26. fundur velferðar- og fræðslunefndar
Fundur velferðar- og fræðslunefndar
26. Fundur velferðar- og fræðslunefndar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2, mánudaginn 5. maí 2025 kl. 14:30.
Mætt voru: Sigríður Friðný Halldórsdóttir, Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Þórarinn Þórisson og Bjarnheiður Jónsdóttir ritaði fundagerð.
Áheyrnarfulltrúar: Hilma Steinarsdóttir skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn, Halldóra J. Friðbergsdóttir leikskólastjóri Barnabóls (í fjarfundi), Hjördís Matthildur Henriksen fyrir kennara leikskólans, Magdalena Zawodna fyrir kennara grunnskólans, Steinunn Guðnadóttir tengiliður farsældar barna og Jóhanna Ósk Guðmundsdóttir fyrir foreldrafélag leikskólans Barnabóls.
Fundargerð
Fræðslu- og velferðarmál
1. Heimsókn verkefnastjóra farsældar barna Þorleifs Kr. Níelssonar.
Þorleifur er starfsmaður SSNE sem vinnur að innleiðingu farsældarlaga á Norðurlandi eystra samkvæmt lögum um svæðisbundin farsældarráð. Hann fór yfir verkefni sín og næstu skref.
2. Rekstur Grunnskólans 2024
Hilma Steinarsdóttir, skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn, fór yfir lykiltölur í rekstri grunnskólans 2024. Rekstur grunnskólans er í jafnvægi og heildar rekstarniðurstaða undir áætlun sem má rekja meðal annars til undirmönnunar á vorönn.
3. Rekstur Barnabóls 2024
Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir, leikskólastjóri Barnabóls, fór yfir lykiltölur í rekstri leikskólans 2024. Almennt fór leikskólinn 3. milljónir yfir áætlun en hækkunina má rekja til hækkunar á matvöru og ráðinn var starfsmaður í hlutastarf í stoðþjónustu.
4. Skólapúlsinn – Niðurstöður foreldra- og starfsmannakannana Barnabóls
Leikskólastjóri fer yfir niðurstöður foreldra og starfsmannakannana skólapúlsins á Barnabóli árið 2024.
Bókun: Niðurstöður könnunar foreldra kom vel út þátt fyrir lækkun frá síðustu könnun. Foreldrar setja helst út á útisvæði leikskólans. Starfsmannakönnunin kom mjög vel út.
Samþykkt samhljóða.
5. Skólapúlsinn – Niðurstöður starfsmannakannana Grunnskólans.
Skólastjóri fer yfir niðurstöður starfsmannakönnunar skólapúlsins í Grunnskólanum á Þórshöfn 2024.
Bókun: Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að starfsmenn grunnskólans eru almennt mjög ánægðir í starfi en þó mætti starfsmannaaðstaða grunnskólans vera betri.
Samþykkt samhljóða.
6. Skýrsla leikskólastjóra Barnabóls
Gengur vel hjá okkur. Ég auglýsti eftir matráð í móttökueldhús og ræstingu og fékk þrjár flottar umsóknir. Halla Rún Halldórsdóttir var ráðin. Enginn leikskólakennari sótti um hjá okkur og því mun ég endurráða þá leiðbeinendur sem ég hef og auka starfshlutfall Jódísar í 100% vegna fjölgunnar yngri barna hjá okkur.
Starfsmannakönnun skólapúlsins kom frábærlega út og ég mjög stolt af þeirri niðurstöðu, sem sýnir m.a. að starfsfólkinu líður mjög vel í vinnunni.
7. Skýrsla skólastjóra Grunnskólans á Þórshöfn
Vortónleikar Tónlistarskóla Langanesbyggðar fóru fram 1. maí, eftir tónleika bauð Verka-lýðsfélag Þórshafnar upp á kökuhlaðboð í tilefni verkalýðsdagsins. Aneta formaður þakkaði nemendum vel fyrir og tilkynnti að VÞ myndi vilja gefa Tónlistarskóla Langanes-byggðar 200.000 kr og þökkum við kærlega fyrir það.
Seinni heimsókn Ævars Þórs Benediktssonar og verkefnavinna í tengslum við verkefnið Tungubrestur og listsköpun fór fram dagana 22. og 23. apríl. Vinnan fór fram á Bakkafirði og var það skemmtileg tilbreyting og gekk vel. Eftir þá vinnu liggja fyrir níu sögur sem verður áfram unnið með og verða þær til sýnis á hátíðinni Grásleppan sem fram fer á Bakkafirði 31. maí.
10. bekkur er nú á leiðinni til Portúgal í útskriftarferð, þar verða þau í fimm daga. Árni Davíð (kennari) og Jón Rúnar (foreldri) fóru með hópnum.
Miðstig heimsótti Öxarfjarðarskóla síðastliðinn miðvikudag. Þar tókum við þátt í skákmóti og voru tefldar fjórar umferðir. Við enduðum daginn á hópeflisleikjum og góðum há-degisverði. Þetta var góður dagur og vel tekið á móti okkur.
Nú á miðvikudag fara 5. - 9. bekkur á Vopnafjörð og taka þar þátt í smiðjum á vegum há-skólalestarinnar.
Stjórn nemendafélagsins ætlar að gefa öllum nemendum peysu merkta skólanum, þau hafa verið mjög dugleg að safna í vetur og eiga fyrir því.
Skólaferðalög og þemadagar þar sem þemað er fuglar fara fram síðustu tvær vikur í maí og skóla verður slitið föstudaginn 30. maí.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 16:10.