Fara í efni

62. fundur sveitarstjórnar

06.07.2026 10:00

Fundur í sveitarstjórn

62. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, mánudaginn 6. júlí 2026. Fundur settur kl. 10:00.

Mætt voru: Jóhann Hafberg Jónasson oddviti, Mateusz Swierczewski, Júlíus Þröstur Sigurbjartsson, Christina Elisabeth Merkel, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Sigurður Ragnar Kristinsson, Sigurður Þór Guðmundsson og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki.

D a g s k r á

  1. Skipað í fastanefndir sveitarfélagsins
  2. Kjör fulltrúa og skipan í yfir- og undirkjörstjórn
  3. SSNE - Skipan stjórnar og þingfulltrúa
  4. Kjör fulltrúa á landsþing Sambands íslenska sveitarfélaga
  5. Tillaga um kjörstaði vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026
  6. Fundargerð 55. fundar byggðaráðs 28.05.2026
  7. Fundargerð 56. fundar byggðaráðs 12.06.2026
  8. Fundargerð 57. fundar byggðaráðs 26.06.2026
  9. Erindi frá Landssambandi eldri borgara
  10. Minnisblað umhverfisfulltrúa vegna friðlýsingar á Langanesi
  11. Staða framkvæmda við Grunnskóla Þórshafnar
  12. Erindi frá Magna lögmönnum vegna Eyrarvegar 1 og áforma um niðurrif
  13. Ábending frá atvinnuvegaráðuneytinu
  14. Fundardagatal Langanesbyggðar 2026
  15. Sumarleyfi sveitarstjórnar
  16. Skýrsla staðgengils sveitarstjóra
  17. Trúnaðarmál - starfsmannamál

Fundargerð

1. Skipað í fastanefndir sveitarfélagsins

Eftirfarandi tillögur liggja fyrir:

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd

Björn S. Lárusson (formaður)

Hanna Margrét Úlfsdóttir (varaformaður)

Birta Rún Ásgeirsdóttir

Silvía Jónsdóttir

Marko Umicevic

Varamenn

Aníta Reimarsdóttir

Hjörtur Harðarson

Tupaarnaq Bjerge Motzfeldt

María Valgerður Jónsdóttir

Vilborg Stefánsdóttir

Velferðar- og fræðslunefnd

Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir (formaður)

Kristín Heimisdóttir (varaformaður)

Sigríður Friðný Halldórsdóttir

Mateusz Swierczewski

Þórarinn Þórisson

Varamenn

Aldís Gunnarsdóttir

Margrét Guðmundsdóttir

Albert Jón Hólm Sigurðsson

Anna Lilja Guðmundsdóttir

Tryggvi Steinn Sigfússon

Skipulags- og umhverfisnefnd

Hildur Stefánsdóttir (formaður)

Vikar Már Vífilsson (varaformaður)

Þorsteinn Vilberg Þórisson

Þorri Friðriksson

Christina Elisabeth Merkel

Varamenn

Kristján Úlfarsson

Jódís Ósk Jónsdóttir

Sigtryggur Brynjar Þorláksson

Ina Leverköhne

Júlíus Þröstur Sigurbjartsson

Landbúnaðar- og dreifbýlisnefnd

Dagur Indriðason (formaður)

Eggert Stefánsson (varaformaður)

Halldór Halldórsson

Soffía Björgvinsdóttir

Ágúst Marinó Ágústsson

Varamenn

Árni Gunnarsson

Krzysztof Krawczyk

Einar Guðmundur Þorláksson

Marinó Níels Ævarsson

Jóhannes Ingi Árnason

Fjallskilastjóri: Árni Gunnarsson

Tillögur bornar upp til samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

 

2. Kjör fulltrúa og skipan í yfir- og undirkjörstjórn

Eftirfarandi tillögur liggja fyrir:

Fulltrúi á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

Fulltrúi: Jóhann Hafberg Jónasson

Varafulltrúi: Christina E. Merkel

Fulltrúi í stjórn SSNE

Fulltrúi: Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir

Varafulltrúi: Júlíus Þröstur Sigurbjartsson

Fulltrúar á ársþing SSNE

Fulltrúar: Sigurður Þór Guðmundsson og Júlíus Þröstur Sigurbjartsson

Varafulltrúar: Mateusz Swierczewski og Christina Elisabeth Merkel

Fulltrúi í stjórn Menningarmiðstöðvar Þingeyinga

Fulltrúi: Christina Elisabeth Merkel

Varafulltrúi: Sigurður Þór Guðmundsson

Yfirkjörstjórn

Árni Davíð Haraldsson

Halldóra Sigríður Ágústsdóttir

Heiðrún Óladóttir

Varafulltrúar

Elfa Benediktsdóttir

Sigríður Jóhannesdóttir

Bjarnheiður Jónsdóttir

Undirkjörstjórn - Þórshöfn

Jóhanna Herdís Eggertsdóttir

Svala Sævarsdóttir

Kristján Úlfarsson

Varafulltrúi

Hulda Kristín Baldursdóttir

Undirkjörstjórn - Bakkafjörður

Klara Valgerður Sigurðardóttir

Helga Guðrún Henrýsdóttir

Ólafur Björn Sveinsson

Varafulltrúi

Sigríður Ósk Indriðadóttir

Undirkjörstjórn - Þistilfjörður

Jóhannes Jónasson

Berghildur Ösp Júlíusdóttir

Hanna Margrét Úlfsdóttir

Varafulltrúi

Úlfhildur Ída Helgadóttir

Tillögur bornar upp til samþykktar.

Samþykkt samhljóða.

3. SSNE - Skipan stjórnar og þingfulltrúa

Erindi frá SSNE þar sem óskað er eftir að Langanesbyggð tilnefni fulltrúa í stjórn og á þing SSNE fyrir komandi kjörtímabil.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn felur staðgengli sveitarstjóra að tilkynna SSNE um þá fulltrúa sem skipaðir voru í 2. lið fundargerðar.

Samþykkt samhljóða.

4. Kjör fulltrúa á landsþing Samband íslenskra sveitarfélaga

Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir að Langanesbyggð tilnefni fulltrúa á landsþing kjörtímabilið 2026-2030.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn felur staðgengli sveitarstjóra að senda kjörbréf til sambandsins um þá fulltrúa sem skipaðir voru í 2. lið fundargerðar.

Samþykkt samhljóða.

5. Tillaga um kjörstaði vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026

Lögð er fram tillaga um kjörstaði í Langanesbyggð vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer 29. ágúst 2026 um hvort hefja skuli að nýju viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir eftirtalda kjörstaði við þjóðaratkvæðagreiðslu:

Þórshöfn: Skrifstofa Langanesbyggðar, Langanesvegi 2.

Bakkafjörður: Skrifstofa sveitarfélagsins, Skólagötu 5.

Svalbarðsskóli.

Samþykkt samhljóða.

6. Fundargerð 55. fundar byggðaráðs 28.05.2026

6.1. Liður 7 úr fundargerð byggðaráðs - Erindi frá Dalá ehf vegna staðsetningar á gámi.

Til máls tóku: Sigurður Ragnar, oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Þar sem ekki liggur fyrir samþykki allra meðeigenda um niðurrif hússins að Eyrarvegi 1, er ákveðið að fresta niðurrifi þar til samkomulag hefur náðst um málið.

Samþykkt samhljóða.

6.2. Liður 14 úr fundargerð byggðaráðs - Viðræður við Björgunarsveitina Hafliða um kaup á húsum sveitarinnar.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn felur Jóhanni Hafberg og Ólínu að annast viðræður við stjórn Björgunarsveitar Hafliða um hugsanleg kaup á húsnæði sveitarinnar. Þeim er jafnframt falið að vinna drög að samningi og leggja þau fyrir byggðaráð til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða.

7. Fundargerð 56. fundar byggðaráðs 12.06.2026

Lögð fram til kynningar.

8. Fundargerð 57. fundar byggðaráðs 26.06.2026

Lögð fram til kynningar.

9. Erindi frá Landssambandi eldri borgara

Landssamband eldri borgara minnir á ákvæði laga um málefni aldraðra varðandi skipun öldungaráða í sveitarfélögum og leggur áherslu á mikilvægi virks samráðs við eldra fólk í stefnumótun og þjónustu sveitarfélaga.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn þakkar erindið og vísar því til velferðar- og fræðslunefndar til umfjöllunar og stefnumótunar í samræmi við lög.

Samþykkt samhljóða.

10. Minnisblað umhverfisfulltrúa vegna friðlýsingar á Langanesi

Lagt fram til kynningar.

Til máls tóku: Sigurður Þór, Sigurður Ragnar, Sigurður Þór, Mateusz.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn ítrekar fyrri afstöðu um að unnið sé að ákveðnum skrefum að því að verði stofnaður þjóðgarður á utan verðu Langanesi.

Samþykkt samhljóða.

11. Staða framkvæmda við Grunnskóla Þórshafnar

Endurbætur á A- og B- hluta skólans eru á lokametrunum og verklok áætluð eftir tvær til þrjár vikur. Sveitarstjórn ákvað á síðasta fundi að bíða með endanlega ákvörðun varðandi útfærslu á nýbyggingu og hvort C- hluti verði mögulega endurbyggður eða rifinn, þar til niðurstaða úr yfirstandandi úttekt á rekstri og fjárhagsstöðu sveitarfélagsins liggur fyrir.

Þeirrar niðurstöðu er að vænta í lok ágúst og því mun C- hluti skólans standa fram á vor, óháð hvaða leið verður valin.

Til máls tóku: Sigurður Ragnar,

Bókun um afgreiðslu: Samningur við Rauðanes ehf er að renna út, í ljósi góðrar reynslu af umsjón og eftirliti með endurbótum á eldri hluta skólans þá felur sveitarstjórn byggðaráði að gera nýjan samning við fyrirtækið sem næði yfir væntanlegar framkvæmdir við skólabyggingu og enn fremur yfir viðhald og endurbætur á öðrum fasteignum sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

12. Erindi frá Magna lögmönnum vegna Eyrarvegar 1 og áforma um niðurrif

Bókun um afgreiðslu: Samanber bókun úr 6. lið fundargerðar þá felur sveitarstjórn byggðaráði vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.

13. Ábending frá atvinnuvegaráðuneytinu

Atvinnuvegaráðuneytið vekur athygli á regluverki um búfjárbeit og ágang búfjár og hvetur sveitarfélög til að yfirfara skipulag, afréttarskrár og fjallskilasamþykktir. Lögð er áhersla á að nýta gildandi lagaheimildir og tryggja skýra og samræmda framkvæmd mála.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn þakkar ábendingarnar og vísar því til landbúnaðar- og dreifbýlisnefndar til umfjöllunar og meðferðar.

Samþykkt samhljóða.

14. Fundardagatal Langanesbyggðar 2026
Fyrir fundinum liggur fram tillaga að fundadagatali sveitarstjórnar og byggðaráðs ásamt nefndarvikum fastanefnda til ársloka 2026.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir framlagt fundadagatal og felur formönnum fastanefnda að ákveða fundartíma innan nefndarvika.

Samþykkt samhljóða.

15. Sumarleyfi sveitarstjórnar

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn fer í sumarleyfi að loknum fundi og verður í leyfi til 21. ágúst nk. Á meðan sveitarstjórn er í leyfi fer byggðaráð með sömu heimildir og sveitarstjórn hefur að öðru leyti, samkvæmt samþykktum um stjórn og fundarsköp Langanesbyggðar. Boðað verður til aukafundar ef þörf krefur.

Samþykkt samhljóða.

16. Skýrsla staðgengils sveitarstjóra

Hr. oddviti og sveitarstjórnarfulltrúar.
Þar sem þetta er annar formlegi fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar og jafnframt fyrsti fundurinn sem sendur er út vil ég bjóða nýkjörnum sveitarstjórnarfulltrúum formlega velkomnum til starfa. Í sveitarstjórn sitja nú bæði reynslumiklir fulltrúar og aðrir sem eru að stíga sín fyrstu skref. Aðalmenn og varamenn mynda saman fjölbreyttan og öflugan hóp fólks með ólíkan bakgrunn úr atvinnulífi, á breiðu aldurssviði og með fjölbreytta reynslu og þekkingu.
Ég hef fulla trú á því að þessi hópur muni takast á við þau fjölmörgu verkefni sem fram undan eru af ábyrgð, metnaði og í góðu samstarfi. Sveitarfélagið stendur á ákveðnum tímamótum og fram undan eru stór og mikilvæg verkefni sem munu hafa áhrif á framtíð sveitarfélagsins og komandi kynslóðir. Fyrr á fundinum var skipað í fastanefndir sveitarfélagsins. Þar koma nú margir nýir aðilar að starfi og verður áhugavert að fá fram ný sjónarmið og hugmyndir sem geta styrkt starf sveitarfélagsins enn frekar.
Mig langar einnig að nýta tækifærið og þakka Birni Lárussyni fyrir samstarfið. Á þeim árum sem við störfuðum saman lærði ég margt og naut góðs af reynslu hans og þekkingu. Sá lærdómur hefur án efa nýst mér vel í starfi og gert mig að betri starfsmanni og fyrir það verð ég honum ævinlega þakklát.
Það helsta sem bar til tíðinda í júnímánuði var að gengið var frá samningi við Björn Ingimarsson um úttekt á rekstri sveitarfélagsins. Markmið úttektarinnar er að veita heildstæða yfirsýn yfir stöðu sveitarfélagsins og meta getu þess til að ráðast í þær stóru framkvæmdir sem fram undan eru. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úttektarinnar liggi fyrir í lok ágúst.
Eins og fram kom fyrr í fundargerð verður framkvæmdum við C-álmu grunnskólans, hvort sem um verður að ræða endurbyggingu eða niðurrif, frestað fram á næsta vor. Sveitarstjórn ákvað á síðasta fundi að bíða með endanlega ákvörðun varðandi útfærslu C-hlutans þar til niðurstöður úttektar á rekstri og fjárhagsstöðu sveitarfélagsins liggja fyrir. Endurbætur á A- og B-álmum grunnskólans eru hins vegar á lokametrunum og verklok áætluð eftir tvær til þrjár vikur. Kennsla mið- og yngsta stigs nemenda verður því í A- og B-álmum þegar skólastarf hefst í haust, en kennsla elsta stigs verður áfram á efri hæð Fjarðarvegar 5.
Framkvæmdir á lóð leikskólans hafa einnig gengið afar vel og stefnir í að þeim ljúki í lok mánaðar. Lóðin er að verða einstaklega glæsileg og verður án efa mikil lyftistöng fyrir starfsemi leikskólans.
Umsóknarfrestur um starf sveitarstjóra rann út þann 24. júní sl. og hefur sveitarstjórn farið yfir þær umsóknir sem bárust. Í næsta lið fundargerðar, sem ber heitið trúnaðarmál – starfsmannamál, verður farið nánar yfir þau mál en sá liður verður ekki í útsendingu. Ég efast ekki um að sveitarstjórn muni vanda valið og það verður spennandi að sjá hver tekur við þessu mikilvæga starfi. Þar til nýr sveitarstjóri hefur verið ráðinn mun ég sinna starfi staðgengils sveitarstjóra áfram í góðu samstarfi við starfsfólk sveitarfélagsins og kjörna fulltrúa.
Að lokum vil ég benda á dagskrá Kátra daga sem fram undan eru. Dagskráin er afar glæsileg og þar ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Það er alltaf gaman að sjá bæinn fyllast lífi á þessum tíma og sjá fólk koma saman og njóta samverunnar. Ég vona að sem flestir leggi leið sína á hátíðina og gleðjist með okkur.
Að lokum vil ég þakka fyrir góðan fund og óska sveitarstjórn, starfsfólki sveitarfélagsins og íbúum öllum góðs og ánægjulegs sumars.

17. Trúnaðarmál – starfsmannamál

Farið yfir stöðu mála varðandi ráðningu sveitarstjóra.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:28.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?