20. fundur stjórnar Jarðasjóðs
Fundur í stjórn Jarðasjóðs
20. fundur stjórnar Jarðasjóðs, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2, Þórshöfn þriðjudaginn 24. febrúar 2026. Fundur var settur kl. 16:00.
Mætt voru: Júlíus Sigurbjartsson formaður, Þórir Jónsson, Mirjam Blekkenhorst, Ævar Marinósson, Ragnar Skúlason og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.
Formaður spurði hvort gerðar væru athugasemdir við fundarboð. Svo var ekki og fundur settur.
Fundargerð
1. Bréf frá eigendum Akur Organic varðandi leigusamning.
01.1 Drög að leigusamningi við Akur Organic um Flögu 2
Bókun um afgreiðslu: Ekki er hægt að taka út ákvæði um að „íbúðarhús og hlunnindi eru undanskilin“ þar sem þetta ákvæði er forsenda samnings.
Stjórnin sér ekki ástæðu til að fella niður jarðarafgjald fyrir árið 2025 þar sem gjaldið er framhald á fyrri leigusamningi og aðilar meðvitaðir um að nýr samningur var í vinnslu.
Stjórn Jarðasjóðs ítrekar að samkvæmt samningi er fallist á að greiða fyrir efni fyrir girðingu en vinna verði greidd af leigutaka (4. liður samnings). Ef leigusali segir upp samningi áður en samningstíma lýkur mun leigusali greiða fyrir vinnu við girðingu fyrir þann tíma sem eftir stendur samnings. Segi leigutaki upp samningi verður ekki greitt fyrir vinnu við uppsetningu girðingar.
Stjórn Jarðasjóðs fellst á að setja inn í samning ákvæði um forkaupsrétt að aðstöðuhúsi en felst ekki á að taka þátt í byggingu þess.
Samþykkt samhljóða.
2. Erindi frá Inooraq Nielsen Flögu 1
02.1) Tilboð frá H. Hauksson.
Bókun um afgreiðslu: Nefndin fellst á að greiða út 2.478.600.- sem fyrirframgreiðslu vegna vinnu við endurgerð fjárhúss. Fjármunirnir eru ætlaðir í tækjakaup samkvæmt meðfylgjandi lista. Jarðasjóður hefur veð í umræddum tækjum þar til vinnu við endurgerð fjárhúss er lokið.
Samþykkt samhljóða.
3. Erindi frá Lars Lund, Hallgilsstöðum 1.
Bókun um afgreiðslu: Stjórn Jarðasjóðs fellst á greiðslu fyrir girðingu og vorhús kr. 2.324.070.- Ef farið er fram á frekari greiðslur (hús, útihús, girðingar eða vinnu) er óskað eftir sérstöku erindi þess efnis. Stjórnin tilnefnir Ævar Marinósson til að hafa eftirlit með þeim framkvæmdum sem farið hefur verið í eða eru framundan og gera athugasemdir ef ástæða þykir til.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:25