65. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar 16. október 2026
65. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2, Þórshöfn, föstudaginn 16. október 2026. Fundur settur kl. 10:00.
Mætt voru: Jóhann Hafberg Jónasson oddviti, Mateusz Swierczewski, Júlíus Þröstur Sigurbjartsson, Christina Elisabeth Merkel, Sigurður Þór Guðmundsson, Dagur Indriðason, Björn S. Lárusson, Jón Hrói Finnsson og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki.
Dagskrá
- Fundargerð 63. fundar byggðaráðs frá 2. október 2026.
- Fundargerð 54. fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 30. september 2026.
- Fundargerð 28. fundar atvinnu- og menningarnefndar Langanesbyggðar frá 5. október 2026.
- Fundargerð 38. fundar velferðar- og fræðslunefndar frá 5. október 2026.
- Fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11. september 2026.
- Fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. ágúst 2026.
- Þinggerð Haustþings SSNE frá 9. september 2026.
- Fundargerð 86. fundar stjórnar SSNE frá 15. september 2026.
- Reglur um þóknun kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum Langanesbyggðar.
- Ákvörðun um viðmið við hækkun gjaldskráa árið 2027.
- Breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp Langanesbyggðar.
- Skýrsla sveitarstjóra.
Fundargerð
1. Fundargerð 63. fundar byggðaráðs frá 2. október 2026.
Fundargerð lögð fram.
2. Fundargerð 54. fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 30. september 2026.
Fundargerð lögð fram.
Liður 5: Beiðni Árna Davíðs Haraldssonar um breytingu á staðfangi.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir að heitið Gunnarsstaðir 2 lóð verði leiðrétt í Gunnarsstaðir 2 enda sé um leiðréttingu á eldri misskráningu að ræða. Byggingarfulltrúa er falið að annast nauðsynlegar breytingar á staðfangi og fasteignaheiti í fasteignaskrá og öðrum viðeigandi skrám.
Samþykkt samhljóða.
3. Fundargerð 28. fundar atvinnu- og menningarnefndar Langanesbyggðar frá 5. október 2026.
Liður 2; Erindi – skipan Fjölmenningarráðs.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir að Aneta Potrykus verði tengiliður Langanesbyggðar í fjölmenningarráð SSNE og komi fram fyrir hönd sveitarfélagsins í málefnum er varða innflytjendur.
Samþykkt samhljóða.
Liður 5; Erindisbréf atvinnu- og menningarmálanefndar.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir erindisbréf Atvinnu- og menningarnefndar.
Samþykkt samhljóða.
4. Fundargerð 38. fundar velferðar- og fræðslunefndar frá 5. október 2026.
Fundargerð lögð fram.
Liður 3; Menntastefna Langanesbyggðar.
Lögð fram drög að menntastefnu Langanesbyggðar sem unnin var af stýrihópi um mennta-stefnu með aðstoð Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir Menntastefnu Langanesbyggðar.
Samþykkt samhljóða.
Liður 4; Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027–2030.
Lögð fram drög að áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir áætlunina.
Samþykkt samhljóða.
5. Fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11. september 2026.
Fundargerð lögð fram.
6. Fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. ágúst 2026.
Fundargerð lögð fram.
7. Þinggerð Haustþings SSNE frá 9. september 2026.
Þinggerð lögð fram.
8. Fundargerð 86. fundar stjórnar SSNE frá 15. september 2026.
Fundargerð lögð fram.
9. Reglur um þóknun kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum Langanesbyggðar.
Lagðar fram reglur Langanesbyggðar um þóknun kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, nefndum og ráðum á vegum Langanesbyggðar.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn staðfestir reglurnar óbreyttar.
Samþykkt samhljóða.
10. Ákvörðun um viðmið við hækkun gjaldskráa árið 2027.
Langanesbyggð hafa borist áskoranir frá Starfsgreinasambandinu og Verkalýðsfélagi Þórshafnar um að halda gjaldskrárhækkunum innan við 2,5% á komandi ári til að stemma stigu við verðlagshækkunum. Á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga var samþykkt ályktun sama efnis og Ríkisstjórn Íslands, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband Íslenskra sveitarfélaga hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem hvatt er til þess að sveitarfélög leiti leiða til að takmarka hækkanir gjaldskráa sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs.
Til máls tóku: Sigurður Þór, sveitarstjóri, Dagur, Sigurður Þór, sveitarstjóri.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir að stefna að því að gjaldskrár sem snúa að heimilum og fjölskyldum hækki að hámarki 2,5%.
Samþykkt samhljóða.
11. Breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp Langanesbyggðar.
Lögð fram tillaga að breytingum á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Langanesbyggðar nr. 1251/2022.
Til máls tóku: Sveitarstjóri, Sigurður Þór, Júlíus, sveitarstjóri, Sigurður Þór.
Sigurður Þór lagði fram að í stað tölunnar 7 í 1. gr. komi talan 5.
Þeir sem samþykkja tillögu: Jóhann, Björn, Christina, Sigurður Þór, Dagur og Júlíus. Þeir sem sitja hjá: Mateusz.
Júlíus lagði fram til að bætt verði við ákvæði sem heimilar sveitarstjórn að kjósa fleiri en einn varaoddvita ef hún telur þörf á.
Tillaga samþykkt samhljóða.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir breytingarnar og vísar þeim til síðari umræðu.
Þeir sem samþykkja bókunina: Jóhann, Björn, Christina, Sigurður Þór, Dagur og Júlíus. Þeir sem sitja hjá: Mateusz.
12. Skýrsla sveitarstjóra.
Forseti, sveitarstjórnarfulltrúar, starfsmaður og gestir. Starfsemi sveitarfélagsins undanfarnar vikur hefur að mestu verið hefðbundin miðað við árstíma.
Af starfsemi slökkviliðsins er það helst að frétta að hún hefur verið tíðindalítil síðustu vikur og engin útköll. Brunavarnaáætlunin sem samþykkt var á síðasta sveitarstjórnarfundi hefur verið birt á vef HMS. Æfingu sem til stóð að halda 17. október var frestað til 24. október vegna vetrarfría, en slökkviliðsstjóri hefur farið í nokkrar skoðanir á brunavörnum fyrirtækja. Svo er slökkviliðið að búa sig undir heimsóknir nemenda úr leik- og grunnskóla sem eru væntanleg seinni hluta mánaðarins.
Haustið fór vel af stað á Nausti og lífið gengur sinn vana gang. Þar eru tvö hjúkrunarrými laus og eitt dvalarrými en útlit fyrir að nýir íbúar bætist í hópinn áður en langt um líður. Samstarf við leik og grunnskóla er hafið og þykir gefa góða raun, en það felst í því að nemendur koma í heimsókn og verja tíma með íbúum.
Skólastarfið í grunnskólanum hefur verið fjölbreytt og viðburðaríkt í haust, lesfimipróf hafa verið lögð fyrir og nemenda- og foreldrasamtöl eru nýyfirstaðin. Nemendur og starfsfólk fengu kynningu á starfsemi Bergsins í gær, en Bergið býður upp á gjaldfrjálsa ráðgjöf fyrir ungmenni á aldrinum 12–25 ára. Starfsmaður Bergsins verður með viðveru á Þórshöfn tvisvar á ári en einnig er alltaf hægt að bóka fjarsamtöl eða nýta þjónustuna á Húsavík og Akureyri. Fram undan eru vetrarfrí, starfsdagur og þemadagar í tengslum við árshátíð skólans sem haldin verður 19. nóvember.
Starfsdagur var haldinn í Barnabóli 17. september sl. Dagurinn var meðal annars nýttur í námskeið um YAP, sem stendur fyrir Young Athletes Program. YAP byggir á markvissri hreyfiþjálfun sem hægt er að samþætta öðru námi og starfi með börnum. Einnig var unnið með framkvæmdaráætlun skólans í Jákvæðum aga og farið yfir áherslur starfsins fram að áramótum. Foreldrasamtöl standa yfir þessa dagana og ganga að sögn leikskólastjóra mjög vel. Þeim lýkur í næstu viku. Að auki hefur verið unnið að skimunum, bæði Hljóm-2 og EFI. Í framhaldinu verður unnið með niðurstöðurnar í samvinnu við foreldra og deildarstjóra stoðþjónustu, með það að markmiði að styðja sem best við nám og þroska barnanna.
Verkefnastjóri Kistunnar hefur að undanförnu unnið að verkefnum sem hlutu styrki á síðasta ári. Það eru verkefni varðandi Gönguleið um Langanes og Langanesströnd "Gönguleið um söguslóðir", samstarfsverkefni um fjarvinnustöðvar á Bakkafirði, Þórshöfn og Raufarhöfn, flotstund í sundlauginni á Þórshöfn sem haldið var í tengslum við skráningu Íslenskrar sundlaugarmenningar á heimsminjaskrá UNESCO. Einnig er verið að útbúa fundarherbergi í einni kennslustofanna í skólahúsinu á Bakkafirði í tengslum við verkefnið Betri Bakkafjörður. Unnið er að umsóknum vegna verkefna á næsta ári og verkefnisstjóri aðstoðar og leiðbeinir einnig öðrum umsækjendum um umsóknarferlið. Að auki hefur verkefnisstjóri unnið að upplýsingasíðu um þróunarverkefni í Langanesbyggð sem búist er við að fari í loftið á næstu dögum, samhliða könnun á viðhorfi íbúa til verkefnanna.
Í síðustu viku sótti ég og Jóhann oddviti aðalfund Samtaks sveitarfélaga á köldum svæðum og ársfundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Ég sat einnig stofnfund samtaka Landbúnaðarsveitarfélaga sem áheyrnarfulltrúi, þar sem Langanesbyggð var ekki meðal þeirra sveitarfélaga sem boðið var að taka þátt í stofnuninni. Sveitarstjórn mun svo þurfa að ákveða hvort hún gengur í félagið.
Við Jóhann sátum svo Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga ásamt Júlíusi sveitarstjórnarfulltrúa og Bjarnheiði skrifstofustjóra, auk þess sem ferðin var notuð til að funda með samstarfsaðilum okkar í Þróunarfélagi Finnafjarðarhafnar (FFPD), Fulltrúa wpd og fulltrúum nokkurra ráðuneyta vegna þeirra þróunarverkefna sem unnið er að í Langanesbyggð.
Annars er vinna við fjárhagsáætlun það sem við sjáum fram á að taki mest pláss í starfsemi skrifstofunnar og byggðarráðs á næstunni, en tillaga að fjárhagsáætlun á lögum samkvæmt að liggja fyrir þann 1. nóvember.
Vinna við gerð nýs aðalskipulags er formlega hafin. Þann 30. september héldu ráðgjafar frá Landslagi kynningu á skipulagi vinnunnar fram undan, auk þess sem haldin var vinnustofa með fulltrúum í skipulagsnefnd. Skipulagsnefndin hyggst funda örar en venjulega á næstu mánuðum til að skapa rými fyrir Aðalskipulagsvinnuna.
Von er á burðarþolssérfræðingi á svæðið í næstu viku til að skoða aðstæður í C-álmu grunnskólans og í íþróttamiðstöðinni Veri í tengslum við gerð framkvæmdaáætlunar, en það er að ýmsu að hyggja í þeim efnum.
Tilboð í byggingu harðviðarbryggju í Þórshafnarhöfn voru opnuð 22. september sl. Þrjú tilboð bárust en lægstbjóðandi dró tilboð sitt til baka. Verkáætlun hljóðaði upp á 155 m.kr. en lægsta tilboð sem eftir stendur hljóðar upp á 161 m.kr.
Mikilvægur áfangi náðist í úrgangsmálum sveitarfélagsins í liðinni viku þegar starfsmenn þjónustumiðstöðvar tóku í notkun sorppressu til að minnka umfang efnis til endurvinnslu og hluta nýrrar sorpflokkunarstöðvar í notkun. Til stendur að gera tilraunir með jarðgerð í húsnæðinu á næstunni.
Einnig má nefna að næsta laugardag verður vatn tekið af þorpinu vegna vinnu við stofnlögn sem er seinasti áfangi tengdur vatnsveitu vegna vinnu við veginn yfir Brekknaheiði.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl. 11:00.