Fara í efni

59. fundur sveitarstjórnar

07.05.2026 16:00

Fundur í sveitarstjórn

59. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, fimmtudaginn 07. maí 2026. Fundur settur kl. 16:00.

Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson, Halldóra J. Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson, Þórarinn J. Þórisson, Gunnlaugur Steinarsson, Mirjam Blekkenhorst, Sigríður F. Halldórsdóttir, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki.

D a g s k r á

1. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga nr. 997 frá 17.04.2026
2. Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2025
     02.1 Langanesbyggð endurskoðunarskýrsla
     02.2 Langanesbyggð sundurliðunarbók
     02.3 Samstæðu, málaflokka og deildaryfirlit Langanesbyggðar 2025
     02.4 Lykiltölur rekstrar 2018-2025 og áætlun 2026
3. Viðauki við fjárhagsáætlun vegna fjárfestinga í sorpmóttökustöð
     03.1 Áhrif viðauka 1 á fjárhagsáætlun
     03.2 Búnaður vegna sorpmóttökustöðvar sem á að kaupa
     03.3 Áætlun um fyrirkomulag rekstrar og fyrstu drög að rekstraráætlun
     03.4 Skýrsla umhverfisfulltrúa umstöðu, þróun og framtíðaráform úrgangsstjórnunar 2025
4. Fundargerð 20. fundar hafnarnefndar, aukafundar
5. Tillaga til sveitarstjórnar vegna endurbóta-byggingar grunnskólans
6. Umsögn um frumvarp til laga um breytinga á lögum um stjórn fiskveiða frá Samtökum sjávarútvegsfélaga
7. Skýrsla sveitarstjóra

Fundargerð

1. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga nr. 997 frá 17.04.2026
Fundargerðin lögð fram.

2. Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2025
Lagður fram ársreikningur, endurskoðunarskýrsla, sundurliðunarbók og samstæðureikningur, málaflokkar og deildaryfirlit til seinni umræðu ásamt lykiltölum rekstrar 2018-2025.
     02.1 Langanesbyggð endurskoðunarskýrsla.
     02.2 Langanesbyggð sundurliðunarbók.
     02.3 Samstæðu, málaflokka og deildaryfirlit Langanesbyggðar 2025.
     02.4 Lykiltölur rekstar 2018-2025 og áætlun 2026.

Til máls tóku: Sveitarstjóri, oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir ársreikninginn fyrir árið 2025 og felur sveitarstjóra að senda hann til birtingar. Samstæðu reikningi Langanesbyggðar var lokað með rekstrarafgang upp á tæpar 122 milljónir. Af þeim afgangi voru langtímaskuldir upp á 78 greiddar. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum á árinu 2025 voru 370 milljónir. Lausafé um áramót voru 47 milljónir. Vaxtagreiðslur ársins voru 54 milljónir eða 9 milljónum minna en á fyrra ári.

Samþykkt samhljóða.

3. Viðauki við fjárhagsáætlun vegna fjárfestinga í sorpmóttökustöð 
     03.1 Áhrif viðauka 1 á fjárhagsáætlun.
     03.2 Búnaður vegna sorpmóttökustöðvar sem á að kaupa.
     03.3 Áætlun um fyrirkomulag rekstrar og fyrstu drög að rekstraráætlun.
     03.4 Skýrsla umhverfisfulltrúa umstöðu, þróun og framtíðaráform úrgansstjórnunar 2025.

Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun 2026 þar sem farið er fram á kaup á búnaði fyrir sorpmóttökustöð að upphæð kr. 39.520.000.- m/vsk. Þetta er sá búnaður sem eftir að kaupa þannig að hægt verði að taka sorpmóttökustöðina í notkun. Gætt hefur veri ítrasta aðhalds í innkaupum og þau öll miðuð við fyrirkomulag rekstrar stöðvarinnar í framtíðinni sem talið er upp í lið 03.3. Fjárfestingin er fjármögnuð með eftirstöðvum lánalínu hjá Landsbankanum þar sem eftir standa kr. 40 milljónir.

Til máls tóku: Sveitarstjóri, oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir viðaukann.

Samþykkt samhljóða.

4. Fundargerð 20. fundar hafnarnefndar, aukafundar.
Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: Mirjam, sveitarstjóri, oddviti.

5. Tillaga til sveitarstjórnar vegna endurbóta-byggingar grunnskólans.
Oddvitar meiri- og minnihluta leggja fram meðfylgjandi tillögu um áframhald framkvæmda við grunnskólans þar sem megin breytingin frá fyrri áformum er að halda í svokallaða C byggingu sem liggur meðfram Langanesvegi og ennfremur að grunnur nýbyggingar verði undirbúin. Frekari hönnun bygginga eða innanhússkipulag og þ.h. bíði nýrrar sveitarstjórnar.

Til máls tóku: Mirjam, Halldóra, oddviti,

Oddvitar meiri- og minnihluta draga tillöguna til baka og málið því fellt niður.

6. Umsögn um frumvarp til laga um breytinga á lögum um stjórn fiskveiða frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga.
Umsögnin lögð fram til umræðu.

Til máls tók sveitarstjóri.

7. Skýrsla sveitarstjóra

Hr. Oddviti og sveitarstjórnarfulltrúar.

Þetta er síðasti reglulegi fundur sveitarstjórnar á kjörtímabilinu en eftir er einn reglulegur byggðaráðsfundur fimmtudaginn 28. maí – og hugsanlega aukafundur í sveitarstjórn vegna afgreiðslu skipulags við Miðholt sem verður tilbúið í næstu viku. Innan skamms göngum við til kosninga og kjósum nýja sveitarstjórn. Það verða óbundnar kosningar þar sem í raun eru allir íbúar í kjöri fyrir utan þá sem skoruðust undan kjöri áður en frestur til þess rann út 10. apríl.

Þessi tæp fjögur ár sem sveitarstjóri og þar áður skrifstofustjóri í eitt og hálft ár hafa verið ákaflega lærdómsríkur tími fyrir mig þó reynslu mína og þekkingu hafi ég sótt víða. Alls hef ég starfað í stjórnsýslu sveitarfélaga i 8 ár og auk þess verið ráðgjafi sveitarfélaga í 7 ár en þess utan stjórnað fyrirtækjum af óllíkum toga. Nú er allt undir úrslitum kosninga og komandi sveitarstjórn komið hvernig mál þróast í framtíðinni.

Ég væri ekki að segja satt ef ég segði að þetta hafi alltaf verið auðvelt starf. Fortíðina í stjórnmálum hér þekkja flestir íbúar sveitarfélagsins og það var á stundum tekist mjög harkalega á. Það eimdi eftir af þessum átökum þegar ég tók við haustið 2022. Þegar fram liður stundir varð það þó einlægur vilji í sveitarstjórn að vinna saman að sameiginlegum verkefnum þó auðvitað hafði hver sína skoðun á málum. Sveitarstjórnarfulltrúar hafa verið lausnarmiðaðir og rætt málamiðlanir í þeim málum sem tekist var á um. Ekki þó þannig að allir væru alltaf sammála. Teknir voru upp breyttir stjórnarhættir þar sem minnihluti fékk alltaf fundarboð í tíma og oddvitar meiri- og minnihluta fengu send drög að fundargerð þar sem hægt var að gera athugasemdir og bregðast við ef tilefni var til. Þannig áttu fulltrúar í sveitarstjórn að vera vel upplýstir um þau efni sem tekin voru fyrir á fundum sveitarstjórnar og byggðaráðs. Ég var síðustu ár í reglulega og góðu sambandi við bæði minni- og meirihluta, bæði einstaka fulltrúa og oddvita.

Ég má til með að segja, án þess að ég sé að berja sjálfum mér á brjóst að ég er hreykin af því hvað þessari sveitarstjórn hefur tekist að koma í verk á kjörtímabilinu. Það voru skýr skilaboð í byrjun að auka framboð á húsnæði og það hafa verið byggðar 9 íbúðir á kjörtímabilinu og 5 aðrar í pípunum eftir nærri 15 ára stopp. Nær öllum lóðum við götur sem þegar voru tilbúnar hefur verið úthlutað. Nú hillir loks undir það að lokið verði við leikskólalóðina en grunnskólalóðin frestaðist af óviðráðanlegum orsökum. Síðast en ekki síst þá tókst okkur að fá orkufyrirtækin og ráðneyti okurmála til að finna lausn á orkumálum okkar. Í það minnsta til skamms tíma og langtímamarkmiðið er að fá öfluga línu frá Kópaskeri sem verðu flýtt eins og kostur er. Það kostaði mikla vinnu og fundi til að fá það í gegn þar sem allir lögðust á eitt að leysa málið.

Við erum að fá í gegn að ríkið kaupi 55% hlut okkar í Naustinu og að haldið verði áfram þeim umbótum og endurbyggingu sem Naustið þarf. Síðast en ekki síst þá höfum við frá árinu 2023 unnið að því að endurskipuleggja sorpmál samkvæmt lögum og fá jafnvægi í þann rekstur. Hækkun ár eftir ár uppá 14% og langt umfram aðrar hækkanir gjaldskrár dugði ekki til á sínum tíma og það dró bara í sundur á milli tekna og útgjalda. Það er von okkar að með þeirri umfjöllun og afgreiðslu mála varðandi sorpmálin hér í dag að þá munum við ná jafnvægi í rekstri sorpmála – jafnvel i samvinnu við önnur sveitarfélög í svipaðri stöðu því staða okkar er óvenjuleg vegna fjarlægðar. Vinna er hafin við nýtt aðalskipulag og við eigum aðeins eftir tvö hverfi á Þórshöfn sem á eftir að deiliskipuleggja en það er við Pálmholt/Háholt sem lýkur í næstu viku og við Austurveg. Sumum verkum hefur ekki tekist að ljúka eins og að breyta aðkomu að höfninni sem er mikið öryggisatriði. Viðræður eru i gangi við Björgunarsveitina og unnið þar að formsatriðum sem þarf að uppfylla til að hægt sé að breyta aðkomu hafnarinnar. Gaman hefði verið að fylgja eftir stórum verkefnum sem eru framundan eins og að ljúka við endurbyggingu skólans, ljúka við framkvæmdir við höfnina og svo þarf að fara í töluvert miklar gatnagerðarframkvæmdir og malbikun á ýmsum stöðum í framhaldi af því s.s. á bílastæði viði kjörbúðina, planið við sorpmóttökustöðina og víða. Stærsta verkefnið er svo viðgerðir og endurbætur á Íþróttamiðstöðinni sem vonandi verður hægt að fara í sem fyrst.

Kistan sem var hugmynd frá síðasta kjörtímabili komst á skrið undir færsælli forystu Þekkingarnets Þingeyinga sem sér um reksturinn en ég tel á engan hallað þó ég taki Sigríði Friðný þar út úr hópnum og hrósa sértaklega fyrir hennar ósérhlífna starf þar við að koma starfseminni af stað. Á Bakkafirði bíður samskonar aðstaða sem á eftir að taka í notkun.

Ég hef alla mína tíð aðhyllst svokallaða flata stjórn fyrirtækja og stofnana. Það þýðir í mínum augum að ég treysti mínu starfsfólki til að sinna sínum störfum og það leggur sig allt fram um að gera vel. Það er einvalalið í öllum störfum hér og ég get sagt það hreinskilningslega að ég minnist þess ekki að hafa haft jafn gott, duglegt og fórnfúst fólk undir minni stjórn alla mína tíð sem stjórnandi. Stundum hefur mínu fólki þótt ég heldur afskipta lítill um störf þeirra þar sem mjög fáir fundir hafa verið með deildarstjórum. Þeir hafa verið þeim mun fleiri með hverjum og einum þar sem við höfum í sameiningu leyst mál sem upp koma. En – ég tek undir þær athugasemdir að fundir með öllum deildarstjórum hefðu mátt vera fleiri eins og ég ætlaði í byrjun. Þó ekki væri nema að þjappa fólki saman og að deildarstjórar kynntust störfum hvers og eins. Þar veit ég upp á mig sökina.

Að því sögðu þakka ég sveitarstjórnarfulltrúum fyrir gott og farsælt samstarf. Ég fæ seint þakkað það traust sem mér var sýnt með ráðningu minni. Minn ráðningartimi er til 1. júní og þá tekur við ný sveitarstjórn að loknum kosningum sem verða 16. maí og það verður ný sveitarstjórn sem ræður sveitarstjóra. En framtíðin ræðst af úrslitum komandi kosninga og nýrri sveitarstjórn. Að lokum vil ég sértaklega þakka frábæru samstarfsfólki sem starfar fyrir Langanesbyggð öll þessi ár og ég hef sagt það áður að á langri starfsævi sem stjórnandi hef ég sjaldan haft jafn gott og duglegt samstarfsfólk.

Til máls tóku: Mirjam, oddviti.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:50.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?