá elsta árgangi okkar.
Við lentum í því í apríl að það fór að leka vatn inn á yngri deildina frá þaki en þetta hefur tvisvar gerst áður. Talið var að búið væri að koma í veg fyrir þennan vanda en því miður virðist svo ekki vera. Mikilvægt er að þetta verði skoðað betur og reynt að finna orsök vandans.
Velferðarmál:
10. Líkamsræktaraðgangur utan opnunartíma
Sigurbjörn V. Friðgeirsson, forstöðumaður íþróttarmiðstöðvarinnar, kemur inn á fund og fer yfir fyrirkomulag með aldurstakmark fyrir veitingu aðgangskóða að Íþróttamiðstöð utan opnunartíma.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin felur forstöðumanni íþróttamiðstöðvar að uppfæra „Yfirlýsingu aðgangs að Íþróttamiðstöð utan hefðbundins opnunartíma“ í samræmi við umræður á fundi.
Samþykkt samhljóða.
11. Aðsent bréf – Crossfit aðstaða
Aðsent bréf þar sem óskað er eftir bættri aðstöðu í Íþróttamiðstöð til Crossfit iðkunar.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin fagnar framtakinu og auknum fjölbreytileika í þeirri hreyfingu sem hægt er að stunda í sveitarfélaginu. Forstöðumaður íþróttamiðstöðvar tekur málið áfram í samvinnu við innsendanda bréfsins.
Samþykkt samljóða.
12. Móttökubréf nýrra íbúa
Ákall hefur verið um það frá nýbúum að sveitarfélagið sé með móttökuáætlun eða móttökubréf til að auðvelda þeim inngildinu í samfélagið.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin leggur til að sveitarfélagið sendi móttökubréf ásamt frímiða í sundlaugina á Þórshöfn til nýbúa í Langanesbyggð. Eins telur nefndin að sveitarfélagið ráði fjölmenningarfulltrúa í 10-20% starfshlutfall til að sinna nýbúamálum og fleiri verkefnum sem tilheyra málaflokknum.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 16:00.