Fara í efni

10. fundur sveitarstjórnar

21.12.2022 17:00

Fundur í sveitarstjórn

10. fundur sveitarstjórnar Langanesbyggðar, aukafundur haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2, Þórshöfn, miðvikudaginn 21. desember 2022. Fundur settur kl. 17:00.

Mætt voru: Sigurður Þór Guðmundsson oddviti, Halldóra Jóhanna Friðbergsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Sigríður Friðný Halldórsdóttir, Júlíus Þ. Sigurbjartsson, Þorsteinn Ægir Egilsson, Þórarinn J. Þórisson og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Oddviti setti fund og spurði hvort gerð væri athugasemd við fundarboð. Svo var ekki.

Dagskrá

1. Breyting á álagningu úrsvars fyrir árið 2023 úr 14,52% í 14,74%

Fundargerð

1. Breyting á álagningu útsvars fyrir árið 2023 úr 14,52% í 14,74%.
Hækkun útsvarsálagningar vegna fjármögnunar þjónustu við fatlað fólk. Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 16.12.2022, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar.

Tillaga.
Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 16.12.2022, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 16.12.2022, samþykkir sveitarstjórn Langanesbyggðar að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2023 hækki um 0,22% og verði 14,74%.“

Bókun um afgreiðslu: Sveitarstjórn samþykkir að hækka útsvar í 14,74%

Samþykkt samhljóða.

Fundargerðin lesin upp og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:02

Tengd skjöl

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?