Fara í efni

64. fundur sveitarstjórnar

18.09.2026 10:00

Fundur í sveitarstjórn

64. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2, Þórshöfn, föstudaginn 18. september 2026. Fundur settur kl. 10:00.
Mætt voru: Jóhann Hafberg Jónasson oddviti, Mateusz Swierczewski, Júlíus Þröstur Sigurbjartsson, Christina Elisabeth Merkel, Sigurður Ragnar Kristinsson, Sigurður Þór Guðmundsson, Jón Hrói Finnsson, sveitarstjóri, og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð. Björn S. Lárusson, varamaður, sat fundinn í stað Ólínu Ingibjargar Jóhannesdóttur.

Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð. Svo var ekki.

Þórarinn J. Þórisson, slökkviliðsstjóri, mætti á fundinn undir 6. og 7. lið.

D a g s k r á

 

1. Fundargerð 62. fundar byggðaráðs frá 11. september 2026 ­­­– aukafundur
2.
Fundargerð 53. fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 9. september 2026
     2.1. Liður 4: Staðarárvirkjun í Bakkafirði – deiliskipulag
3. Fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. ágúst 2026
4. Fundargerð 8. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra 9. september 2026
5. Farsæld barna á Norðurlandi eystra – svæðisbundin forgangsröðun 2027–2030
6. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun – niðurstaða á úttekt á slökkviliði Langanesbyggðar
7. Brunavarnaáætlun Langanesbyggðar
8. Erindi frá stjórn starfsmannafélags Langanesbyggðar
9. Siðareglur sveitarstjórnar Langanesbyggðar
10. Skýrsla sveitarstjóra

Fundargerð

 

1. Fundargerð 62. fundar byggðaráðs frá 11. september 2026 – aukafundur
Lögð fram til kynningar.

2. Fundargerð 53. fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 9. september 2026
Lögð fram til kynningar.

2.1. Liður 4: Staðarárvirkjun í Bakkafirði – deiliskipulag
Vinnslutillaga að breytingu á Aðalskipulagi Langanesbyggðar og tillaga að nýju deiliskipulagi vegna Staðarárvirkjunar í Bakkafirði hafa verið kynntar í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
Bókun nefndarinnar var eftirfarandi: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögurnar og leggur til við sveitarstjórn að tillaga að aðalskipulagsbreytingu verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til athugunar og að því loknu auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga. Jafnframt leggur nefndin til að tillaga að nýju deiliskipulagi verði auglýst samhliða samkvæmt 41. gr. laganna.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir að aðalskipulagsbreytingin verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til athugunar og að því loknu auglýst samkvæmt 31. gr. skipulagslaga ásamt því að tillaga að nýju deiliskipulagi verði auglýst samhliða aðalskipulagsbreytingunni samkvæmt 41. gr. laganna.

Samþykkt samhljóða.

3. Fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. ágúst 2026
Lögð fram til kynningar.

4. Fundargerð 8. fundar Farsældarráðs Norðurlands eystra 09. September 2026
Lögð fram til kynningar.

5. Farsæld barna á Norðurlandi eystra – svæðisbundin forgangsröðun 2027–2030
Lögð fram til kynningar.

6. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun – niðurstaða á úttekt slökkviliði Langanesbyggðar
Niðurstöður úttektar HMS á slökkviliði Langanesbyggðar lagðar fram til kynningar.

Fyrir sveitarstjórn liggja niðurstöður úttektar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) á starfsemi Slökkviliðs Langanesbyggðar, sem fram fór 14. apríl 2026. HMS óskar eftir að sveitarstjórn taki niðurstöðurnar til umfjöllunar og leggi fram áætlun um úrbætur vegna athugasemda stofnunarinnar.

Þórarinn J. Þórisson, slökkviliðsstjóri, fór yfir niðurstöður úttektarinnar og stöðu úrbóta.

Til máls tóku: Mateusz, oddviti, Sigurður Ragnar.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn felur slökkviliðsstjóra, í samráði við sveitarstjóra, að taka saman stöðu þeirra úrbóta sem þegar hefur verið ráðist í, gera áætlun um þær úrbætur sem eftir standa og koma henni á framfæri við HMS.

Samþykkt samhljóða.

7. Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Langanesbyggðar
Fyrir sveitarstjórn liggur brunavarnaáætlun Slökkviliðs Langanesbyggðar sem unnin hefur verið af slökkviliðsstjóra og yfirfarin af Húsnæðis- og mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS).

Þórarinn J. Þórisson, slökkviliðsstjóri, fór yfir helstu þætti brunavarnaáætlunarinnar.

Til máls tóku: oddviti, Sigurður Þór.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi brunavarnaáætlun Slökkviliðs Langanesbyggðar með fyrirvara um fjárveitingar í fjárhagsáætlun og felur slökkviliðsstjóra að fylgja eftir þeim aðgerðum og úrbótum sem fram koma í framkvæmdaáætlun.

Samþykkt samhljóða.

8. Erindi frá stjórn starfsmannafélags Langanesbyggðar
Stjórn starfsmannafélags Langanesbyggðar óskar eftir því við sveitarstjórn að hún niðurgreiði kort fyrir starfsmenn sveitarfélagsins í íþróttahúsið eða veiti þeim frístundastyrk.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn vísar erindinu til byggðaráðs.

Samþykkt samhljóða.

9. Siðareglur sveitarstjórnar Langanesbyggðar
Lagðar fram siðareglur Langanesbyggðar sem samþykktar voru á 43. fundi sveitarstjórnar Langanesbyggðar þann 15. apríl 2025.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn staðfestir siðareglurnar óbreyttar.

Samþykkt samhljóða.

10. Skýrsla sveitarstjóra

Forseti, ágæta sveitarstjórn og gestir.

Þessir fyrstu dagar eftir að ég tók til starfa 1. september hafa verið nokkuð annasamir. Það er margt sem nýr sveitarstjóri þarf að setja sig inn í og læra samhliða því að sinna starfinu.
Ég er búinn að fara í heimsóknir í báðar starfsstöðvar grunnskólans, þjónustumiðstöðina, Kistuna, Naust og slökkvistöðina til að kynna mér starfsemina, sýna mig og sjá aðra og skoða aðstöðuna. Ég heimsótti líka Ísfélagið og vonast til að geta heimsótt fleiri fyrirtæki áður en langt um líður.
Starfsemi sveitarfélagsins er núna komin á fullt eftir sumarið. Skólastarfið er komið í fullan gang bæði í grunn- og leikskóla. Á degi Íslenskrar náttúru fóru nemendur elsta stigs í vettvangsferð til Húsavíkur og á Tjörnes og skoðuðu söfn og náttúruvætti en yngri nemendur unnu með náttúru í nærumhverfi. Í leikskólanum var unnið í hópum með haustið í tilefni dagsins.

Tónlistarskóli með nýju sniði fer vel af stað og ásókn í tónlistarnámið er góð.

Starfsmenn þjónustumiðstöðvar sinna ýmsum viðhaldsverkefnum að vanda, en auk hins daglega amsturs er unnið að því að undirbúa eina íbúðanna á Bakkavegi fyrir útleigu og að framkvæmdum til að verja vatnslögn við vegstæðið á Brekknaheiði, en þar er nú unnið að mikilvægum vegabótum. Framkvæmdirnar við vatnslögnina ganga að því er mér er sagt vel.

Það hefur verið mikið um fundarhöld eins og gengur þegar ný sveitarstjórn og nýr sveitarstjóri mæta til starfa. Við funduðum m.a. með lögreglunni um samstarf og sameiginleg hagsmunamál. Ég sat ásamt Birni Ingimarssyni stjórnarfund í þróunarfélagi Finnafjarðar (FFPD), fundaði með forstöðumanni og starfsmönnum Þekkingarnets Þingeyinga hér á staðnum, auk þess sem sveitarstjórn fundaði með Albertínu Friðbjörgu Elíasdótturframkvæmdastjóra SSNE og Gunnari Má Gunnarssyni fyrrum verkefnisstjóra betri Bakkafjarðar og verkefnis um innviðauppbyggingu í Langanesbyggð um þau verkefni sem lokið er og mögulegt framhaldsverkefni um eflingu Norðausturhornsins.

Ég ásamt sveitarstjórnarfulltrúunum Sigurði Þór, Júlíusi og Jóhanni Hafberg sátum Haustþing SSNE þann 9. september sl. þar sem rætt var um sameiginleg hagsmunamál sveitarfélaganna á svæðinu og unnið með tillögur að stefnu Sambands Íslenskra sveitarfélaga sem áfram verður unnið með á Landsþingi sambandsins í næstu viku.

Við Bjarnheiður funduðum einnig með fjármálaráðgjafa frá KPMG um fjárhagsáætlunarferlið sem er að hefjast og vinna við átta mánaða uppgjör er komin af stað, en á grundvelli þess má gera spá um afkomu yfirstandandi árs sem aftur gefur vísbendingar um stöðu og horfur í rekstrinum og leggur grunn að vinnunni við fjárhagsáætlun næstu ára.

Að síðustu langar mig að nefna að búið er að auglýsa útboð á framkvæmdum við Harðviðarbryggju á Þórshöfn sem gert er ráð fyrir að hefjist á næsta ári. Bryggjan mun að bæta aðstöðu fyrir smábáta í höfninni, bæði þeirra sem stunda fiskveiðar og þjónustubáta farþegaskipa.


Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:40.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?