Fara í efni

19. fundur stjórnar Jarðasjóðs

22.01.2026 16:00

Fundur í stjórn Jarðasjóðs

19. fundur stjórnar Jarðasjóðs, haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Langanesvegi 2, Þórshöfn fimmtudaginn 22.01.2026. Fundur var settur kl. 16:00.

 

 Mættir voru: Júlíus Sigurbjartsson formaður, Þórir Jónsson, Ævar Marinósson, Ragnar Skúlason og Björn S. Lárusson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Formaður spurði hvort gerðar væru athugasemdir við fundarboð. Svo var ekki og fundur settur.

Fundargerð

1. Sóleyjarvellir – leigusamningur - breytingar
Lagður fram breyttur leigusamningur um Sólareyjarvelli. Tilgangur samningsins er að veita leigutaka heimild til að hefja rannsóknir, afla allra gagna sem þörf er á og framkvæmda sérhverjar aðrar nauðsynlegar undirbúningsaðgerðir vegna fyrirhugaðrar vinorkuvirkjunar sem kennd er við Brekknaheiði á heiðalandi tiltekinna jarða þ.m.t. á landi landeiganda. Í framhaldinu reisa hanna, reisa, reka og viðhalda og í framhaldinu reisa, reka og viðhalda vindorku virkjuninni innan skilgreinds athafnasvæðis sem er á eignarlandi landeiganda og annarra landeiganda sem eiga jarðir innan athafnasvæðisins.

Bókun um afgreiðslu: Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

Samþykkt samhljóða.

2. Flaga 1 leigusamningur
Lagður fram leigusamningur vegna Flögu 1 á milli Langanesbyggðar og Inooraq Hansen Nielsen.

Bókun um afgreiðslu: Stjórn Jarðasjóðs samþykkir samninginn fyrir sitt leiti og felur sveitarstjóra að undirrita hann. Stjórnin felur Þóri Jónssyni að fylgjast með framkvæmdaferli við endurbætur á jörðinni.

Samþykkt samhljóða.

3. Flaga 2 leigusamningur
Lagður fram leigusamningur vegna Flögu 2 á milli Langanesbyggðar og Akur Organic.

Bókun um afgreiðslu: Stjórn Jarðasjóðs samþykkir samninginn fyrir sitt leiti og felur sveitarstjóra að undirrita hann.

Samþykkt samhljóða.

4. Önnur mál
Ósk hefur komið frá fulltrúum wpd um fund á Þórshöfn 28. janúar með stjórn Jarðasjóðs. Stjórnin felur sveitarstjóra að boða fulltrúa wpd á fund með stjórn sjóðsins miðvikudaginn 28. janúar kl. 15:00 á skrifstofu Langanesbyggðar, Langanesvegi 2.

Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:25

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?