56. fundur sveitarstjórnar
Fundur í sveitarstjórn
56. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, fimmtudaginn 19. mars 2026. Fundur settur kl. 16:00.
Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson, Halldóra J. Friðbergsdóttir, Júlíus Sigurbjartsson, Þórarinn J. Þórisson, Margrét Guðmundsdóttir, Halldór Rúnar Stefánsson, Gunnlaugur Steinarsson, Björn S. Lárusson sveitarstjóri og Bjarnheiður Jónsdóttir sem ritaði fundargerð.
Oddviti bauð fundarmenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo var ekki.
D a g s k r á
1. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 993 frá 18.02.2026
2. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 994 frá 03.03.2026
3. Fundargerð 51. fundar byggðaráðs frá 06.03.2026
03.0 Bókun byggðráðs um framkvæmdir við grunnskólann
03.01 Bókun skipulags- og umhverfisnefndar vegna C og D hluta skólans.
03.1 Skissa – grunnskólinn, ein eða tvær hæðir.
03.2 Tillöguteikning – viðbygging suður T
03.2.1 Tillöguteikning – viðbygging suður T
03.2.2 Tillöguteikning - viðbygging suður L
03.3 Tillöguteikning – viðbygging norður-suður
03.4 Kostir og gallar við tillögur frá kennurum
03.5 Tillöguteikning - viðbygging suður, uppfært.
4. Fundargerð 49. fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 10.03.2026
5. Fundargerð atvinnu- og nýsköpunarnefndar frá 10.03.2026
6. Fundargerð 20. fundar Jarðasjóðs frá 24.02.2026
7. Frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga.
07.1 Skýrsla um samráð – frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga. Frá Innviðaráðuneyti.
8. Áskorun til sveitarstjórna um vernd strandlengju.
9. Skýrsla um flutnings og dreifikerfi raforku – unnið fyrir SSNV og SSV
09.1 Flýting uppbyggingar raforkuiðnaðar og einföldun regluverks – áform um lagasetningu.
10. Beiðni um breyttan fundartíma sveitarstjórnar.
11. Skýrsla sveitarstjóra
Fundargerð
1. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 993 frá 18.02.2026
Fundargerðin lögð fram.
2. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga nr. 994 frá 03.03.2026
Fundargerðin lögð fram.
3. Fundargerð 51. fundar byggðaráðs frá 06.03.2026
03.0 Bókun byggðráðs um framkvæmdir við grunnskólann.
03.01 Bókun skipulags- og umhverfisnefndar vegna C og D hluta skólans.
03.1 Skissa – grunnskólinn, ein eða tvær hæðir.
03.2 Tillöguteikning – viðbygging suður T.
03.2.1 Tillöguteikning – viðbygging suður T.
03.2.2 Tillöguteikning - viðbygging suður L.
03.3 Tillöguteikning – viðbygging norður-suður.
03.4 Kostir og gallar við tillögur frá kennurum.
03.5 Tillöguteikning - viðbygging suður, uppfært.
Byggðaráð samþykkti á fundi sínum 6. mars að fara í þær framkvæmdir að gera við byggingu A og B ásamt anddyri og byggja nýtt húsnæði samkvæmt teikningu T-2, samtals 976m2 (liður 03.2.1 sem uppfært er með teikningu í lið 03.5). Skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt niðurrif á byggingu C og að bygging D verði flutt. Byggðaráð hefur jafnframt falið sveitarstjóra, Faglausn ehf. og vinnuhópi um grunnskóla að vinna áfram að hönnun nýbyggingar þar sem C hluti stendur.
Til máls tóku: Oddviti, sveitarstjóri, oddviti.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn staðfestir ákvörðun byggðaráðs enda eru þessi áform innan fjárhagsáætlunar 2026. Hægt er að hefjast strax handa við viðgerð á A og B hluta ásamt anddyri þegar samið hefur verið við verktaka og stefna að því að taka þann hluta í notkun haustið 2026.
Samþykkt samhljóða.
4. Fundargerð 49. fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 10.03.2026
Sjá bókun undir lið 03.01 vegna C og D álmu skólans þar sem byggðaráð óskaði eftir áliti nefndarinnar á áformum um niðurrif á C hluta og að fjarlægja D hluta.
Fundargerðin lögð fram.
5. Fundargerð atvinnu- og nýsköpunarnefndar frá 10.03.2026
Fundargerðin lögð fram.
6. Fundargerð 20. fundar Jarðasjóðs frá 24.02.2026
Fundargerðin lögð fram.
7. Frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga
07.1 Frá Innviðaráðuneyti - skýrsla um samráð – frumvarp til nýrra sveitarstjórnarlaga.
SSNE er að vinna að umsögn fyrir sveitarfélög á NA landi um nýtt frumvarp til sveitarstjórnarlaga.
Lagt fram til upplýsinga.
Til máls tóku: Sveitarstjóri, oddviti.
8. Áskorun til sveitarstjórna um vernd strandlengju
Siglingasamband Íslands hefur sent sveitarstjórnum áskorun um verndun strandlengju. Skipulags- og umhverfisnefnd hefur fjallað um málið og beint erindinu til Landslags sem vinnur að gerð nýs aðalskipulags fyrir Langanesbyggð.
Lagt fram til upplýsinga.
9. Skýrsla um flutnings og dreifikerfi raforku – unnið fyrir SSNV og SSV
09.1 Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks – áform um lagasetningu.
Til upplýsinga.
10. Beiðni um breyttan fundartíma sveitarstjórnar.
Beiðni hefur komið fram um að fundur sveitarstjórnar sem átti að vera fimmtudaginn 16. apríl verði færður fram um einn dag til miðvikudagsins 15. apríl.
Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn fellst á beiðnina. Næsti reglulegi fundur sveitarstjórnar verður miðvikudaginn 15. apríl.
Samþykkt samhljóða.
11. Skýrsla sveitarstjóra
Hr. Oddviti og sveitarstjórnarfulltrúar
Nú fer sá tími í hönd að við förum að ganga frá ársreikningi fyrir árið 2025. Jafnhliða gerð ársreikningsins hefur verið ákveðið að gera ársskýrslu fyrir sveitarfélagið þar sem fram koma upplýsingar um framkvæmdir á árinu, sérstök verkefni, fjármál, áskoranir og fleira. Einnig mun fylgja stutt yfirlit hverrar deildar. Tilgangurinn er sá að gefa bæði fulltrúum í sveitarstjórn og ekki síst íbúum yfirlit yfir það sem um er að vera í stjórnsýslunni. Það er ekki síst mikilvægt þar sem ný sveitarstjórn mun taka við í vor. Hugmyndin kemur frá oddvita en það er mat okkar beggja að með slíkri ársskýrslu gangi sveitarstjórnarskipti betur fyrir sig þar sem allar nauðsynlegar upplýsingar munu liggja fyrir. Ráðningatími minn er út kjörtímabilið en að sjálfsögðu uppfylli ég þær skyldur mínar samkvæmt ráðningasamningi að vera komandi sveitarstjórn og sveitarstjóra til ráðuneytis í þrjá mánuði eftir að ný sveitarstjórn hefur tekið við völdum. Það verða hæg heimatökin því ég hef ákveðið eins og flestir vita að setjast hér að þar sem mér hefur líkað afskaplega vel að búa hér. Ég held að það sé einnig ljóst að í það minnsta verða einhverjar breytingar í sveitarstjórn og því er mun betra að fá gott yfirlit yfir málaflokka til að geta sett sig fljótt og vel inn í mál.
Margar áskoranir og mörg krefjandi verkefni bíða komandi sveitarstjórnar þó margt og mikið hafi áunnist á yfirstandandi kjörtímabili í mörgun hagsmunamálum okkar en yfirlit yfir það bíður betri tíma við birtingu ársskýrslu. Þess ber líka að geta að hér eru mikil tækifæri því góð skilyrði eru fyrir hendi. Það er einnig vert að minna á í þessu sambandi að margir sem hafa sótt okkur heim undanfarin ár undrast mikil umsvif í ekki stærra samfélagi.
Innan skammt hefjast framkvæmdir við grunnskólann sem samþykktar hafa verið í byggðaráði og reyndar einnig í sveitarstjórn innan þess fjárhagsramma sem ákveðin er í fjárhagsáætlun, það er að endurnýja nyrstu byggingu skólans sem við höfum kallað A og B ásamt anddyri, rífa miðbyggingu skólans og byggja það nýtt húsnæði sem er í takt við kröfur nútímans um skólahúsnæði. Þar verður hægt að koma fyrir bókasafni, betri aðstöðu fyrir starfslið skólans og ekki síst nemendur. Horft er til framtíðar með þessari byggingu. Sem betur fer hefur tekist að samræma flest sjónarmið við þessar framkvæmdir þó ekki hafi verið komið til móts við allar óskir.
Eftir hálfan mánuð verður íbúafundur um málefni Finnafjarðar á vegum Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps þar sem forsvarsmenn Bremenports mun gera grein fyrir málum út frá sínu sjónarmiði ásamt því að gera grein fyrir hvaða tækifæri eru þar og hver verða næstu skref. Hugmyndir um uppbyggingu í Finnafirði hafa alls ekki verið lagðar til hliðar og verkefnið hefur verið aðlagað aðstæðum hverju sinni. Verður forvitnilegt að heyra hvað forsvarsmenn Bremenport hafa að segja um stöðu mála. Sveitarstjórar Langanesbyggðar og Vopnafjarðarhrepps hafa setið í stjórnum þeirra fyrirtækja sem fara með þessi málefni og áheyrnarfulltrúi frá EFLU og verkefnastjóri innviða.
Innan skamms verður birt skýrsla verkefnastjóra innviða sem liggur fyrir í drögum en Gunnar Már Gunnarsson starfsmaður SSNE hefur unnið gott og mikilvægt starf fyrir sveitarfélagið í innviðamálum í náinni samvinnu við sveitarstjórn. Ber þar kannski hæst að tryggja orkuöflun á næstu árum en hann hefur einnig sinnt Finnafjarðarverkefninu, landbúnaði, ferðaþjónustu, fjarskiptamálum og fleiri málum. Eitt af fyrstu verkefnum núverandi sveitarstjórnar var að ráða Gunnar til starfa, með styrk frá Innviðaráðuneyti til að sinna þessum fjölbreyttu verkefnum á sviði innviða. Svo góður árangur hefur orðið af hans starfi að ákveðið var að færa stækka starfssvæðið sem tekur nú til nær alls Norðausturlands frá Kelduhverfi til Vopnafjarðar. Þó sjávarútvegur sé megin stoð atvinnulífs hér og höfnin á Þórshöfn sú sjöunda stærsta hvað varða landanir í höfnum sýnir skýrsla Gunnars að tækifærin liggja víða. Ég ætla að leyfa mér að vitna í lokaorð skýrslunnar þar sem segir að á næstu árum skiptir mestu að horfa á Langanesbyggð, ekki sem jaðarsvæði með varanlegum takmörkunum heldur sem svæði með skýra möguleika – að því gefnu að allar grunnforsendur séu tryggðar og ákvarðanir teknar í tíma.
Framtíðin er björt þrátt fyrir áskoranir sem í reynd eru bara verkefni sem við munum takast á með þeirri seiglu og dugnaði sem hingað til hefur einkennt samfélag okkar.
Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:25.