63. fundur sveitarstjórnar, aukafundur
Fundur í sveitarstjórn
63. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, aukafundur, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, föstudaginn 28. ágúst 2026. Fundur settur kl. 10:00.
Mætt voru: Jóhann Hafberg Jónasson oddviti, Mateusz Swierczewski, Júlíus Þröstur Sigurbjartsson, Christina Elisabeth Merkel, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Sigurður Ragnar Kristinsson, Sigurður Þór Guðmundsson og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Einnig sat Jón Hrói Finnsson fundinn.
Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki.
D a g s k r á
1. Fundargerð 58. fundar byggðaráðs frá 10. júlí 2026.
2. Fundargerð 59. fundar byggðaráðs, aukafundar, frá 17. júlí 2026.
3. Fundargerð 60. fundar byggðaráðs frá 7. ágúst 2026.
4. Fundargerð 61. fundar byggðaráðs, aukafundar, frá 20. ágúst 2026.
5. Fundargerð 52. fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 11. ágúst 2026.
6. Fundargerð 27. fundar atvinnu- og menningarnefndar frá 11. ágúst 2026.
6.1. Liður 4: SSNE – Stoðir atvinnu- og mannlífs í Langanesbyggð 2026.
7. Fundargerð 10. fundar landbúnaðar- og dreifbýlisnefndar frá 10. ágúst 2026.
7.1. Liður 1: Erindisbréf landbúnaðar- og dreifbýlisnefndar.
7.2. Liður 6: Girðingamál meðfram nýjum vegi á Brekknaheiði.
8. Fundargerð stjórnar SSNE nr. 85 frá 11. ágúst 2026.
9. Fundargerð HNE nr. 250 frá 30. júlí 2026.
10. Kynningarbréf - Samtök sjávarútvegssveitarfélaga.
11. Kynningarbréf – Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum.
12. Þingboð á haustþing SSNE.
13. Erindi innviðaráðuneytisins – gerð grænbókar um málefni sveitarfélaga.
14. Úttekt á rekstri Langanesbyggðar – samantekt á niðurstöðum.
15. Ráðningarsamningur sveitarstjóra – til samþykktar.
16. Framlenging lánalínu og yfirdráttarheimildar – til samþykktar.
17. Skýrsla staðgengils sveitarstjóra.
Fundargerð
1. Fundargerð 58. fundar byggðaráðs frá 10. júlí 2026.
Lögð fram til kynningar.
2. Fundargerð 59. fundar byggðaráðs frá 17. júlí 2026.
Lögð fram til kynningar.
3. Fundargerð 60. fundar byggðaráðs frá 7. ágúst 2026.
Lögð fram til kynningar.
4. Fundargerð 61. fundar byggðaráðs, aukafundur, frá 20. ágúst 2026.
Lögð fram til kynningar.
5. Fundargerð 52. fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 11. ágúst 2026.
Lögð fram til kynningar.
Við yfirferð fundargerðar, eftir að útsendingu lauk, var ákveðið að taka upp lið 1 úr fundargerð.
5.1. Liður 1: Tunguárvirkjun í Þistilfirði.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa tillögurnar í samræmi við 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn felur skipulagsráðgjafa Langanesbyggðar að óska eftir leyfi HMS skv. 3.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til að auglýsa breytingu á aðalskipulagi áður en tillögurnar verða auglýstar saman.
Samþykkt samhljóða.
6. Fundargerð 27. fundar atvinnu- og menningarnefndar frá 11. ágúst 2026.
Lögð fram til kynningar.
6.1. Liður 4: SSNE Stoðir atvinnu- og mannlífs í Langanesbyggð 2026.
Bókun nefndarinnar var eftirfarandi: Báðar þessar skýrslur, úr 3. og 4. lið, tengjast að öllu leyti í málefnum sem varða atvinnumál og mannlíf í Langanesbyggð og þar með hlutverki nefndarinnar. Skýrslurnar skarast að nokkru leiti. Nefndin leggur til að gerð verði samantekt og aðgerðaráætlun sem byggir á þessum skýrslum og því skilað til nefndarinnar til umfjöllunar. Sveitarstjórn ákveði hvort og þá hverjum verði falið verkið. Verkefnum í samantektinni verði forgangsraðað eftir mikilvægi, efnum og ástæðum. Meginflokkarnir verði: atvinnumál, innviðir og mannlíf.
Til máls tóku : Sigurður Þór, Sigurður Ragnar.
Bókun um afgreiðslu: Málinu er vísað til byggðaráðs.
Samþykkt samhljóða.
7. Fundargerð 10. fundar landbúnaðar- og dreifbýlisnefndar.
Lögð fram til kynningar.
7.1. Liður 1: Erindisbréf landbúnaðar- og dreifbýlisnefndar.
Bókun nefndarinnar var eftirfarandi: Nefndin gerir engar athugasemdir við erindisbréf nefndarinnar nema óskar eftir upplýsingum um hverjir sitja í stjórn Svalbarðsskóla.
Til máls tóku: Sigurður Þór, Sigurður Ragnar.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir erindisbréf landbúnaðar- og dreifbýlisnefndar með þeirri breytingu að tilvísun til stjórnar Svalbarðsskóla verði felld brott, enda er slík stjórn ekki starfandi.
Með bókun: Jóhann, Sigurður Ragnar, Christina, Mateusz, Ólína.
Þeir sem sitja hjá: Júlíus og Sigurður Þór.
7.2. Liður 6: Girðingamál meðfram nýjum vegi á Brekknaheiði.
Vegagerðin hafnaði á sínum tíma að girða meðfram nýjum vegi á Brekknaheiði á þeim rökum að ekki væri um nýframkvæmd að ræða. Helstu rök Vegagerðarinnar eru fjarri raunveruleikanum þar sem að nýr vegur er meira og minna í tugi metra fjarlægð frá núverandi vegi.
Bókun nefndarinnar var eftirfarandi: Landbúnaðar- og dreifbýlisnefnd hvetur sveitarstjórn til að taka upp viðræður að nýju við Vegagerðina þar sem augljóst er að ógirtur nýr vegur mun stórauka líkur á slysum bæði fyrir menn og skepnur. Svæðið sem um ræðir er skipulagt Landbúnaðarland (afrétt) og því mun aukin umferð og hærri umferðarhraði stórauka slysahættu á svæðinu. Nefndin bendir jafnframt á að víða annars staðar hafa verið byggðir upp vegir og girt meðfram þeim eins og sjá má í Vopnafirði, Hólaheiði og víðar.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn tekur undir bókun nefndarinnar og felur nýjum sveitarstjóra að hefja að nýju viðræður við Vegagerðina um girðingar meðfram nýjum vegi á Brekknaheiði. Í þeim viðræðum verði sérstaklega vísað til umferðaröryggis og þeirrar slysahættu sem skapast vegna búfjár á svæðinu.
Með bókun: Jóhann, Sigurður Ragnar, Christina, Mateusz, Ólína, Júlíus.
Þeir sem sitja hjá: Sigurður Þór.
8. Fundargerð stjórnar SSNE nr. 85 frá 11. ágúst 2026.
Lögð fram til kynningar.
9. Fundargerð HNE nr. 250 frá 30. júlí 2026.
Lögð fram til kynningar.
10. Kynningarbréf – Samtök sjávarútvegssveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
11. Kynningarbréf – Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum.
Lagt fram til kynningar.
12. Þingboð á haustþing SSNE.
Lagt fram til kynningar.
13. Erindi frá Innviðaráðuneytinu – gerð grænbókar um málefni sveitarfélaga.
Innviðaráðuneytið vinnur að endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga og er óskað eftir svörum sveitarfélaga við meðfylgjandi spurningalista vegna gerðar grænbókar. Skilafrestur er 21. september 2026.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn felur skrifstofustjóra að vinna svör Langanesbyggðar við spurningalista innviðaráðuneytisins vegna gerðar grænbókar um málefni sveitarfélaga og senda ráðuneytinu innan tilskilins frests.
Samþykkt samhljóða.
14. Úttekt á rekstri Langanesbyggðar – samantekt á niðurstöðum.
Á fundi með sveitarstjórn þann 26. ágúst sl. kynnti Björn Ingimarsson niðurstöður úttektar sinnar á rekstri Langanesbyggðar. Niðurstöðurnar benda til þess að grípa þurfi til markvissra aðgerða til að bæta rekstrarafkomu sveitarfélagsins og tryggja sjálfbæran rekstur til framtíðar.
Björn lagði til að sveitarstjórn útbúi verk- og tímaáætlun um þær aðgerðir sem ákveðið verður að ráðast í og að stefnt verði að því að áætlunin liggi fyrir árslok 2026.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn þakkar Birni Ingimarssyni fyrir vandaða og gagnlega úttekt á rekstri Langanesbyggðar. Sveitarstjórn felur byggðarráði að fara nánar yfir niðurstöður úttektarinnar og vinna tillögu að aðgerðaáætlun, sem lögð verði fyrir sveitarstjórn til umfjöllunar og afgreiðslu fyrir árslok 2026.
Samþykkt samhljóða.
15. Ráðningarsamningur sveitarstjóra.
Lögð fram drög að samningi við Jón Hróa Finnsson um ráðningu í starf sveitarstjóra Langanesbyggðar frá 1. september n.k.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir fyrirliggjandi ráðningarsamning. Jón Hrói tekur til starfa 1. september og verður frá og með þeim degi prókúruhafi sveitarfélagsins. Oddvita er falið að undirrita ráðningarsamninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
16. Framlenging lánalínu og yfirdráttarheimildar – til samþykktar.
Lánalína að fjárhæð 130.000.000 kr., sem sveitarfélaginu var veitt árið 2025 vegna byggingar nýs grunnskóla, rennur út 1. október 2026.
Lagt er til að lánalínan verði hækkuð í allt að 250.000.000 kr. og gildistími hennar framlengdur um eitt ár.
Gert er ráð fyrir að á vormánuðum 2027 liggi fyrir skýrari áætlanir um fyrirhugaðar byggingar- og viðhaldsframkvæmdir á vegum sveitarfélagsins. Þá verði unnt að leggja heildstætt mat á fjármögnunarþörf sveitarfélagsins og fyrirkomulag langtímafjármögnunar vegna framkvæmdanna. Jafnframt er óskað eftir samþykki sveitarstjórnar fyrir framlengingu þeirra yfirdráttarheimilda sem sveitarfélagið hefur haft.
Til máls tóku: Sigurður Þór, Sigurður Ragnar, Sigurður Þór, Sigurður Ragnar.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir framlagða tillögu. Sveitarstjóra falið að ganga frá samningum vegna lánalínu og yfirdráttarheimildar.
Samþykkt samhljóða.
17. Skýrsla staðgengilssveitarstjóra.
Hr. oddviti og sveitarstjórnarfulltrúar.
Ég vil byrja á að bjóða sveitarstjórn velkomna aftur til starfa eftir sumarleyfi. Ég vona að þið hafið átt gott og ánægjulegt sumar og komið endurnærð til þeirra fjölmörgu verkefna sem fram undan eru. Þótt hefðbundið fundarhald sveitarstjórnar hafi legið niðri yfir sumartímann hefur starfsemi sveitarfélagsins að sjálfsögðu haldið áfram. Ýmislegt hefur borið til tíðinda og mun ég stikla á stóru um það helsta.
Fastanefndir Langanesbyggðar hafa nú allar haldið sína fyrstu fundi, sem og hafnarnefnd og landbúnaðar- og dreifbýlisnefnd. Á næstu vikum verður svo skipað í aðrar nefndir sveitarfélagsins.
Yfirkjörstjórn og undirkjörstjórnir hafa einnig komið saman og fundað vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þær munu taka vel á móti kjósendum á kjördag og hvet ég alla til að nýta kosningarétt sinn.
Ungmennin í vinnuskólanum og sumarstarfsfólk þjónustumiðstöðvarinnar lögðu sitt af mörkum við að halda sveitarfélaginu fallegu og snyrtilegu yfir sumarmánuðina. Hópurinn var fámennari en undanfarin ár, enda árgangarnir í vinnuskólanum óvenju fámennir þetta árið. Þrátt fyrir það skilaði hópurinn góðu starfi og á hrós skilið fyrir dugnað og vel unnin störf. Framlag þeirra skiptir gríðarlega miklu máli fyrir ásýnd sveitarfélagsins.
Bæjarhátíðin Kátir dagar fór afar vel fram og var dagskráin bæði fjölbreytt og glæsileg. Hátíðin var að þessu sinni samofin 100 ára afmæli Verkalýðsfélags Þórshafnar, sem setti skemmtilegan svip á hátíðarhöldin. Hátíðin var vel sótt og þar gátu gestir á öllum aldri fundið eitthvað við sitt hæfi. Einnig sýndu þátttakendur Skapandi sumarstarfa afrakstur vinnu sinnar á hátíðinni og kom þar vel í ljós hversu skapandi og hæfileikarík ungmenni við eigum í samfélaginu. Verkefnið hefur svo sannarlega sannað gildi sitt og er fullt tilefni til að halda því áfram. Ég vil því færa þátttakendum skapandi sumarstarfa, Verkalýðsfélagi Þórshafnar og ekki síst nefnd Kátra daga bestu þakkir fyrir glæsilega dagskrá og ómetanlegt framlag til þess að glæða samfélagið lífi og skapa ánægjulegar samverustundir fyrir íbúa og gesti.
Af öðrum ánægjulegum verkefnum í samfélaginu má nefna nýja leikskólalóð sem tekin var í notkun um miðjan ágúst. Lóðin hefur tekið miklum stakkaskiptum og er orðin einstaklega glæsileg. Hún nýtist ekki aðeins þeim 23 börnum sem nú dvelja í leikskólanum á opnunartíma, heldur er hún einnig orðin vinsæll leikstaður annarra barna utan opnunartíma. Ánægjulegt er að sjá hversu vel lóðin nýtist og hve mikil lyftistöng hún er fyrir leikskólann og samfélagið í heild. Garðvík frá Húsavík sá um framkvæmd verksins í samstarfi við aðra aðila og ber útkoman skýr merki um fagleg vinnubrögð.
Grunnskólastarf er hafið að nýju eftir sumarleyfi og stunda alls 45 nemendur nám við skólann á þessu skólaári. Nemendur elsta stigs verða áfram á efri hæð Kistunnar, en vel fór um hópinn þar á síðasta skólaári. Nemendur yngsta stigs og miðstigs hafa komið sér vel fyrir í nýuppgerðum A- og B-álmum grunnskólans. Húsnæðið er sem nýtt eftir umfangsmiklar endurbætur og er ánægjulegt að sjá það aftur komið í notkun. Enn og aftur er hægt að hrósa því frábæra fólki sem kom að þeim framkvæmdum. Við erum svo sannarlega heppin að hafa hóp fagmanna á svæðinu sem skilaði afar vönduðu verki.
Tónlistarskólinn hefur tekið upp nýtt fyrirkomulag og mun tónlistarkennsla grunnskólanemenda nú fara fram í fjarkennslu. Skólastjóri hefur sýnt mikla útsjónarsemi við að finna góða lausn sem mun án efa nýtast nemendum vel og tryggja þeim áframhaldandi aðgang að tónlistarnámi.
Fyrr í sumar gerði sveitarfélagið samning við Björn Ingimarsson um úttekt á rekstri þess. Niðurstöður úttektarinnar, ásamt ýmsum tillögum til úrbóta í rekstri, voru kynntar á vinnufundi sveitarstjórnar 26. ágúst síðastliðinn. Úttektin leiddi ýmislegt athyglisvert í ljós. Ljóst er að við stöndum frammi fyrir vandasömu verkefni við að forgangsraða þeim stóru framkvæmdum sem fram undan eru og finna jafnframt leiðir til hagræðingar í rekstri. Farið verður vandlega yfir niðurstöður úttektarinnar og í kjölfarið unnin aðgerðaráætlun til næstu ára, svo markvisst megi vinna að þeim verkefnum sem sveitarstjórn ákveður að leggja áherslu á. Ég vona svo innilega að íbúar sýni sveitarstjórn skilning á þeim ákvörðunum sem hún tekur og styðji þétt við bakið á þeim í þeirri vinnu sem fram undan er. Við skulum hafa í huga að góðir hlutir gerast oft hægt.
Eins og fram kom fyrr á fundinum hefur Jón Hrói Finnsson verið ráðinn sveitarstjóri Langanesbyggðar.
Í upphafi kjörtímabilsins bað ég sveitarstjórn um að gefa sér góðan tíma til að finna handa mér góðan yfirmann. Þið tókuð mig svo sannarlega á orðinu, gáfuð ykkur góðan tíma og vönduðuð valið vel.
Ég býð Jón Hróa hjartanlega velkominn til starfa og hlakka til samstarfsins. Ég efast ekki um að tekið verði vel á móti honum og að hann eigi eftir að kunna vel við sig hér.
Þar sem kjördagur er á morgun þykir mér við hæfi að ljúka skýrslunni á fleygum orðum Odds Skúlasonar, sem eiga merkilega oft við þegar á reynir: „Þetta reddast.“
Til máls tók Jón Hrói Finnsson.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:10.