Fara í efni

46. fundur sveitarstjórnar

04.06.2025 16:00

Fundur í sveitarstjórn

46. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2 Þórshöfn, miðvikudaginn 4. júní 2025. Fundur settur kl. 16:00.

Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson oddviti, Halldóra J. Friðbergsdóttir, Gunnlaugur Steinarsson, Júlíus Sigurbjartsson, Margrét Guðmundsdóttir, Þórarinn J. Þórisson og Björn S. Lárusson, sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Oddviti bauð fundamenn velkomna og spurði hvort athugasemdir væru við fundarboð – svo var ekki og því gengið til dagskrár.

Oddviti fór fram á að taka fyrir bókun skipulagsnefndar frá 42. fundi með afbrigðum undir lið 5 sem 05.1 um Aðalskipulag Langanesbyggðar.

Samþykkt samhljóða.

D a g s k r á

1. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga nr. 979 frá 16.05.0225
2. Fundargerð 73. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á NE frá 07.05.2025
3. Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum nr. 81 frá 21.05.2025
4. Fundargerð 39. fundar byggðaráðs frá 28.05.2025
5. Aðalskipulag Langanesbyggðar – stefnuyfirlýsing, tillaga.
     05.1 Bókun skipulagsnefndar.
6. Bókun um sumarleyfi sveitarstjórnar til 21. ágúst.
7. Skýrsla sveitarstjóra

Fundargerð

1. Fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga nr. 979 frá 16.05.0225
Fundargerðin lögð fram

2. Fundargerð 73. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á NE frá 07.05.2025
Fundargerðin lögð fram.

3. Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum nr. 81 frá 21.05.2025
Fundargerðin lögð fram.

4. Fundargerð 39. fundar byggðaráðs frá 28.05.2025
Fundargerðin lögð fram.

5. Aðalskipulag Langanesbyggðar – stefnulýsing, tillaga.
     05.1 Bókun skiplagsnefndar vegna þessa liðar.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn felur sveitarstjóra og skipulags- og umhverfisnefnd að fullvinna texta í samráði við Landslag (fyrirtækið sem vinnur að gerð aðalskipulags) sem snýr að áherslum samkvæmt þeim atriðum sem koma fram í skipulagslýsingu vegna aðalskipulags og nefnir í því sambandi áhersluatriði i kafla 2.3. Einnig felur sveitarstjórn sveitarstjóra og skipulags- og umhverfisnefnd að svara þeim spurningum sem koma fram í tillögunni og spurt er um.

Til máls tóku: Halldóra, oddviti.

Samþykkt samhljóða.

6. Bókun um sumarleyfi sveitarstjórnar til 21. ágúst.
Leyfi sveitarstjórnar frá 4. júní til 21. ágúst.

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn fer að þessum fundi loknum í sumarleyfi til 21. ágúst nk., samkvæmt starfsáætlun sem samþykkt var á 39. fundi sveitarstjórnar 12. desember 2024.
Á meðan sveitarstjórn er í sumarleyfi, fer byggðaráð, samkvæmt 5. tl. 31. gr. samþykkta um stjórn Langanesbyggðar með sömu heimildir og sveitarstjórn hefur ella.
Aukafundur verið haldinn í millitíðinni ef þörf krefur.

Samþykkt samhljóða.

7. Skýrsla sveitarstjóra

     Hr. Oddviti, sveitarstjórnarfulltrúar.

Frá og með þessum fundi fer sveitarstjórn í sumarfrí. Næsti fundur sveitarstjórnar er þá 21. ágúst.

Við fengum þau vondu tíðindi staðfest í síðustu viku að mygla hefur greinst í grunnskólanum. Þetta er auðvitað fjárhagslegt áfall fyrir okkur en verri eru þau áhrif sem þetta hefur óhjákvæmilega á skólahald næsta vetur og hvar kennt verður í stað þeirra kennslustofa sem fara úr notkun. Þetta er það stór hluti skólans að það verður mikið púsl að koma þessu heim og saman.

Ég er nú að vinna að því að færa til liði í fjárhagsáætlun til að fá fjármagn til að fara í þessa viðgerð sem fyrst. Hugsanlega þurfum við að grípa til einhverrar lántöku en það er þó síðasta úrræðið. Við getum flutt til og hliðrað í fjárhagsáætlun, frestað og flutt til næsta árs eða dregið úr einhverjum framkvæmdum. Ýmislegt kemur til greina og mun ég gera sveitarstjórn og/eða byggðaráði grein fyrir þeim aðgerðum sem ég mun leggja til við fyrsta tækifæri. Eins og er, þá er ég að bíða eftir kostnaðar og framkvæmdaáætlun. Hinsvegar er strax hægt að byrja á því að rífa innan úr skólanum svo framalega sem verktakar eða mannskapur fæst til þess. Forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar hefur heimild til að finna verktaka eða mannskap til að hefjast handa. Varðandi fjármálin þá höfum við spennt bogann hátt þetta árið en samt sem áður er alltaf hægt að finna lausn þó ef til vill verði ekki allir sáttir við hana.

Að ánægjulegri málum. Vinna er nú hafin við gerð nýs aðalskipulags fyrir sveitarfélagið. Þetta er töluvert meira verk en ætla mætti því fyrir var ekki skipulag í Svalbarðshreppi. Við vonumst til þess hinsvegar, að þessi vinna gangi fljótt og vel fyrir sig þannig að nýtt aðalskipulag geti tekið gildi áður en gildistími núverandi skipulags rennur út árið 2027. Það er fyrirtækið Landslag sem vinnur með okkur í þessu og við svo umfangsmikla vinnu er mikilvægt að vera með samheldin og góðan hóp í skipulags- og umhverfisnefnd að ógleymdum skipulagsráðgjafa Arnari Ólafssyni hjá Teiknistofu Norðurlands. Ég hef stundum sagt í nefndinni að skipulagsmál eru ekki mín sterka hlið því oftar en ekki hef ég verið hinu megin við borðið að takast á við slíkar nefndir með byggingaleyfi og/eða vegna byggingareglugerðar sem er einhver lengsta og flóknasta reglugerðin í stjórnsýslunni. En – hálfnað er verk þá hafið er.

Að lokum óska ég ykkur sólríks og ánægjulegs sumars.

Til máls tóku: Þórarinn, oddviti.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:30

 

Tengd skjöl

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?