25. fundur velferðar-og fræðslunefndar
- Fundur velferðar- og fræðslunefndar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu Langanesbyggðar að Langanesvegi 2, mánudaginn 7. apríl 2025 kl. 14:30.
Mætt voru: Sigríður Friðný Halldórsdóttir, Jóhann Hafberg, Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Björn S. Lárusson og Sigríður Friðný Halldórsdóttir ritaði fundagerð.
Áheyrnarfulltrúar: Hilma Steinarsdóttir skólastjóri Grunnskólans á Þórshöfn, Sigríður Ósk Indriðadóttir fyrir leikskólastjóra Barnabóls, Magdalena Zawodna fyrir kennara grunnskólans, Almar Marinósson fyrir foreldrafélag grunnskólans og Jóhanna Ósk Guðmundsdóttir fyrir foreldrafélag leikskólans Barnabóls.
Formaður setti fund og spurði hvort athugasemdir væru gerðar við fundarboð. Formaður óskaði eftir því að liður nr. 9 yrði færður undir fræðslumál og yrði því niður númer 6.
Fundargerð
Fræðslumál
- Ósk um tímabundna leikskólavist sumarið 2025.
Innsend umsókn um tímabundið leikskólapláss barns í sumar.
Bókun um afgreiðslu: Starfsmaður leikskóla greinir frá því að svigrúm sé til þess að taka á móti barni. Nefndin samþykkir tímabundna leikskóladvöl sumarið 2025 fyrir sitt leiti og að greitt verði samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða
- Skóladagatal leikskólans Barnabóls skólaár 2025-2026
Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir framlagt skóladagatal fyrir veturinn 2025-2026.
Samþykkt samhljóða.
- Skóladagatal Grunnskólans á Þórshöfn skólaár 2025-2026
Bókun um afgreiðslu: Nefndin samþykkir framlagt skóladagatal fyrir veturinn 2025-2026.
Samþykkt samhljóða.
- Skýrsla skólastjóra leikskólans Barnabóls
Skólastarfið gengur mjög vel hjá okkur. Við erum orðin mjög spennt fyrir því að hafist verði handa við að endurnýja leikskólalóðina, verkteikningar fyrir leikskólalóðina eru á lokametrunum.
Foreldrasamtöl gengu mjög vel og mikil ánægja með leikskólann okkar.
Fuglaþema er hjá okkur í apríl og maí á báðum deildum.
- Skýrsla skólastjóra Grunnskólans á Þórshöfn
Fjórir nemendur úr 4. og 5.bekk tóku þátt í Íslandsmóti barnaskólasveita í skák sem fram fór í Reykjavík 29.mars og þessir sömu nemendur tóku þátt í svæðismóti í skólaskák fyrir Norðurland eystra sem fór fram á Akureyri 4.apríl. Frétt og myndir eru á heimasíðunni okkar en við leggjum upp úr því að hafa heimasíðuna lifandi og koma þar inn fréttir úr skólastarfinu í hverri viku og myndir í myndasafn.
Umsóknarfrestur um þær stöður sem voru auglýstar fyrir næsta skólavetur rennur út í dag og verður umsækjendum svarað sem fyrst.
Kamila er í veikindaleyfi og fer svo í fæðingarorlof. Aðalbjörg María Marinósdóttir kemur inn 6.maí tvo daga í viku, kennarar sem eru fyrir bæta á sig einhverjum tímum og gerðar voru smávægilegar breytingar á stundaskrám til að dekka alla tíma sem Kamila var með.
Drög að skóladagatali er klárt til að leggja fyrir fræðslunefnd en það fór tvisvar fyrir starfsmannafund og var einnig tekið fyrir á teymisfundi stjórnenda leik- og grunnskóla.
Í vetur, líkt og í fyrravetur höfum við verið undir leiðsögn Önnu Sigrúnar Rafnsdóttur hjá MSHA við að innleiða leiðsagnarnám. Í vetur tókum við fyrir samræðustofna, nemendastýrð samtöl og markmið og viðmið. Í haust höldum við áfram og tökum fyrir endurgjöf og skipulag í skólastofu og starfi.
Pisa könnun verður lögð fyrir nemendur okkar í 10.bekk á morgun, sérstök áhersla er lögð á náttúruvísindi. Jónas Ólafsson frá Mennta og barnamálaráðuneytinu kemur og leggur könnunina fyrir.
Búið er að panta þau leiktæki sem tilheyra áfanga eitt í skólalóðinni og verkteikningar klárar.
- Áætlun um aðgerðir vegna ofbeldis barna
Áhyggjur af ofbeldi meðal barna og gegn börnum hafa aukist í íslensku
samfélagi, ekki síst í ljósi alvarlegra ofbeldisatvika og fjölgunar tilkynninga til
barnaverndar og lögreglu. Mikil vinna hefur átt sér stað þvert á ráðuneytin til þess að kortleggja birtingarmyndir ofbeldis meðal barna og gegn börnum og tillögur mótaðar að aðgerðum í 25 liðum í skýrslunni.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin óskar eftir því að aðgerðaráætlun og þeim liðum sem snúa að sveitarfélaginu verði fylgt eftir í samstarfi við viðeigandi aðila. Nefndin mun taka upp skýrsluna aftur haust 2025 til umræðu.
Samþykkt samhljóða
- Önnur mál
Velferðarmál:
- Frumkvæðisathugun á akstursþjónustu sveitarfélaganna
Lagt fram til kynningar.
- Málefni félagsþjónustu í LNB –
Haldinn var fundur með félagsþjónustu Norðurþings líkt og velferðar og fræðslunefnd óskaði eftir á síðasta fundi nefndarinnar. Umræðuefni fundarins var verkaskipting Norðurþings og Langanesbyggðar varðandi félagslega heimaþjónustu og í hvaða farveg eigi að setja þau mál sem Langanesbyggð er gert að sinna samkvæmt samningi.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin tekur undir þær tillögur sem eru lagðar til í minnisblaði og hvetur sveitarstjórn í samvinnu við sveitarstjóra til að koma málunum í farveg.
Samþykkt samhljóða.
- Önnur mál.
Nefndin hvetur íbúa til þess að mæta á erindið „Afleiðingar og viðbrögð vegna áfalla og sorgar innan samfélags“ á Holtinu 10. apríl kl. 20. Erindið er á vegum Langanesbyggðar og Kirkjunnar, aðgangur ókeypis og öll velkomin.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 15:54