Fara í efni

61.fundur, Ný sveitarstjórn

08.06.2026 10:00

Fundur í sveitarstjórn

  1. 61. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2, Þórshöfn, mánudaginn 8. júní 2026. Fundur settur kl. 10:00.

Mætt voru: Mateusz Swierczewski (í fjarfundi), Jóhann Hafberg Jónasson, Júlíus Þröstur Sigurbjartsson, Christina Elisabeth Merkel, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Sigurður Ragnar Kristinsson, Sigurður Þór Guðmundsson og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Sigurður Þór Guðmundsson stýrir fyrsta fundi nýkjörinnar sveitarstjórnar þar til kjör oddvita hefur farið fram. Sigurður bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki.

Mateusz Swierczewski óskaði eftir að fá að taka þátt á fundinum í fjarfundi og var það samþykkt samhljóða.

D a g s k r á

  1. Kosning oddvita og 1. og 2. varaoddvita
  2. Kosning í byggðaráð
  3. Kosning í hafnarnefnd
  4. Boðun funda
  5. Starfsmannamál
  6. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga nr. 999. frá 28.05.2026
  7. Bréf frá HMS um stöðu húsnæðisuppbyggingar

07.1 HMS yfirlit – Langanesbyggð

8. Breyting á aðalskipulagi vegna Tunguárvirkjunar

08.1 Breyting á deiliskipulagi vegna Tunguárvirkjunar

08.2 Samantekt umsagna og viðbrögð vegna deiliskipulags Tunguárvirkjunar

9. Endurbætur á grunnskóla - Almar Eggertsson frá Faglausn kemur á fund

Fundargerð

1. Kosning oddvita og 1. og 2. varaoddvita

Kosið er um kjör oddvita og 1. og 2. varaoddvita til fjögurra ára með nafnlausri atkvæðagreiðslu.

Bókun um afgreiðslu:
Oddviti sveitarstjórnar var kjörinn Jóhann Hafberg Jónasson með 7. atkvæðum.
1. varaoddviti sveitarstjórnar var kjörinn Christina Elisabeth Merkel með 4. atkvæðum, Mateusz Swierczewski fékk 3. atkvæði.

2. varaoddviti var kjörinn Mateusz Swierczewski með 4 atkvæðum, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir fékk 2. atkvæði og Christina Elisabeth Merkel fékk 1. atkvæði.

Sveitastjórn áformar að uppfæra samþykktir sínar til samræmis við kjör annars varaoddvita.

Samþykkt samhljóða.

Jóhann Hafberg Jónasson nýkjörinn oddviti tekur við fundarstjórn.

2. Kosning í byggðaráð

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir að skipa eftirtalda aðal- og varafulltrúa í byggðaráð Langanesbyggðar fyrir kjörtímabilið 2026–2030:

Aðalmenn:

Sigurður Ragnar Kristinsson , formaður

Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, varaformarður

Mateusz Swierczewski

Varamenn:

  1. Sigurður Þór Guðmundsson
  2. Jóhann Hafberg Jónasson
  3. Júlíus Sigurbjartsson

Samþykkt samhljóða.

3. Kosning í hafnarnefnd

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir að skipa eftirtalda fulltrúa í hafnarnefnd Langanesbyggðar fyrir kjörtímabilið 2026–2030:

Aðalmenn:

Sigurður Ragnar Kristinsson, formaður

Jónas S. Jóhannsson, varaformarður

Jóhann Bjarni Einarsson

Varamenn:

  1. Jóhann Ægir Halldórsson
  2. Guðmundur Björnsson
  3. Helga Guðrún Henrýsdóttir

Samþykkt samhljóða.

4. Boðun funda

Sveitarstjórn ræddi fyrirkomulag boðunar funda og boðun varamanna.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir að fundarboð berist með tölvupósti. Samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins skulu aðalmenn í sveitarstjórn, ráðum og nefndum beri sjálfir ábyrgð á að boða varamann í sinn stað ef þeir forfallast. Jafnframt skulu forföll tilkynnt sveitarstjóra eða skrifstofustjóra með hæfilegum fyrirvara.

Samþykkt samhljóða.

5. Starfsmannamál

Sveitarstjórn ræddi fyrirkomulag ráðningar sveitarstjóra.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir að fela oddvita í samráði við byggðaráð að vinna drög að auglýsingu fyrir starf sveitarstjóra og í framhaldi vinna úr umsóknum og leggja tillögu að ráðningu sveitarstjóra fyrir sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

6. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga nr. 999. frá 28.05.2026

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

7. Bréf frá HMS um stöðu húsbygginga

07.1 HMS yfirlit Langanessbyggð

HMS hefur sent bréf til sveitarstjórna vegna stöðu húsbygginga ásamt yfirliti fyrir Langanesbyggð. Í ljós kemur að húsbyggingar hafa ekki verið í takt við fólksfjölgun að mati HMS. Eftirspurn segir hinsvegar aðra sögu.

Bókun um afgreiðslu: Í ljósi erindis HMS vill sveitarstjórn Langanesbyggðar taka eftirfarandi fram að 4 nýlega byggðar íbúðir leigðust samstundis og er það mat sveitarstjórnar að brýn þörf sé fyrir 4 íbúðum til viðbótar.

Samþykkt samhljóða.

8. Breyting á aðalskipulagi vegna Tunguárvirkjunar

08.1 Breyting á deiliskipulagi vegna Tunguárvirkjunar.

08.2 Samantekt umsagna og viðbrögð vegna deiliskipulags Tunguárvirkjunar.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn staðfestir bókun skipulags- og umhverfisnefndar um vinnslutillögu vegna Tunguárvirkjunar og samþykkir að skipuleggjanda verði heimilt að halda áfram vinnu við skipulagið með hliðsjón af þeim umsögnum og ábendingum sem bárust. Sveitarstjórn lítur verkefnið jákvæðum augum og telur hana auka raforkuöryggi svæðisins og fagnar því ef áform um fyrstu raforkuframleiðslu til samveitu verður að veruleika.

Samþykkt samhljóða.

9. Endurbætur á grunnskóla – Almar Eggertsson frá Faglausn kemur á fund

Sveitarstjórn þakkar Almari fyrir góða kynningu.

Bókunartillaga frá Sigurði Ragnari: Beðið verður með niðurrif c- hluta skólans og látið vinna tillögu að nýbyggingu norðan við skólann samhliða endurbyggingu c-hluta. Miða skal við að tillaga liggi fyrir innan fjögurra vikna.

Bókunartillaga felld með 4 atkvæðum af 7.

Bókunartillaga frá Ólínu: Fjárhagsáætlun verður endurskoðuð sem fyrst og skoðað hvort raunhæft sé að halda áætlun um að rífa c-hluta og endurbyggja.

Bókunartillaga samþykkt samhljóða.

 

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:55.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?