Fara í efni

60. fundur, aukafundur sveitartjórnar

13.05.2026 16:00

Fundur í sveitarstjórn

60. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, miðvikudaginn 13. maí 2026. Fundur settur kl. 16:00.

Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson, Halldóra J. Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson, Gunnlaugur Steinarsson, Mirjam Blekkenhorst, Sigríður F. Halldórsdóttir, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki.

D a g s k r á

1. Fundargerð 51. fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 05.05.2025
Fundargerðin lögð fram.

2. Fundargerð 36. fundar velferðar- og fræðslunefndar frá 11.05.2026
     02.0 Samþykktir um úthlutun íbúða aldraðra og félagslegra íbúða í Langanesbyggð.
     02.1 Bókun nefndarinnar um úthlutun íbúða aldraðra og félagslegra íbúða.

Til máls tóku: Sigríður,

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir framlagðar reglur.

Samþykkt samhljóða.

3. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu vegna Miðholts 20, 22, 24 og 26.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi ,,Miðsvæði við Fjarðarveg á Þórshöfn” vegna Miðholts 20, 22, 24 og 26 var auglýst frá 28. mars til 11. maí 2026 í samræmi við 1. mgr. 43. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Umsagnir sem bárust gefa ekki tilefni til efnislegrar breytingar á tillögunni en Rarik bendir á 12 kv. streng sem þurfi að færa tímalega áður en farið verður í framkvæmdir á svæðinu.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytinguna og felur skipulagsráðgjafa að senda hana til Húsnæðis, mannvirkja og skipulagsstofnunar til lögbundinnar meðferðar og birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:10.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?