Fara í efni

58. fundur sveitarstjórnar, aukafundur

28.04.2026 16:00

Fundur í sveitarstjórn

58. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, aukafundur haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, þriðjudaginn 28. apríl 2026. Fundur settur kl. 16:00.

Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson, Halldóra J. Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson, Þórarinn J. Þórisson, Gunnlaugur Steinarsson, Hjörtur Harðarson, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.

Ingimar Guðmundsson verkefnastjóri kom inn á fundinn á Teams og skýrði lykiltölur í ársreikningi sveitarfélagsins.

Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki.
Oddviti óskaði eftir afbrigðum að taka á dagskrá lið 2 sem er fundargerð aukafundar byggðaráðs frá í dag þar sem byggðaráð vísar ársreikningi 2025 til umræðu í sveitarstjórn, þar sem fyrri umræða fer fram á þessum fundi en síðari umræða fimmtudaginn 7. maí.

Samþykkt samhljóða.

D a g s k r á

1. Fundargerð 53. fundar byggðaráðs frá 22.04.2026
2. Fundargerð byggðaráðs, aukafundar nr. 54 frá 28.04.2026
     02.1 Bókun byggðaráðs vegna ársreiknings 2025.
3. Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2025
     03.1 Samstæðu, málaflokka og deildaryfirlit ársreiknings 2025
4. Fundargerð 35. fundar velferðar og fræðslunefndar frá 15.04.2026
     04.1 Bókanir velferðar- og fræðslunefndar
Liður 4: Stytting vinnuvikunnar á Leikskólanum Barnaból
Liður 9: Tillaga að starfslýsingu verkefnastjóra velferðar- og fræðslumála.
5. Fundargerð 19. fundar hafnarnefndar frá 14.04.2026
6. Drög að samningi um sameiginl. þjónustusv. um almenna og sértæka félagsþjónustu.
     06.1 Uppfærsla á samningnum.
7. Drög að hvítbók um byggðamál frá Innviðaráðuneyti og Byggðastofnun.
8. Tillaga um kjörstaði í Langanesbyggð vegna sveitarstjórnarkosninga 2026.
9. Skýrsla sveitarstjóra.

Fundargerð

1. Fundargerð 53. fundar byggðaráðs frá 22.04.2026
Fundargerðin lögð fram.

2. Fundargerð byggðaráðs, aukafundar nr. 54 frá 28.04.2026
     02.1 Lögð fram bókun byggðaráðs þar sem ársreikningi 2025 er vísað til umfjöllunar í sveitarstjórn.
Fundargerðin lögð fram.

3. Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2025
03.1 Samstæðu, málaflokka og deildaryfirlit ársreiknings 2025.
Lagður fram ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2025 ásamt samstæðu, málaflokka og deildaryfirlit ársins 2025.
Ingimar Guðmundsson verkefnastjóri KPMG fór yfir lykiltölur rekstrar.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn vísar ársreikningi til annarrar umræðu þann 7. maí.

Samþykkt samhljóða.

4. Fundargerð 35. fundar velferðar og fræðslunefndar frá 15.04.2026
04.1 Bókanir velferðar- og fræðslunefndar
Liður 4: Stytting vinnuvikunnar á Leikskólanum Barnaból.
Liður 9: Tillaga að starfslýsingu verkefnastjóra velferðar- og fræðslumála.

Halldóra lýsti yfir vanhæfi og óskar eftir að víkja af fundi.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tóku: Oddviti, Hjörtur, oddviti.

Liður 4: Stytting vinnuvikunnar á leikskólanum Barnaból.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn ákveður að leikskólinn verði lokaður kl. 14:00 á föstudögum og lokun í dimbilviku og milli jóla og nýárs (sjá skóladagatal) til prufu næsta skólaárs.

Atkvæðagreiðsla: með bókun: Sigurður, Júlíus, Þórarinn, Gunnlaugur. Á móti bókun: Hjörtur.

Halldóra kom aftur inn á fund.

Liður 9: Tillaga að starfslýsingu verkefnastjóra velferðar og fræðslumála.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjóra og formanni velferðar- og fræðslunefndar falið að gera drög að starfslýsingu fyrir tengilið félagsþjónustu og leggi fyrir byggðaráð eða sveitarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

5. Fundargerð 19. fundar hafnarnefndar frá 14.04.2026
Fundargerðin lögð fram.

Til máls tóku: Oddviti, Gunnlaugur.

6. Drög að samningi um sameiginl. þjónustusv. um almenna og sértæka félagsþjónustu.
     06.1 Uppfærsla á samningnum.
Lögð fram drög að breytingum á samningi um sameiginlegt þjónustusvæði um almenna og sértæka þjónustu.

Til máls tóku: Sveitarstjóri, oddviti.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir uppfærslu á samningnum en leggi áherslu á að endurskoðun hans í heild verði flýtt.

Samþykkt samhljóða.

7. Drög að hvítbók um byggðamál frá Innviðaráðuneyti og Byggðastofnun.
Lagt fram til kynningar.

Til máls tóku: Oddviti, Gunnlaugur, oddviti.

8. Tillaga um kjörstaði í Langanesbyggð vegna sveitarstjórnarkosninga 2026.  
     08.1 Tillaga lögð fram.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir að kjörstaðir verði eftirfarandi:

· Þórshöfn: Skrifstofa Langanesbyggðar, Langanesvegi 2.
· Bakkafirði: Skrifstofu sveitarfélagsins, Skólagötu 5.
· Svalbarðsskóla

Samþykkt samhljóða.

9. Skýrsla sveitarstjóra

Hr. Oddviti og sveitarstjórnarfulltrúar.

Ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2025 hefur nú verið lagður fram og ætla ég ekki að fjölyrða mikið um hann við fyrri umræðu. Sveitarstjórnarmenn fengu góða kynningu á reikningnum á byggðaráðsfundi í dag auk þess sem verkefnastjóri KPMG fór lauslega yfir reikninginn í upphafi fundar hér. Ég mun hinsvegar við síðari umræðu fara yfir reikninginn og sérstaklega yfir lykiltölur rekstrar sem lýsa þróuninni eins og hún hefur verið í fjármálum sveitarfélagsins frá 2018 til loka árs 2025. Þær tölur gefa glögga mynd af því hvert við stefnum í fjármálum sveitarfélagsins þannig að hægt verði að grípa til viðeigandi ráðstafana í tíma ef með þarf.

Þetta er næst síðasti fundur núverandi sveitarstjórnar en á þeim síðasta sem verður þann 7. maí fer fram síðari umræða um ársreikninginn fyrir 2025. Á milli þess fundar og síðasta fundar byggðaráðs sem verður 28. maí mun ég leggja fram ársskýrslu sveitarfélagsins – þá fyrstu sem gerð hefur verið – og þar verða tíunduð þau verkefni sem núverandi sveitarstjórn hefur unnið að og þar með þær áskoranir sem framundan eru og þau verkefni sem bíða komandi sveitarstjórnar. Í ársskýrslunni verður einnig stutt yfirlit frá deildarstjórum hverrar deildar um starfsemi þeirra, verkefni, áskoranir tekjur og gjöld og launakostnað. Þessi ársskýrsla er ekki hugsuð sem nein afrekaskrá heldur fyrst og fremst upplýsingarit fyrir fráfarandi og komandi sveitarstjórn um starfsemi sveitarfélagsins. Vonandi verður það að hefð að slík skýrsla verði í það minnsta lögð fram í lok hvers kjörtímabils til að auðvelda nýrri sveitarstjórn að setja sig inn í þau verkefni sem lagt hefur verið í, unnið að á þeim tíma sem hún er birt og hvað framundan er.

Í sveitarstjórnarkosningum sem verða 16. maí verða óbundnar kosningar. Það þýðir að allir íbúar sem hafa kosningarétt eru í kjöri. Í kosningalögum þar sem fjallað er um kjör fulltrúa í óbundnum kosningum kemur fram að uppfylltum skilyrðum geti íbúar skorast undan kjöri. Þau eru: Ef viðkomandi hefur náð 65 ára aldri og er ekki heilsuhraustur eða að hafa setið í sveitarstjórn eitt kjörtímabil eða lengur. Frestur til að tilkynna að viðkomandi skorist undan kjöri er sá sami og frestur til að lýsa yfir framboði með því að leggja fram lista. Fresturinn rann út 10. apríl s.l. Tveir fulltrúar sendu erindi til yfirkjörstjórnar um undanþágu frá endurkjöri áður en fresturinn rann út en þau eru: Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir og Gunnlaugur Steinarsson. Önnur erindi bárust eftir að frestur til að skorast undan kjöri rann út. Þess skal getið hér, að kynningarfundur um fyrirkomulag kosninga verður haldinn miðvikudaginn 6. maí kl. 16 á Holtinu. Þar geta kjósendur kynnt sér fyrirkomulagið og ennfremur geta þeir sem ekki sendu inn beiðni um að skorast undan kjöri fyrir tilskilinn frest tilkynnt fundarmönnum það. Svo geta einstaklingar lýst því yfir á þeim fundi eða hvar sem er að þeir sækist eftir því að vera kjörnir í sveitarstjórn.

Þátttaka í óbundnum kosningum hefur því miður verið lítil að því að sagan kennir okkur, en ég skora á íbúa að mæta á kjörstað og rita nöfn þeirra sem þeir vilja að skipi næstu sveitarstjórn. Störf sveitarstjórnar koma okkur öllum við og þau geta haft og hafa mikil áhrif á framtíð sveitarfélagsins.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:55.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?